Handbolti
290 291 292 293 294 295 … 295 ›
Erfiður leikur við Króata í dag Íslenska landsliðið á mjög erfiðan leik fyrir höndum gegn Króötum í milliriðli 2 í Gallen í dag klukkan 17. Leikur Serba og Rússa er þegar hafinn og klukkan 19:15 eigast við Norðmenn og Danir. Í 1. milliriðlinum mætast Slóvenar og Þjóðverjar klukkan 14:15, þá Pólverjar og Frakkar klukkan 16:45 og Úkraína og Spánn keppa klukkan 19:15. Sport 1.2.2006 15:01
Gríðarlegt áfall fyrir landsliðið Hinn harðskeytti Alexander Petersson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, kjálkabrotnaði í leiknum við Rússa í dag og verður því ekki meira með liðinu í keppninni. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir íslenska liðið, því Petersson er algjör lykilmaður í liðinu - ekki síst í varnarleiknum. Sport 31.1.2006 22:55
Serbar unnu Norðmenn Lið Serbíu og Svartfjallalands lagði Norðmenn naumlega að velli í kvöld í milliriðli okkar Íslendinga, 26-25. Að loknum fyrsta deginum er íslenska liðið í efsta sæti með fimm stig, Rússar í öðru með fjögur, eins og Króatar, Danir hafa þrjú, Serbar tvö og Norðmenn eru enn án stiga. Sport 31.1.2006 21:18
Króatar lögðu Dani Króatar unnu nauman sigur á dönum í 2. milliriðli EM í handbolta nú undir kvöldið 31-30, eftir að hafa verið yfir 15-14 í hálfleik. Króatar hafa því hlotið 4 stig í riðlinum, en Danir hafa þrjú. Íslenska liðið er á toppi riðilsins með 5 stig. Þá sigruðu Frakkar Slóvena í dag 34-30. Sport 31.1.2006 18:47
Þjóðverjar völtuðu yfir Úkraínu Þjóðverjar voru ekki í vandræðum með Úkraínumenn í 1. milliriðlinum á EM í handbolta í dag og sigruðu 36-22 eftir að hafa verið með aðeins tveggja marka forystu í leikhléi. Florian Kehrmann var markahæstur hjá Þjóðverjum með 9 mörk og Henning Fritz varði 21 skot í markinu. Sport 31.1.2006 16:44
Glæsilegur sigur Íslendinga á Rússum Íslenska landsliðið í handbolta vann glæsilegan sigur á Rússum í Sviss í dag 34-32, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-15. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 11 mörk fyrir íslenska liðið og Ólafur Stefánsson gerði 8 mörk. Sport 31.1.2006 16:14
Íslendingar yfir gegn Rússum í hálfleik Íslenska landsliðið í handknattleik hefur yfir 17-15 gegn Rússum þegar flautað hefur verið til leikhlés. Ólafur Stefánsson hefur skorað 6 mörk, Guðjón Valur 5 og Snorri Steinn er með 5 mörk, þar af eitt úr vítakasti. Sport 31.1.2006 15:27
Ásgeir Örn í landsliðshópinn Ásgeir Örn Hallgrímsson, leikmaður Lemgo í Þýskalandi, hefur verið kallaður inn í íslanska landsliðshópinn í stað Vilhjálms Halldórssonar og er væntanlegur á æfingu liðsins í kvöld. Sport 30.1.2006 13:40
Danir efstir í riðlinum Danir tryggðu sér í kvöld efsta sætið í C-riðlinum á EM í Sviss þegar þeir lögðu Serba og Svartfellinga með 33 mörkum gegn 29. Danir hirtu með því efsta sæti riðilsins og fara áfram í milliriðil með okkur Íslendingum með þrjú stig í farteskinu líkt og íslenska liðið. Serbarnir fara einnig áfram, en án stiga. Sport 29.1.2006 21:05
Við vildum vinna þennan leik Viggó Sigurðsson var nokkuð vonsvikinn eftir tapið gegn Ungverjum í lokaleik liðsins í C-riðli í dag og sagðist hafa vonast eftir að klára riðilinn með stæl, þó úrslit leiksins í dag skipti engu máli upp á framhaldið. Sport 29.1.2006 20:58
