Íslenski körfuboltinn
67 68 69 70 71 72 73 74 75 … 82 ›
Skallagrímur lagði KR Skallagrímur úr Borgarnesi gerði góða ferð í höfuðborgina í kvöld þegar liðið færði KR fyrsta tap sitt í úrvalsdeildinni með 88-81 sigri. Gestirnir höfðu undirtökin lengst af leik og unnu verðskuldaðan sigur. Körfubolti 26.10.2006 20:43
Enn leiðir Skallagrímur Skallagrímur úr Borgarnesi hefur enn forystu gegn KR þegar þremur leikhlutum er lokið í aðalleik kvöldsins í úrvalsdeild karla. KR-ingar náðu að jafna metin þegar skammt var eftir af þriðja leikhlutanum, en góð rispa Borgnesinga tryggði þeim 63-55 forystu fyrir lokaleikhlutann. Körfubolti 26.10.2006 20:21
Skallagrímur yfir í hálfleik Skallagrímsmenn hafa yfir 44-35 gegn KR þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í úrvalsdeild karla í DHL höllinni. Gestirnir hafa verið með frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn og þar er Darryl Flake atkvæðamestur með 14 stig. Körfubolti 26.10.2006 19:51
Skallagrímur leiðir Skallagrímur hefur yfir 20-13 gegn KR að loknum fyrsta leikhluta í viðureign liðanna í úrvalsdeild karla í körfubolta, en leikið er í vesturbænum. Gestirnir hafa verið mun betri framan af leik og ætla greinilega að velgja KR-ingum undir uggum. Körfubolti 26.10.2006 19:31
Steven Thomas leikmaður 2. umferðar Bandaríkjamaðurinn Steven Thomas var besti leikmaður 2. umferðar úrvalsdeildar karla í körfubolta samkvæmt töfræðigrunni KKÍ. Thomas fór mikinn í leik gegn Haukum á dögunum, skoraði 24 stig, hirti 23 fráköst og varði 4 skot - en þessi tölfræði skilaði honum 43 stigum fyrir frammistöðuna á leikvarpinu hjá KKÍ. Körfubolti 26.10.2006 17:14
Stórleikur í vesturbænum í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta með fjórum leikjum. Stórleikur kvöldsins verður án efa viðureign KR og Skallagríms í DHL höllinni. Njarðvík tekur á móti Hamri í Njarðvík, Haukar mæta Snæfelli og Þór Þorlákshöfn fær Grindavík í heimsókn. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og fylgst verður með gangi mála hér á Vísi. Körfubolti 26.10.2006 17:07
Mikil spenna í fyrstu umferðunum Það er óhætt að segja að fyrstu tvær umferðirnar í úrvalsdeild karla í körfubolta lofi góðu um framhaldið í vetur, því aldrei áður hefur verið eins mikil spenna á jafnmörgum vígstöðvum eftir tvær umferðir á miðað við núverandi keppnisfyrirkomulag. Körfubolti 26.10.2006 15:58
Birna Valgarðsdóttir meiddist á hné Landsliðskonan Birna Valgarðsdóttir hjá Keflavík verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð eftir að liðþófi í hné hennar rifnaði á æfingu á mánudagskvöldið. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. Þetta er liði Keflavíkur mikið áfall en Birna á enn eftir að fara í speglun þar sem betur kemur í ljós hve alvarleg meiðsli hennar eru. Körfubolti 25.10.2006 19:55
Tamara Bowie best í fyrstu umferðinni Bandaríska körfuknattleikskonan Tamara Bowie hjá Grindavík var leikmaður fyrstu umferðar í Iceland Express deild kvenna samkvæmt tölfræðigrunni KKÍ en hún átti stórleik gegn liði Hamars/Selfoss. Þetta kemur fram á vef körfuknattleikssambandsins í dag. Körfubolti 25.10.2006 20:05
Góður sigur Keflavíkurstúlkna í Grindavík Önnur umferðin í Iceland Express deild kvenna í körfubolta fór fram í kvöld. Keflavíkurstúlkur gerðu góða ferð yfir til Grindavíkur og sigruðu 72-69. Takesha Watson skoraði 35 stig og hirti 8 fráköst fyrir Keflavík og María Erlingsdóttir skoraði 17 stig. Tamara Bowie fór hamförum í liði Grindavíkur með 33 stig og 16 fráköst og Hildur Sigurðardóttir skoraði 14 stig, hirti 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Körfubolti 25.10.2006 21:18
