Hernaður
48 49 50 51 52 53 54 … 54 ›
Reyndu að myrða varnarmálaráðherrann og heita fleiri árásum á leiðtoga Talibanar gerðu í gær bíræfna tilraun til að ráða varnarmálaráðherra Afganistans af dögum og heita frekari árásum á leiðtoga ríkisstjórnar landsins. Bismillah Khan Mohammadi, ráðherrann, var ekki heima og verðir fluttu fjölskyldu hans á brott. Erlent 4.8.2021 11:01
Sektaður fyrir ólöglegt vopnabúr: Notaði skriðdrekann sem snjóplóg Þýskur eftirlaunaþegi hefur verið dæmdur í 14 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 37 milljónir króna í sekt fyrir að eiga umfangsmikið safn ólöglegra vopna. Meðal gripanna var skriðdreki, sem var fjarlægður af heimili mannsins af þýska hernum. Erlent 4.8.2021 10:01
Fyrsta borgin nærri því fallin í hendur Talibana Talibanar eru nálægt því að ná fullum tökum á Lashkar Gah, héraðshöfuðborg Helmand-héraðs. Þeir hafa einnig sótt fram gegn stjórnarher landsins í borgunum Kandahar og Herat. Erlent 3.8.2021 14:23
Forseti Afganistan kennir brottför Bandaríkjahers um versnandi ofbeldi Ashraf Ghani, forseti Afganistan, hefur kennt skyndilegri og snöggri brottför Bandaríkjahers um versnandi ofbeldi í landinu. Her Afganistan á nú í erfiðum átökum við herskáa Talíbana. Erlent 2.8.2021 21:13
Hafa áhyggjur af auknum árásum á almenna borgara Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa miklar áhyggjur af fregnum af auknum árásum á almenna borgara í Afganistan. Sameinuðu þjóðirnar segja þær árásir hafa náð nýjum hæðum að undanförnu samhliða stórri sókn Talibana, sem hafa lagt undir sig stóran hluta landsins síðustu mánuði. Erlent 28.7.2021 22:31
Tugir þúsunda flýja hersveitir frá Tigray Hersveitir uppreisnarmanna í Tigray-héraði hafa ráðist inn í Afar-hérað í Eþíópíu og meira en 54 þúsund hafa flúið heimili sín. Uppreisnarhermennirnir hafa náð völdum á þremur svæðum í héraðinu í þessari viku einni. Erlent 22.7.2021 14:41
Færeyingar mótmæla vígvæðingu norðurslóða Á miðvikudaginn munu Færeyingar safnast saman á Sornfelli þar sem var starfrækt ratsjárstöð á vegum Nató í kalda stríðinu. Skoðun 19.7.2021 08:01
Hópsmit um borð í flugmóðurskipi drottningar Um hundrað hermenn á breska flugmóðurskipinu HMS Queen Elizabeth, sem er nefnt í höfuðið á Elísabetu Englandsdrottningu, hafa greinst með Covid-19. Hermennirnir eru allir fullbólusettir og mun skipið halda áfram leiðangri sínum. Erlent 14.7.2021 08:09
Talibanar ráða flugmenn markvisst af dögum Vígamenn Talibana hafa ráðið minnst sjö flugmenn í flugher Afganistans af dögum á undanförnum mánuðum. Talibanar reyna markvisst að myrða flugmenn sem hafa verið þjálfaðir af Bandaríkjunum og Atlantshafsbandalaginu til að draga úr yfirburðum stjórnarhers landsins í lofti og loftárásum. Erlent 9.7.2021 15:48
Allt herlið horfið frá Afganistan fyrir lok sumars Joe Biden Bandaríkjaforseti lofaði því í gærkvöldi að hann muni ekki senda aðra kynslóð Bandaríkjamanna í stríðreksturinn í Afganistan sem nú hefur staðið í tvo áratugi. Erlent 9.7.2021 07:43
Kvenhermenn í Úkraínu fá þægilegri hælaskó Varnarmálaráðuneyti Úkraínu hefur tilkynnt að kvenkyns hermenn muni fá „þægilegri“ hælaskó til að klæðast eftir að ráðuneytið var gagnrýnt harðlega fyrir að láta herkonurnar marséra í háum hælum. Erlent 8.7.2021 14:41
