
Erlend sakamál

Weinstein ákærður fyrir fleiri kynferðisbrot
Saksóknarar í máli Harveys Weinstein, bandaríska kvikmyndaframleiðandans, hafa lagt fram ákæru á hendur honum fyrir enn fleiri kynferðisbrot. Réttað verður aftur yfir Weinstein í New York eftir að dómstóll ógilti dóm sem hann hlaut í vor.

„Lærisveinn“ Pélicot sagður hafa beitt sömu aðferðum á eigin konu
Dómarar í Avignon í Frakklandi hlýddu í gær á frásögn af því hvernig „lærisveinn“ Dominique Pélicot notaði sömu aðferðir og Pélicot til að byrla eiginkonu sinni og nauðga.

171 handtekinn og 402 börnum bjargað í aðgerðum í Malasíu
Lögregluyfirvöld í Malasíu hafa handtekið 171 og bjargað 402 börnum og ungmennum í tengslum við misnotkun á um 20 barnaheimilum í Selangor og Negeri Sembilan.

Árásarmaður Ingunnar í sjö og hálfs árs fangelsi hið minnsta
Nemandi sem stakk íslenskan dósent í lyfjafræði við Oslóarháskóla ítrekað í fyrra hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm sem er skilyrtur því að hann svari meðferð og sé ekki metinn hættulegur samborgurum sínum. Refsingin er í takti við kröfu saksóknara.

1,4 milljarðar króna fyrir að mæta ekki fyrir rétt
Bandaríski rapparinn Sean „Diddy“ Combs var í dag dæmdur til þess að greiða meintum brotaþola 100 milljónir dala, um 1,4 milljarða króna, vegna kynferðisbrots fyrir 27 árum síðan.

Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi
Dómstóll í Svíþjóð hefur snúið við sýknudómi yfir Birgitte Bonnesen, fyrrverandi forstjóra Swedbank, og dæmt hana í eins árs og þriggja mánaða fangelsi fyrir gróf fjársvik.

Siðblindur raðlygari sem sýndi aðra hlið út á við
Dominique Pelicot, sem byrlaði eiginkonu sinni ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni yfir tíu ára tímabil, átti að bera vitni í dag í réttarhöldunum gegn honum og fimmtíu öðrum mönnum í dag. Það gekk hins vegar ekki eftir, vegna veikinda Pelicots, og verður réttarhöldunum mögulega frestað þar til hann hefur náð sér.

Rannsókn hafin en efasemdir uppi um sekt Letby
Rannsókn er hafin á því hvernig hjúkrunarfræðingnum Lucy Letby tókst að myrða sjö börn á tveggja ára tímabili án þess að það kæmist upp. Rannsóknin hefur verið gagnrýnd fyrirfram í kjölfar efasemda um sekt Letby.

Auglýsa eftir upplýsingum um 28 ára gamalt morðmál
Europol biðlar til almennings í Evrópu um aðstoð við lausn 28 ára gamals morðmáls þar sem grunur leikur á um að morð hafi verið framið í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi.

Meintir nauðgarar kvarta undan birtingu mynda og nafna
Verjendur manna sem hafa verið ákærðir fyrir að nauðga konu eftir að eiginmaður hennar byrlaði henni ólyfjan segjast ætla að leggja fram formlegar kvartanir yfir því að nöfnum þeirra og öðrum upplýsingum hafi verið lekið á netið. Þeir segja myndir hafa verið teknar af þeim í dómsal og að þær hafi einnig verið birtar á netinu, sem fari gegn frönskum lögum.

Hringdi í skólann og varaði við rétt fyrir árásina
Móðir unglingspilts sem skaut fjóra til bana í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum hringdi í skólann og varaði við „bráðri neyð“ rétt fyrir árásina. Hún hvatti skólaráðgjafa til að fara og finna son hennar strax.

Umfangsmikil leit að manni sem skaut fimm í Kentucky
Skólar í miðhluta Kentucky verða lokaðir í dag vegna leitar lögreglu að manni sem skaut á tólf bifreiðar og særði fimm á þjóðvegi norður af borginni London á laugardag.

Breskar konur stíga fram og ásaka Tate um nauðgun
Tvær konur hafa rætt við BBC og lýst því að hafa verið nauðgað af áhrifavaldinum Andrew Tate. Þriðja konan segist hafa verið nauðgað af Tristan, yngri bróður Andrew.

Íslendingur horfir fram á 24 ár í fangelsi til viðbótar
Íslendingurinn Daníel Gunnarsson, sem var á síðasta ári sakfelldur fyrir morð og limlestingu á líki í Bandaríkjunum, hefur fallist á dóm án þess að játa sekt í barnaníðsmáli.

Dæmdur fyrir að drepa bófa sem íslensk kona kom upp um
Bandaríski glæpamaðurinn Fotios „Freddy“ Geas hefur hlotið 25 ára fangelsisdóm fyrir að verða hinum alræmda James „Whitey“ Bulger að bana í fangelsi árið 2018.

