Íslenski handboltinn

Fréttamynd

Tveir leikir í DHL-deild kvenna

Stjarnan og Haukar geta tryggt sér sæti í undanúrslitum DHL-deildar kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan sækir Gróttu/KR heim og Fram mætir Haukum. Leikirnir hefjast klukkan 19.15 og verða gerð ítarleg skil í Olíssporti á Sýn klukkan 22.

Sport
Fréttamynd

Ekkert aprílgabb á HSÍ

Öll stóru íþróttasamböndin voru með létt og skemmtileg aprílgöbb nema Handknattleikssamband Íslands, HSÍ.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Ólafi Stefáns

Fyrri leikirnir í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta fóru fram um helgina. Á laugardag tóku Evrópumeistarar Celje Lasko á móti spænska stórliðinu Barcelona í Celje og sigruðu heimamenn með þriggja marka mun, 34-31

Sport
Fréttamynd

Átta mörk Snorra dugðu ekki

Snorri Steinn Guðjónsson átti mjög góðan leik þegar Grosswallstadt tapaði fyrir Gummersbach 23-28 í þýska handboltanum í gær. Snorri var markahæstur í liði Grosswallstadt, skoraði átta mörk, þar af þrjú af vítalínunni, en Einar Hólmgeirsson skoraði þrjú. Kóreumaðurinn Kyung-Shin Yoon skoraði tíu mörk fyrir Gummersbach.

Sport
Fréttamynd

Guðjón sterkur í Evrópukeppninni

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk þegar þýska liðið Essen sigraði Dynamo Astrachan frá Rússlandi með 31 marki gegn 23. Liðin mætast aftur um næstu helgi í Rússlandi. Gummersbach og Magdeburg eigast við í hinum undanúrslitaleiknum 6. og 9. apríl.

Sport
Fréttamynd

Sjö mörk Dags dugðu ekki

Dagur Sigurðsson skoraði 7 mörk þegar lið hans Bregenz tapaði með eins marks mun 30-29 fyrir Krems í uppgjöri efstu liðanna í austuríska handboltanum. Dagur hafði mest áður skorað 6 mörk í úrslitakeppninni í leik í febrúar og er núna fjórði markahæstur í Bregenz-liðinu.

Sport
Fréttamynd

ÍBV í undanúrslitin

Íslandsmeistarar ÍBV í sigruðu Víking í dag, 28-22, í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta kvenna og einvígið 2-0, en þær höfðu áður sigraði í Eyjum.

Sport
Fréttamynd

Sigfús lék aftur með Magdeburg

Landsliðsmaðurinn, Sigfús Sigurðsson, lék sinn fyrsta leik í langan tíma þegar Magdeburg sigraði Minden 32-24 í þýska handboltanum í gærkvöldi. Sigfús skoraði eitt mark. Magdeburg er í þriðja sæti deildarinnar með 38 stig, 6 stigum á eftir Kiel og Flensburg.

Sport
Fréttamynd

FH í úrslitakeppnina

FH-ingar tryggðu sér í kvöld áttunda og síðasta sætið í úrlitakeppni karla í handknattleik, en í kvöld sigruðu þeir Víkinga í Víkinni með tveggja stiga mun, 27-25. FH-ingar sigruðu einnig fyrri leikinn, en þá með fjögurra marka mun, 29-25. FH mætir deildarmeisturum Hauka í 8-liða úrslitum og fer fyrsti leikurinn fram á þriðjudaginn.

Sport
Fréttamynd

ÍBV sigraði Víking

ÍBV sigraði Víking, í Eyjum, með 30 mörkum gegn 27 í 8-liða úrslitum DHL deildarinnar í handknattleik kvenna, en Víkingsstúlkur leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 14-17.

Sport
Fréttamynd

Valsstúlkur með góða stöðu

Valsstúlkur eru með góða stöðu eftir fyrsta leik í 8-liða úrslitum DHL deildar kvenna í handknattleik. Valsstúlkur sigruðu FH Í Kaplakrika í kvöld með þriggja marka mun, 19-22 og leiða því einvígið 1-0.

Sport
Fréttamynd

Danir sigruðu Þjóðverja

Danir sigruðu Þjóðverja í vináttulandsleik í handknattleik í Flensburg í gær, 25-24. Þetta var fyrsti landsleikur Dana undir stjórn nýráðins landsliðsþjálfara, Ulriks Wibeks.

Sport
Fréttamynd

FH lagði Víkinga

FH sigraði Víking, 29-25, í fyrri leik liðanna um sæti í úrslitakeppni karla í handknattleik, en leikið var í Kaplakrika. Víkingar leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 17-14, en í síðari hálfleik hrundi leikur þeirra og FH-ingar gengu á lagið og tóku öll völd.

Sport
Fréttamynd

Créteil vill fá Bjarna

Landsliðsmaðurinn og ÍR-ingurinn Bjarni Fritzson kom heim frá Frakklandi í gær þar sem hann var í skoðun hjá franska félaginu Créteil.

