Neytendur
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 72 ›
Mjólk í drykknum en ekki merkingu Drykkurinn HELL ICE Coffee Coconut hefur verið innkallaður. Mjólk var ekki merkt sem innihaldsefni, en er eitt þeirra. Neytendur 9.10.2023 13:23
„Rauð ljós“ á íbúðamarkaði og þörf á 5.000 nýjum íbúðum árlega Byggja þarf 5.000 íbúðir árlega á næstu árum miðað við íbúafjölgun á landinu, sem má meðal annars rekja til aukins aðflutnings erlends vinnuafls. Þá fækkar íbúum í hverri íbúð samfara öldrun þjóðarinnar. Viðskipti innlent 9.10.2023 06:20
Stefna á verðhækkun hjá Netflix Forsvarsmenn streymisveitunnar Netflix stefna á að hækka áskriftaverð á næstunni. Verkfalli handritshöfunda lauk nýverið og stendur til að bíða þar til verkfalli leikara lýkur einnig, áður en verðhækkanirnar verða tilkynntar en verið er að skoða að hækka verðið víða um heim. Fyrst stendur þó til að hækka verðið í Norður-Ameríku. Viðskipti erlent 4.10.2023 09:11
Milljarðar í óþarfa kostnað fyrir neytendur Tryggja þarf aukið eftirlit á bankamarkaði til að tryggja aukna samkeppni. Þetta kom fram í morgun á málþingi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna. Formaður Neytendasamtakanna segir innlenda greiðslumiðlun mikilvæga í þessu tilliti. Neytendur 3.10.2023 13:07
Bein útsending: Íslenska bankakerfið - okur eða almannahagur? ASÍ, BSRB, BHM og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna sem stendur milli klukkan 8:30 og 10:30. Viðskipti innlent 3.10.2023 08:00
Ekki lengur hægt að kaupa bensín á Litlu kaffistofunni Hætt hefur verið að selja bensín á Litlu kaffistofunni á Sandskeiði. Rúmlega 63 ára sögu bensínsölu þar er því lokið. Neytendur 2.10.2023 08:13
Fimmtán þúsund kall fyrir að svindla sér í strætó Nýjar reglur Strætó bs. um fargjaldaálag tóku gildi í mánuðinum. Í þeim felst fargjaldaálag upp á allt að 15 þúsund krónur, sem leggja má á farþega sem ekki geta sýnt fram á að hafa greitt fyrir strætóferðina. Innlent 28.9.2023 19:30
Vivaldi bítur í Eplið Vafrinn Vivaldi er nú aðgengilegur notendum snjalltækja Apple. Búið er að gera útgáfu af vafranum fyrir iOS stýrikerfið sem hægt er að nálgast í App Store. Viðskipti innlent 28.9.2023 15:13
Breytingarnar á gjaldskyldu og gjaldskrá taka gildi um helgina Breytingar á gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða Reykjavíkurborgar taka gildi núna um mánaðamótin. Neytendur 28.9.2023 13:36
Verðbólgan mælist átta prósent Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2023 er 599,9 stig og hækkar um 0,35 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkar um 0,18 prósent. Viðskipti innlent 28.9.2023 10:01
Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 5,3 prósent Kaupsamningum um íbúðarhúsnæði fækkaði í júlí frá júní, úr 709 í 615. Það sem af er ári hafa 614 samningar verið gerðir í hverjum mánuði, samanborið við 825 samninga á mánuði að meðaltali fyrstu sjö mánuði ársins í fyrra. Viðskipti innlent 27.9.2023 06:42
Snyrtifræðingar vilja reglugerð frá ráðuneytinu Félag íslenskra snyrtifræðinga gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð af því tagi sem lýst er í sjónvarpsþættinum Kompási á Stöð 2 þar sem ófaglærðir sinna fegrunarmeðferðum með fylliefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Innlent 25.9.2023 22:55
Verð lyfseðilsskyldra lyfja hækkar um mánaðamót Verð lyfseðilsskyldra lyfja mun hækka um næstu mánaðamót. Smásöluálagnin hækkar um 3,6 prósent miðað við heildarsmásöluálagningu árið 2022. Neytendur 25.9.2023 18:09
Hætta á matareitrun: Innkalla ostasósu Aðföng hafa ákveðið að innkalla ostasósuna „Santa Maria Dip Nacho Cheese Style“ í 250 gramma dósum. Ástæða innköllunarinnar er að í tiltekinni framleiðslulotu greindist baktería sem valdið getur matareitrun. Neytendur 24.9.2023 10:50
Símaverinu ekki alveg lokað en forstjóri boðar breytta tíma Domino's hefur ákveðið að færa pizzapantanir nánast alfarið yfir á netið. Forstjóri fyrirtækisins segir símaverið ekki alveg á bak og burt en líkir nýrri nálgun við pöntun á flugferðum. Enn verði símaþjónusta í boði fyrir þá sem hana þurfa sérstaklega. Viðskipti innlent 23.9.2023 10:49
Ís úr vél að vetri til heyrir brátt sögunni til á Siglufirði Óðum steðjar að sá dagur að Siglfirðingar og nærsveitungar geti ekki keypt sér ís úr vél eða bland í poka úr nammibar. Videoval, sögufræg sjoppa í bænum, er til sölu en verður lokað um áramótin finnist ekki nýir rekstraraðilar. Viðskipti innlent 21.9.2023 16:07