Línur að skýrast fyrir milliriðilinn Íslenska landsliðið í handknattleik mun leika með Serbum, Dönum, Norðmönnum, Rússum og Króötum í milliriðlinum á EM í Sviss, en keppni í riðlinum hefst á þriðjudag. Sport 29.1.2006 20:04
Ungverjar hafa yfir í hálfleik Íslenska landsliðið er undir 16-14 gegn Ungverjum í hálfleik í lokaleik liðanna í C-riðli EM í Sviss. Viggó Sigurðsson teflir fram sínu sterkasta liði í leiknum, en leikur íslenska liðsins hefur ekki verið mjög sannfærandi framan af. Snorri Steinn Guðjónsson hefur skorað fjögur mörk fyrir Ísland. Sport 29.1.2006 17:37
Ólafur Stefánsson hvílir Ólafur Stefánsson fær að hvíla sig í leiknum við Ungverja sem er að hefjast núna klukkan 17, en markvörðurinn Roland Eradze kemur inn í mark íslenska liðsins í fyrsta sinn á mótinu. Eradze hefur átt við meiðsli að stríða á öxl, en hefur náð sér nógu mikið til að spila í dag. Sport 29.1.2006 16:49
Frakkar sigruðu Þjóðverja Frakkar lögðu Þjóðverja 27-25 í B-riðlinum á EM í Sviss í dag. Frakkar fara því með tvö stig með sér í milliriðil, en Þjóðverjar eitt. Fyrr í dag sigruðu Slóvenar svo Pólverja 33-29 í A-riðlinum og fara með með fjögur stig í milliriðil. Sport 29.1.2006 16:44
Hentar okkur illa að spila við Íslendinga Ulrik Wibek, landsliðsþjálfari Dana í handbolta, sagði í samtali við danska blaðið BT í gær að hann væri ekki alveg viss hvort hann ætti að vera svekktur eða ánægður með jafnteflið við íslenska liðið á EM í Sviss í gær. Sport 28.1.2006 17:41
Spánverjar sigruðu Frakka Spánverjar sigruðu Frakka 29-26 í B-riðli EM í Sviss í dag og eru því komnir áfram í milliriðla. Sigur heimsmeistraranna var í raun öruggari en lokatölurnar gefa til kynna, því liðið náði mest 11 marka forystu í leiknum og hafði undirtökin allan tíman. Sport 28.1.2006 16:48
Þjóðverjar áfram Landslið Þjóðverja hefur tryggt sér sæti í milliriðlum á Evrópumótinu í Sviss eftir að liðið lagði Slóvakíu 31-26 í fyrsta leik dagsins, en þjóðirnar leika í B-riðli. Nú standa yfir leikir Sviss og Póllands og Spánverja og Frakka. Sport 28.1.2006 15:10
Viggó mjög ánægður Hann var misjafn tóninn í mönnum hjá íslenska landsliðinu í handbolta í kvöld eftir að liðið gerði jafntefli við Dani 28-28 í C-riðli. Stigið þýðir að Ísland er komið áfram í milliriðla og Viggó Sigurðsson var afar kátur með niðurstöðuna, en Snorri Steinn Guðjónsson var ekki jafn sáttur. Sport 27.1.2006 22:28
Jafnt hjá Íslendingum og Dönum Íslendingar og Danir gerðu jafntefli 28-28 í leik sínum í C-riðli EM í Sviss í kvöld. Íslenska liðið fékk tækifæri til að gera út um leikinn í síðustu sókn leiksins en það tókst ekki og niðurstaðan því jafntefli. Íslenska liðið hafði frumkvæðið lengst af leik, en getur ef til vill vel við unað með jafnteflið þar sem liðið var án Ólafs Stefánssonar og fékk aðeins eitt mark frá Guðjóni Val Sigurðssyni í kvöld. Sport 27.1.2006 20:47
Ísland yfir í hálfleik Íslendingar hafa yfir 15-14 gegn Dönum í leik þjóðanna sem nú stendur yfir í C-riðli EM í Sviss. Snorri Steinn Guðjónsson hefur skorað fimm mörk fyrir íslenska liðið, Arnór Atlason er með fjögur og Sigfús Sigurðsson hefur skorað þrjú. Þá hefur Birkir Ívar varið vel í markinu og er kominn með yfir tíu varin skot í hálfleiknum. Sport 27.1.2006 19:53