„Faðir þinn byrlaði mér til að nauðga mér með ókunnugum“
Dóttir Dominique Pélicot, sem fékk 72 menn til að nauðga eiginkonu sinni yfir tíu ára tímabil, hefur lýst honum sem „einum versta kynferðisbrotamanni síðustu tuttugu ára.“

Refsing Trump í þagnargreiðslumáli ákveðin eftir kosningar
Dómari í New York féllst á kröfu verjenda Donalds Trump um að fresta ákvörðun refsingar hans í þagnargreiðslumáli hans þar til fram yfir forsetakosningarnar í nóvember. Sagði hann dómstólinn ekki vilja hafa áhrif á kosningarnar.

Gaf syni sínum byssu þrátt fyrir hótanir um skotárás
Faðir Colt Gray, fjórtán ára piltsins sem grunaður er um að hafa myrt fjóra í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn og á yfir höfði sér ákæru.

Hunter Biden breytir afstöðu í skattsvikamáli
Hunter Biden, sonur Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, ætlar að breyta afstöðu sinni til sakarefnis í skattsvikamáli gegn honum í dag. Hann hafði áður lýst yfir sakleysi sínu og heldur því í raun áfram en segist ætla að gangast við þeirri refsingu sem dómarinn telur að hann eigi að hljóta.

„Þeir komu fram við mig eins og tuskudúkku“
Frönsk kona sem nauðgað var ítrekað af ókunnugum mönnum eftir að eiginmaður hennar til fimmtíu ára byrlaði henni yfir tíu ára tímabil, segir lögregluna hafa bjargað lífi sínu með því að koma upp um hann. Réttarhöld yfir manninum og 51 öðrum sem nauðguðu henni standa nú yfir en þau fara fram fyrir opnum dyrum, að kröfu konunnar.

Játar að hafa leyft tugum karla að nauðga konu sinni
Einhver umtöluðustu réttarhöld síðustu ára hófust í Frakklandi í vikunni, þar sem verið er að rétta yfir 71 árs manni sem sakaður er um að hafa byrlað eiginkonu sinni til fimmtíu ára um árabil og leyft að minnsta kosti 72 mönnum að nauðga henni.

Berjaforkólfar fyrir dóm vegna mansals
Réttarhöld yfir forstjóra stærsta berjafyrirtækis Finnlands og taílenskum viðskiptafélaga hans vegna mansals á berjatínslufólki hófust í Lapplandi í dag. Slæmur aðbúnaður farandverkamanna í finnska berjaiðnaðinum hefur verið í brennidepli síðustu ár.

Játaði á sig hundruð brota gegn 60 barnungum stúlkum
Barnaníðingur að nafni Ashley Paul Griffith hefur játað að hafa brotið gegn um það bil 60 stúlkum í Brisbane í Ástralíu og á Ítalíu á árunum 2007 til 2022. Hann hefur þegar verið dæmdur sekur en bíður þess að vera gerð refsing.

Handtekin grunuð um innbrot á 22 lúxus heimili á Ibiza
Lögregluyfirvöld á Spáni hafa handtekið þrjá, tvo menn og konu, sem eru grunuð um að hafa brotist inn í fjölda íbúða á Ibiza og notað gas til að slæva heimilisfólk.

Ætluðu sér að myrða tugþúsundir á tónleikum Swift
Mennirnir sem voru handteknir í tengslum við fyrirhugaða árás á tónleika Taylor Swift í Vínarborg ætluðu sér að myrða tugþúsundir, að sögn aðstoðarforstjóra CIA.

Árásarmaðurinn verði ekki látinn laus fyrr en að undangengnu mati
Saksóknarinn Alvar Randa hefur farið fram á sjö ára og sex mánaða dóm yfir manninum sem réðist á Ingunni Björnsdóttur, dósent í lyfjafræði, í Oslóarháskóla í fyrra.

Stofnandi Telegram ákærður fyrir glæpastarfsemi á miðlinum
Pavel Durov, annar stofnenda samfélagsmiðilsins Telegram hefur verið ákærður í Frakklandi fyrir að grípa ekki til aðgerða til að koma í veg fyrir glæpastarfsemi á miðlinum.

Árásarmaður Ingunnar iðrast einskis
Nemandi sem stakk Ingunni Björnsdóttur í Oslóarháskóla í fyrra sagðist einskis iðrast þegar hann kom fyrir dóm í gær. Honum var sérstaklega uppsigað við Ingunni og vildi ryðja henni úr vegi tímabundið svo hann gæti haldið námi sínu áfram.

Braut gegn hundruðum stúlkna í 20 ríkjum
Muhammad Zain Ul Abideen Rasheed hefur verið dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir að hafa kúgað hundruð stúlkna út um allan heim til þess að sýna sig í kynferðislegum athöfnum á netinu.

Játar að hafa stungið þrjá til bana og sært fleiri í Solingen
Sýrlenskur karlmaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa stungið þrjá til bana og sært átta aðra, þar af fjóra alvarlega á bæjarhátíð í þýsku borginni Solingen á föstudagskvöld.