Yfirgáfu stærstu herstöðina í skjóli nætur Síðustu hermenn Bandaríkjanna yfirgáfu Bagram herstöðina, þá stærstu í Afganistan, um miðja nótt og án þess að segja nýjum afgönskum yfirmanni herstöðvarinnar frá því. Afganskir hermenn uppgötvuðu ekki að þeir væru einir fyrr en nokkrum klukkustundum síðar. Erlent 6.7.2021 09:20
Þúsund hermenn flúðu Talibana og enduðu í Tadsíkistan Rúmlega þúsund afganskir hermenn flúðu til Tadsíkistan í gær þegar vígamenn Talibana sóttu fram gegn þeim í norðurhluta Afganistan í gær. Talibanar náðu stjórn á nokkrum héruðum í norðurhluta landsins en stjórnarherinn á verulega undir högg að sækja á baráttunni við vígamenn. Erlent 5.7.2021 13:01
Síðustu hermenn NATO yfirgefa Bagram-herstöðina Síðustu hermennirnir úr röðum Bandaríkjahers og annarra NATO ríkja hafa nú yfirgefið Bagram herflugvöllinn í Afganistan. Völlurinn hefur verið aðalbækistöð herliðsins allar götur síðan stríðið gegn Talíbönum og al-Kaída hófst fyrir um tuttugu árum síðan. Erlent 2.7.2021 08:43
Tyrkland komið á lista yfir ríki sem tengjast barnahermennsku Tyrklandi var bætt við lista Bandaríkjanna yfir ríki sem hafa tengingu við notkun barnahermanna á undanförnu ári. Þetta er fyrsta skiptið sem Tyrkland, sem er í Atlantshafsbandalaginu, hefur komist á slíkan lista. Talið er að þetta muni flækja samskipti ríkjanna, sem þegar eru nokkuð slæm, umtalsvert. Erlent 1.7.2021 23:06
Kínverjar sagðir byggja fjölda byrgja fyrir langdrægar eldflaugar Kínverjar eru sagðir vera að byggja allt að 119 eldflaugabyrgi í eyðimörk í vesturhluta landsins. Byrgi þessi gætu hýst langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. Erlent 30.6.2021 22:30
Varar við borgarastyrjöld í Afganistan Austin Miller, herforingi og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afganistan, varaði í dag við því að Afganar stæðu frammi fyrir erfiðum tímum og mögulega borgarastyrjöld. Leiðtogar ríkisins og aðrir öflugir hópar þurfi að taka höndum saman og berjast gegn Talibönum í kjölfar brottfarar bandarískra hermanna frá landinu. Erlent 29.6.2021 23:05
Uppreisnarmenn fagna á götum úti Uppreisnarhersveitir í Tigray héraði, í norðurhluta Eþíópíu, hafa náð völdum að nýju í höfuðborg héraðsins, Mekelle. Það vakti mikla gleði og fögnuðu íbúar á götum úti þegar stjórnarhermenn flúðu borgina. Erlent 29.6.2021 18:20
Lýsa yfir vopnahléi til að tryggja uppskeruna Stjórnvöld í Tigray héraði í Eþíópíu hafa flúið höfuðborgina Mekelle undan sókn uppreisnarmanna og landstjórnin hefur lýst yfir vopnahléi á svæðinu. Erlent 29.6.2021 06:38
Her Eþíópíu hörfar og ríkisstjórnin lýsir yfir einhliða vopnahléi Ríkisstjórn Eþíópíu hefur lýst yfir einhliða vopnahléi í Tigray-héraði þar sem harðir bardagar eru sagðir hafa geisað á undanförnum mánuðum. Það var gert í kjölfar þess að forsvarsmenn Frelsisfylkingarinnar, sem stjórnaði Eþíópíu á árum áður, segja að þeir hermenn þeirra hafi náð tökum á borginni Mekelle, höfuðborg héraðsins. Erlent 28.6.2021 19:06