Serbar lögðu Ungverja Serbar hlutu sín fyrstu stig í C-riðlinum á EM í Sviss í kvöld þegar liðið lagði Ungverja að velli 29-24. Serbar hafa því hlotið tvö stig í riðlinum eins og Íslendingar og Danir, en frændþjóðirnar mætast nú klukkan 19:15. Ungverjar eru á botni riðilsins með ekkert stig og mæta íslenska liðinu á sunnudag. Sport 27.1.2006 18:28
Ólafur verður með á móti Ungverjum Þær fréttir voru að berast úr herbúðum íslenska landsliðsins í Sviss að Ólafur Stefánsson er ekki með brákuð rifbein eins og óttast var og mun hann því verða með á móti Ungverjum í síðasta leik íslenska liðsins í C-riðli á sunnudag. Ólafur er nokkuð þjáður af meiðslunum, en ætlar að reyna allt sem hann getur til að spila. Sport 27.1.2006 15:20
Ólafur Stefánsson ekki með gegn Dönum Ólafur Stefánsson getur ekki leikið með íslenska landsliðinu í gegn Dönum á EM í Sviss í kvöld en óttast er að hann sé með brákað rifbein eftir átökin við Serbana í gær. Svo gæti farið að Ólafur yrði ekki meira með í keppninni. Sport 27.1.2006 12:17
Danir sigruðu Ungverja Danir lögðu Ungverja á EM í handbolta í kvöld 29-25, en liðin eru með okkur Íslendingum í C-riðli. Þá lögðu Slóvenar Svisslendinga 29-25 í A-riðli og Rússar lögðu Norðmenn 24-21 í D-riðlinum. Sport 26.1.2006 21:48
Viggó kátur með sína menn Landsliðsþálfarinn Viggó Sigurðsson var kampakátur með sína menn í kvöld eftir að íslenska landsliðið bar sigurorð af Serbum í fyrsta leik á EM. Viggó var fyrst og fremst ánægður með leik liðsins í fyrri hálfleik, en sagðist hafa búist við grófum leik og sú hafi orðið raunin. Sport 26.1.2006 20:25
Úrslit dagsins Nokkrum leikjum er þegar lokið á EM í handbolta í dag. Þjóðverjar og Spánverjar gerðu jafntefli 31-31 í opnunarleik mótsins, en liðin keppa í B-riðli. Í öðrum leik riðilsins burstuðu Frakkar Slóvaka 35-21. Sport 26.1.2006 18:56
Góður sigur á Serbum í fyrsta leik Íslenska landsliðið í handbolta vann frækinn sigur á Serbum í fyrsta leik sínum í C-riðli Evrópumótsins í handbolta í kvöld 36-31, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-11. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með tíu mörk, þar af þrjú úr vítaköstum. Sport 26.1.2006 18:38
Ísland yfir í hálfleik Íslenska landsliðið í handknattleik hefur yfir 16-11 í hálfleik gegn Serbum í fyrsta leik sínum á EM í handbolta í Sviss. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa skoraði 5 mörk hvor. Sport 26.1.2006 17:40
Jafnt hjá Spánverjum og Þjóðverjum Opnunarleikurinn á EM í Sviss var æsispennandi en honum lauk með jafntefli Spánverja og Þjóðverja 31-31 í B-riðli. Spánverjar höfðu raunar ágæta möguleika að ná öllum stigunum úr leiknum á síðustu mínútunni, en sterk vörn Þjóðverja hélt í lokin. Klukkan 17 eigast svo Íslendingar og Serbar við í C-riðli. Sport 26.1.2006 16:23
Svissneskir dómarar dæma í kvöld Dómarar í leik Íslands og Serbíu síðar í dag koma frá Sviss og heita Falcone og Ratz en eftirlitsmennirnir koma frá Þýskalandi og Ísrael. Íslensku dómararnir Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson verða einnig í eldlínunni í dag en þeir dæma leik Frakka og Slóvaka í Basel. Sport 26.1.2006 15:36