KR lagði Snæfell í hörkuleik KR byrjaði leiktíðina með sigri í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið lagði Snæfell á heimavelli sínum 83-79. Heimamenn voru yfir nær allan leikinn, en gestirnir komust yfir þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka. Þá fékk Hlynur Bæringsson sína fimmtu villu og eftir það gengu KR-ingar á lagið og höfðu sigur. Körfubolti 20.10.2006 21:34
Tveir stórleikir í kvöld Fyrsta umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta klárast í kvöld þegar tveir stórleikir verða á dagskrá. Grannarnir Hamar/Selfoss og Þór eigast þá við í Þorlákshöfn og í DHL Höllinni mætast KR og Snæfell. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og rétt er að hvetja alla til að mæta á völlinn, enda verður eflaust hart barist á báðum vígstöðvum. Körfubolti 20.10.2006 17:28
Suðurnesjaliðin unnu leiki sína Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í kvöld. Suðurnesjaliðin unnu öll fyrstu leiki sína og þá unnu Haukar afar nauman sigur á nýliðum Tindastóls í Hafnarfirði. Körfubolti 19.10.2006 21:44
Deildarkeppnin hefst í kvöld með fjórum leikjum Keppni í úrvalsdeild karla í körfubolta hefst með látum í kvöld þegar fjórir leikir eru á dagskrá og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Íslandsmeistarar Njarðvíkur hefja titilvörnina í Seljaskóla gegn ÍR, Keflavík tekur á móti Skallagrími, Fjölnir fær Grindavík í heimsókn og þá taka Haukar á móti Tindastól. Körfubolti 19.10.2006 18:31
Keflavík lagði Skallagrím í spennandi leik Fyrsta umferð Iceland Express deildarinnar hófst í gær þegar Keflvíkingar mættu Skallagrímsmönnum í íþróttahúsinu við sunnubraut en báðum liðum hefur verið spáð góðu gengi í vetur. Leikurinn var jafn og æsispennandi allan tímann og fór í framlengingu en lyktaði með naumum sigri Keflvíkinga 87-84. Körfubolti 19.10.2006 23:14
Íslandsmeistararnir verja titla sína Í dag var haldinn árlegur blaðamannafundur fyrir upphaf leiks í úrvalsdeildum karla og kvenna í körfubolta og þar spá þjálfarar og fyrirliðar allra liða í deildunum í spilin fyrir komandi leiktíð venju samkvæmt. Njarðvík og Haukar munu verja titla sína ef marka má spár í dag. Sport 17.10.2006 17:44
Páll Axel safnaði mestu fé Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson safnaði mestu fé allra í gær þegar fram fóru úrslitaleikirnir í meistarakeppni KKÍ, en Iceland Express og Lýsing borguðu ákveðnar peningaupphæðir fyrir hverja troðslu og 3ja stiga körfu sem skoruð var í leiknum og rann upphæðin til heyrnadaufra barna. Körfubolti 16.10.2006 19:04
Fyrsti bikar vetrarins til Keflavíkur Úrslitaleikir fyrirtækjabikars KKÍ, Powerade-bikarkeppninnar, fóru fram í Laugardalshöllinni í gær en mótið markar nú upphaf keppnistímabilsins. Keflavík vann Njarðvík í æsispennandi leik í karlaflokki. Körfubolti 7.10.2006 21:19
Sannfærandi hjá Haukum Haukastúlkur unnu í gær Powerade-bikarinn í körfuknattleik annað árið í röð þegar þær lögðu lið Grindavíkur að velli 91-73 í Laugardalshöll. Þetta var öruggur sigur hjá Haukum en liðið hafði forystuna frá upphafi til enda leiks. Körfubolti 7.10.2006 21:19
Haukar vinna Powerade bikarinn Haukastúlkur unnu Grindavík 91-73 í úrslitum Powerade fyrirtækjabikarsins í körfuknattleik. Helena Sverrisdóttir átti mjög góðan leik og var stigahæst í Haukaliðinu en Tamara Bowie var atkvæðamest Grindvíkinga. Nú er að hefjast úrslitaleikur karla á milli Keflavíkinga og Njarðvíkinga. Körfubolti 7.10.2006 15:33