Gerðu loftárásir á skotmörk á landamærum Íran og Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gær loftárásir á landamærum Íraks og Sýrlands. Skotmörkin voru bækistöðvar og vopnabúr vígamanna sem halda til á svæðinu og njóta stuðnings Íransstjórnar. Erlent 28.6.2021 06:44
Leynileg skjöl breska varnarmálaráðuneytisins fundust á stoppistöð Varnarmálaráðuneyti Bretlands rannsakar nú hvernig trúnaðarskjöl um aðgerðir breska hersins týndust í síðustu viku. Þau fundust aftur á strætóstoppistöð í Kent síðasta þriðjudag. Erlent 27.6.2021 10:28
Vígamenn á barnsaldri myrtu yfir 130 íbúa Vígamennirnir sem myrtu fleiri en 130 í þorpinu Solhan í norðausturhluta Búrkína Fasó fyrr í þessum mánuði voru flestir börn á aldrinum 12 til 14 ára. Þetta segja stjórnvöld í landinu og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Erlent 24.6.2021 13:37
Taívan býr sig undir átök við Kína Joseph Wu, utanríkisráðherra Taívan, segir stjórnvöld þurfa að undirbúa sig undir möguleg hernaðarátök. Þetta sagði hann í viðtali við CNN en fyrir um viku síðan flugu 28 kínverskar herþotur og sprengjuflugvélar inn í lofthelgi landsins. Erlent 24.6.2021 11:34
Segja ekkert til í því að Rússar hafi skotið að HMS Defender Bresk stjórnvöld segja ekkert hæft í fregnum þess efnis að Rússar hafi skotið viðvörunarskotum í átt að breska herskipinu HMS Defender á hafsvæðinu suður af Krímskaga. Erlent 23.6.2021 13:31
19. júní: Alþjóðadagur Sameinuðu þjóðanna tileinkaður upprætingu kynferðisofbeldis í stríðsátökum Enn og aftur berast fregnir af hörmulegu kynferðisofbeldi í tengslum við vopnuð átök, nú síðast frá Tigray-héraði í Eþíópíu. Stjórnarherinn, sem nýtur stuðnings frá Eritríu, hefur verið sakaður um allt í senn stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og tilraun til þjóðarmorðs í tilraun sinni til að skipta út stjórn héraðsins. Sú ákvörðun var tekin eftir að kosningar til héraðsþings fóru fram í Tigray í september s.l. í trássi við tilmæli alríkisstjórnarinnar um frestun fyrirhugaðra alríkis- og héraðskosninga vegna COVID faraldursins. Skoðun 19.6.2021 12:03
Ólíkir ráðherrar saman á fundi NATO fyrir hönd Íslands Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins (NATO) funduðu í höfuðstöðvum þess í Brussel í dag. Tveir ráðherrar Íslands sátu fundinn en þeir hafa nokkuð misjafna sýn á hlutverk bandalagsins og hvort Ísland eigi í raun heima þar. Innlent 14.6.2021 22:52
Dómur yfir „Bosníu-slátraranum“ stendur óraskaður Dómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti í dag lífstíðardóm yfir bosníuserbneska herforingjanum Ratko Mladic. Maldic hafði áfrýjað dómi, sem féll árið 2017, þar sem hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir þátt sinn í þjóðernishreinsunum í Bosníu. Erlent 8.6.2021 15:11
Dóms að vænta í máli „Bosníu-slátrarans“ Dómstóll hjá Sameinuðu Þjóðunum mun í dag fella úrskurð sinn um áfrýjun bosníuserbneska herforingjans Ratko Mladic. Erlent 8.6.2021 07:18
Frelsaði fórnarlömb Auschwitz 21 árs og varð síðar heimsþekktur skylmingakappi „Þau stóðu þarna, öll í fangaklæðum... augu, bara augu; þetta var hræðilegt, alveg hræðilegt.“ Þannig lýsti David Dushman aðkomunni þegar hann og félagar hans óku niður gaddavírsgirðingarnar í Auschwitz 27. janúar 1945. Erlent 7.6.2021 08:30