Sport
Fréttamynd

Bjarni með samningstilboð

Bjarni Fritzson, leikmaður ÍR og landsliðsmaður í handknattleik, hefur fengið tilboð frá franska liðinu Cretail. Bjarni var til reynslu hjá franska liðinu í tvo daga en var á leið heim í dag. Honum var boðinn þriggja ára samningur en samkvæmt heimildum íþróttadeildar er samningurinn uppsegjanlegur að tveimur árum liðnum.

Sport
Fréttamynd

FH og Víkingur mætast í umspili

FH og Víkingur mætast í kvöld í fyrsta leik liðanna í umspili um sæti í 8 liða úrslitum á Íslandsmótinu í handknattleik. Leikurinn, sem fram fer í Kaplakrika, hefst klukkan 19.15.

Sport
Fréttamynd

Held að Víkingur vinni í Eyjum

ÍBV-stúlkur höfnuðu í öðru sæti í deildarkeppninni í vetur og þær mæta Víkingi, sem hafnaði í því sjöunda, í Eyjum í kvöld. Í hinum leik kvöldsins mætast liðin í fjórða og fimmta sætinu, FH og Valur í Kaplakrika. Erlendur Ísfeld hafði þetta að segja um viðureignir kvöldsins.

Sport
Fréttamynd

Kíl náði efsta sætinu

Kíl vermir efsta sætið í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik eftir nauman sigur á Hamborg, 25-24, á útivelli í gærkvöldi. Christian Zeits skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins.

Sport
Fréttamynd

Spilar meiddur í úrslitakeppninni

Landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson, leikmaður ÍR, hefur verið burðast með meiðsli síðan um áramót og ljóst að hann þarf að fara í speglun hið fyrsta.

Sport
Fréttamynd

Mocsai tekur við Gummersbach

Lajos Mocsai frá Ungverjalandi verður næsti þjálfari Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik, en landsliðsmennirnir Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson munu leika með liðinu á næstu leiktíð. Mocsai var í sex ár þjálfari kvennalandsliðs Ungverja, en hann hefur áður þjálfað Lemgo og Nettelsted í Þýskalandi.

Sport
Fréttamynd

Bætt vörn og markvarsla

Eftir tap í öðrum leiknum gegn Pólverjum á laugardag, náði íslenska liðið að rífa sig upp og vinna sigur í síðasta leiknum á páskadag 31-30, þar sem Jailesky Garcia og Einar Hólmgeirsson voru markahæstir með sjö mörk hvor.

Sport
Fréttamynd

Sigur á Pólverjum í síðasta leik

Íslenska landsliðið í handknattleik sigraði Pólverja 31-30 í Laugardalshöll í gær. Birkir Ívar Guðmundsson fór á kostum í marki íslenska liðsins og varði 22 skot og var besti maður vallarsins. Jaliesky Garcia og Einar Hólmgeirsson voru markahæstir með 7 mörk hvor.

Sport
Fréttamynd

Kláruðu verkefnið með stæl

Ísland lék um helgina við Úkraínu, Holland og Austurríki um laust sæti á Heimsmeistaramóti U-21 árs liða sem fram fer í Ungverjalandi í sumar.

Sport
Fréttamynd

Frakkar sigruðu á heimavelli

Frakkar sigruðu á Bercy-mótinu í handknattleik sem lauk í París í gær. Frakkar sigruðu Þjóðverja 30 - 26 í lokaumferðinni en Túnisar tryggðu sért annað sætið með sigri á Rússum, 31-30.

Sport
Fréttamynd

Síðasti leikurinn við Pólverja

Ísland og Pólland mætast í síðasta vináttulandsleik þjóðanna hér á landi yfir páskana í dag klukkan fjögur. Pólverjar sigruðu Íslendinga í gær með 32 mörkum gegn 28 og eiga Íslendingar, sem unnu sigur í fyrsta leiknum, harma að hefna í dag.

Sport
Fréttamynd

U-21 árs liðið mætir Austurríki

Ungmennalandslið karla í handknattleik mætir í dag Austurríkismönnum í unndankeppni heimsmeistaramótsins í Laugardalshöll og hefst leikur liðanna klukkan tvö. Íslensku piltunum nægir jafntefli til að tryggja sér sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Ungverjalandi í ágúst.

Sport
Fréttamynd

Tap fyrir Pólverjum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði í dag fyrir Pólverjum í öðrum vináttulandsleik þjóðanna, 28-32. Pólverjar voru yfir í hálfleik 13-16. Markahæstur hjá Íslandi var Guðjón Valur Sigurðsson með 8 mörk. Einar Hólmgeirsson kom næstur með 5.

Sport
Fréttamynd

Stúlkurnar unnu Slóvaka

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, vann Slóvakíu, 26-22, í undankeppni heimsmeistaramótsins í Frakklandi í gær. Íslensku stúlkurnar mæta Úkraínumönnum í dag og Frökkum á morgun.

Sport
Fréttamynd

Einar og Birkir sáu um Pólverja

Íslenska landsliðið í handknattleik lék á alls oddi í sínum fyrsta heimaleik undir stjórn Viggós Sigurðssonar þegar það mætti Pólverjum í vináttulandsleik í gær. Fyrstu mínútur leiksins lofuðu ekkert sérstaklega góðu en svo datt íslenska liðið í gírinn svo um munaði. Það skildi Pólverja fljótlega eftir í rykinu og leit aldrei til baka

Sport