Vilhjálmur segir Seðlabankann búinn að skíta í buxurnar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifar pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann beinir sjónum að Seðlabankanum og stöðugum stýrivaxtahækkunum bankans. Vilhjálmur er venju fremur ómyrkur í máli og er þá mikið sagt. Innlent 21.9.2023 14:11
Vildi ekki borga 25 þúsund og situr uppi með 405 þúsund króna reikning Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða bílaumboðinu BL um 55 þúsund krónur auk dráttarvaxta og málskostnað upp á 350 þúsund krónur. Maðurinn neitaði að borga 25 þúsund króna reikning vegna greiningar á bilun. Innlent 19.9.2023 10:24
Eyða hundruðum þúsunda í kynjaveislur Dæmi eru um að fólk eyði hundruðum þúsunda í skreytingar og annan aðbúnað fyrir kynjaveislur, að sögn eiganda verslunar með partívörur. Ein íburðarmesta kynjaveisla sem haldin hefur verið hér á landi vakti gríðarlega athygli í gær. Lífið 18.9.2023 20:36
Edda veitti viðskiptavinum ekki fullnægjandi upplýsingar Edda útgáfa hf. braut gegn ákvæðum laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með því að upplýsa ekki viðskiptavini um ýmsa skilmála, hvorki í fjarsölu né við sölu á netinu. Neytendur 13.9.2023 11:11
Enn sektar Neytendastofa vegna fullyrðinga um CBD-olíu Neytendastofa hefur ákveðið að sekta Adotta CBD Reykjavík ehf. um 100 þúsund króna vegna brota í tengslum við fullyrðingar félagsins um lyfjavirkni snyrtivara sem innihalda CBD og eru seldar undir vörumerkinu „CBD RVK“. Neytendur 12.9.2023 12:14
Ekki vöruð við þúsund króna gjaldi fyrir hraðbankaúttekt Þúsund króna úttektargjald er lagt á viðskiptavini bankanna þegar þeir taka út fjárhæðir á kreditkortum sínum. Viðskiptavinir eru ekki varaðir við fyrir fram og furðar viðskiptavinur Landsbankans sig á því. Landsbankinn segir að ómögulegt að birta nákvæman kostnað við úttektir með kreditkortum þar sem gjaldskrár banka séu misjafnar. Engin viðvörun er heldur gefin í hraðbönkum Íslandsbanka og Arion banka. Neytendur 12.9.2023 06:46
Þegar Íslendingar fengu alvöru stórmarkað Mikligarður spilar stórt hlutverk í þróun matvörumarkaðs á Íslandi en þegar verslunin opnaði í Holtagörðum í Sundahverfi árið 1983 var hún sú stærsta hér á landi, eða tæpir átta þúsund fermetrar. Þar var boðið var upp á ýmsar nýjungar sem ekki höfðu sést áður í verslunum á Íslandi. Lífið 10.9.2023 09:00
Fá sekt vegna fullyrðinga um CBD-olíuna Sprota Neytendastofa hefur ákveðið að sekta Healing Iceland ehf. um 100 þúsund krónur vegna fullyrðinga um lyfjavirkni snyrtivara sem innihalda CBD og eru seldar á vefsíðu félagsins undir vörumerkinu „Sproti“. Brotin eru metin alvarleg auk þess að stríða gegn góðum viðskiptaháttum. Neytendur 8.9.2023 10:54
Skipafélögin rúin trausti og Innnes skoðar að sækja bætur Ölgerðin ætlar að sækja bætur vegna samráðs Samskipa og Eimskipa. Fleiri félög kanna nú réttarstöðu sína og möguleika á skaðabótum. Forstjóri Innness segir skipafélögin tvö rúin trausti og sektarfjárhæð Samskipa senda skýr skilaboð. Viðskipti innlent 6.9.2023 20:58
Skoða að sækja bætur vegna samráðs skipafélaganna Ölgerðin skoðar nú að sækja skaðabætur vegna samráðs skipafélagannaSamskipa og Eimskips. Forstjóri segir málið reiðarslag og að samráðið hafi valdið félaginu og neytendum verulegum skaða og stórfelldu fjárhagslegu tjóni. Viðskipti innlent 6.9.2023 12:52
„Er matur raunverulega dýr á Íslandi?“ spyr forstjóri Haga „Er matur raunverulega dýr á Íslandi?“ spyr Finnur Oddsson, forstjóri Haga, í viðtali við Morgunblaðið. Hann segir að færa megi rök fyrir því að það sé ódýrara fyrir „heimafólk“ að kaupa í matinn hérlendis en á flestum stöðum í Evrópu, að minnsta kosti hlutfallslega miðað við útgjöld eða laun. Viðskipti innlent 6.9.2023 06:51
Stjórnendur farið langt yfir strikið Formaður Neytendasamtakanna telur samráð Samskipa og Eimskip hafa skilað sér til neytenda með hærra vöruverði. Hann segir það sorglegt að stjórnendur fyrirtækjanna tveggja hafi hagað sér með þessum hætti. Neytendur 2.9.2023 11:05
Arðsemi fyrst núna að nálgast arðsemi norrænna banka Bankastjóri Arion banka segir að bankinn fagni skýrslu menningar- og viðskiptaráðherra. Arðsemi stóru bankanna þriggja sé ekki of mikil. Arðsemi eigin fjár Arion banka var 14,5 prósent á fyrri helmingi ársins. Viðskipti innlent 30.8.2023 16:50
„Okkur finnst þetta koma ágætlega út fyrir íslenskt bankakerfi“ Bankastjóri Landsbankans segir nýútkomna skýrslu menningar- og viðskiptaráðherra um viðskiptabankana koma ágætlega út fyrir íslenskt bankakerfi. Neytendur 30.8.2023 12:13