Ætlum að vinna allt í vetur Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður körfuknattleiksliðs Keflavíkur, segðist sáttur við sigurinn á Skallagrími í gærkvöldi þó leikmenn eigi enn eftir að slípa sig betur saman. Hann segir stefnu Keflvíkinga hiklaust setta á að vinna alla titla sem í boði eru í vetur og þar sé Evrópukeppnin engin undantekning. Körfubolti 6.10.2006 18:54
Undanúrslitin í kvennaflokki í kvöld Undanúrslitaleikirnir í Powerade bikar kvenna í körfubolta fara fram í kvöld en nú klukkan 19 mætast Íslandsmeistarar Hauka og ÍS og klukkan 21 eigast við grannaliðin Keflavík og Grindavík. Báðir leikirnir fara fram í Laugardalshöll. Körfubolti 6.10.2006 18:46
Njarðvík og Keflavík leika til úrslita Það verða grannarnir Keflvíkingar og Njarðvíkingar sem spila til úrslita í Powerade bikarnum í karlaflokki eftir að Njarðvíkingar skelltu KR 102-95 í skemmtilegum leik í Laugardalshöllinni í kvöld. KR-ingar höfðu frumkvæðið meira og minna fram í fjórða leikhluta, en Íslandsmeistararnir reyndust sterkari á lokasprettinum. Úrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn. Körfubolti 5.10.2006 22:42
Njarðvíkingar leiða í hálfleik Njarðvíkingar hafa nauma forystu gegn KR 47-45 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta í Laugardalshöll. Jeb Ivey er stigahæstur í liði Njarðvíkur með 12 stig og Friðrik Stefánsson hefur skorað 10 stig, en hjá KR er Jeremiah Sola að fara á kostum og er kominn með 19 stig. Körfubolti 5.10.2006 21:46
Keflvíkingar í úrslit Keflvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum í Powerade bikarnum í körfubolta með því að leggja Skallagrímsmenn 88-81í Laugardalshöll. Keflvíkingar höfðu undirtökin í fyrsta leikhluta en eftir að hafa verið undir fram í byrjun lokaleikhlutans, spýttu suðurnesjamenn í lófana og unnu sannfærandi sigur á Borgnesingum. Körfubolti 5.10.2006 20:37
Skallagrímur enn í forystu Borgnesingar hafa sex stiga forystu 66-60 eftir þrjá leikhluta í viðureign sinni við Keflvíkinga í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta en leikið er í Laugardalshöll. Klukkan 21 hefst síðari undanúrslitaleikurinn á sama stað og þar eigast við Njarðvík og KR. Körfubolti 5.10.2006 20:21
Skallagrímur yfir í hálfleik Skallagrímur hefur náð undirtökunum í undanúrslitaleik sínum við Keflavík í Powerade bikarnum í karlaflokki í kvöld. Borgnesingar hafa yfir 45-40 þegar flautað hefur verið til leikhlés í Laugardalshöllinni, en góður lokasprettur liðsins í öðrum leikhluta tryggði liðinu 5 stiga forystu í hálfleik. Síðar í kvöld mætast svo Íslandsmeistarar Njarðvíkur og KR. Körfubolti 5.10.2006 19:47
Keflavík yfir eftir fyrsta leikhluta Keflvíkingar hafa yfir 28-27 gegn Skallagrímsmönnum eftir fyrsta leikhlutann í viðureign liðanna í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta, en leikið er í Laugardalshöll. Leikurinn fer afar fjörlega af stað eins og stigaskorið ber með sér. Körfubolti 5.10.2006 19:27
Leikur Keflavíkur og Skallagríms að hefjast Fyrri undanúrslitaleikur kvöldsins í undanúrslitum Powerade-bikarsins í körfubolta hefst nú klukkan 19 í laugardalshöll en hér er um að ræða viðureign Skallagríms og Keflavíkur. Síðar í kvöld mætast svo Njarðvík og KR. Körfubolti 5.10.2006 19:01
Beljanski til Njarðvíkur Íslandsmeistarar Njarðvíkur hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í vetur, en félagið hefur gert eins ár samning við miðherjann Igor Beljanski sem lék með Snæfelli á síðustu leiktíð. Lið Njarðvíkur er því komið með þrjá sterka miðherja og veitir ekki af, enda er liðið að taka þátt í Evrópukeppninni í ár. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í dag. Körfubolti 5.10.2006 13:38