Þorsteinn Pálsson

Fréttamynd

Leikreglukreppa

Nýir þingmenn hafa síðustu daga átt á kost á að láta ljós sitt skína. Illugi Gunnarsson notaði tækifærið til þess að brýna iðnaðarráðherra á hugmyndum um breytt lagaumhverfi í orkubúskapnum. Þar má enn finna leifar gamallar ríkisforræðishyggju sem stríðir gegn nútímaviðhorfum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tilboð um réttlæti

Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um verulegan samdrátt í þorskveiði er óneitanlega mikið áfall með margvíslegum áhrifum. Þau snerta bæði einstaklinga, fyrirtæki og þjóðarbúskapinn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þróun og ábyrgð

Það er ósmátt áfall fyrir lítið byggðarlag þegar burðar­ás atvinnulífsins leggur upp laupana. Í húfi er ekki aðeins atvinna fjölda fólks. Eignir þess eru einnig í uppnámi. Lokun sjávarútvegsfyrirtækisins Kambs á Flateyri er að því leyti meiri tíðindi en önnur af svipuðum toga.

Fastir pennar
Fréttamynd

Traust Geirs

Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin grænt framboð eru sigurvegarar kosninganna. Segja má að í því séu fógin nokkuð þverstæðukennd skilaboð frá kjósendum. Kaldi veruleikinn er hins vegar sá að ríkisstjórnin hélt velli og stjórnarandstöðunni mistókst ætlunarverk sitt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mál málanna

Óréttmætt er að halda því fram að umræður um menntastefnu og rannsóknir hafi með öllu verið skugga megin í kosningabaráttunni. Þær hafa eigi að síður verið minni en efni standa til. Hvers vegna þarf að ræða þessi viðfangsefni öðrum fremur?

Fastir pennar
Fréttamynd

Hlutverk forsetans

Nú í aðdraganda alþingiskosninga hafa sést og heyrst bollaleggingar um hugsanleg áhrif forseta Íslands, ef til myndunar nýrrar ríkisstjórnar kemur að þeim loknum. Sú umræða hefur vakið upp það álitaefni hvort hætta geti verið á að forsetinn beiti sér fyrir niðurstöðu öndvert við lýðræðislegan vilja kjósenda.

Fastir pennar
Fréttamynd

Stjórnarsamstarf

Utanríkisráðherra hefur í þessari viku með formlegum hætti staðfest pólitískar viljayfirlýsingar með ríkis­stjórnum Noregs og Danmerkur um varnar- og öryggissamstarf á Norður-Atlantshafi á friðartímum. Þessar yfirlýsingar eru í fullu samræmi við þau áform sem ríkisstjórnin kynnti um aukið samstarf við þessar þjóðir og fleiri þegar varnarlið Bandaríkjanna fór.

Fastir pennar
Fréttamynd

Það er stórt orð Hákot

í janúar árið 2005 birti Fréttablaðið forsíðufrásögn með þriggja dálka fyrirsögn. Þar var greint frá fréttatilkynningu Baugs um að skattayfirvöld hefðu endurálagt skatta á fyrirtækið. Endurálagningin nam 464 milljónum króna. Jafnframt var greint frá yfirlýsingu stjórnarformanns Baugs um að skjóta ákvörðuninni til yfirskattanefndar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hafnarfjarðaráhrifin

Ótvírætt var skýr vilji til þess að hægja á ferðinni í þessum efnum. Nú hefur það verið gert. Það verkefni er frá. Menn þurfa einfaldlega ekki lengur að kjósa Vinstri grænt til þess að ná því fram. Þingkosningarnar snúast að sama skapi ekki þar um eins og áður stefndi í. Hafnfirðingar sáu um það.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ólík sýn í nokkrum takti

Formenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar sáu Ísland í ólíku ljósi í opnunarræðum sínum á landsfundum flokkanna sem nú standa. Þrátt fyrir margs konar ágreining slóu þeir á ýmsa strengi í nokkrum takti um sum stór viðfangsefni sem við blasa.

Fastir pennar
Fréttamynd

Enginn Þrándur í Götu

í dag komast formleg samskipti Færeyinga og Íslendinga á eins konar hástig. Opna á í Þórshöfn skrifstofu aðalræðismanns Íslands í Færeyjum. Að því leyti markar þessi dagur þau tímamót í færeyskri stjórnmálasögu að fyrsti útsendi erlendi sendierindrekinn sest nú þar að.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þó ekki flórsköfur

Sú var tíð að tollskráin mælti fyrir um sérstakan toll á skóflur en þó ekki flórsköfur. Á sama hátt voru skýr ákvæði um toll á nagla en þó ekki hóffjaðrir. Þetta þótti sjálfsagt og eðlilegt. Tollskráin var reyndar fleytifull af mismunandi gildismati sambærilegra hluta. Skattalögin voru sama marki brennd.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hlutlaus niðurstaða

Sú breyting á stjórnarskrá vegna náttúruauðlinda, sem ríkisstjórnin hefur nú kynnt, er að formi til dæmi um ámælisverð vinnubrögð. Efnislega sýnist hún hins vegar fela í sér hlutlausa niðurstöðu. Þar af leiðandi ætti hún ekki að vera tilefni mikils ágreinings.

Fastir pennar
Fréttamynd

Breiðara sjónarhorn

Átökin um fiskveiðistjórnunina sem stóðu allan síðasta áratug liðinnar aldar voru einhver þau römmustu sem íslensk stjórnmálasaga geymir. Þau snerust vissulega um grundvallaratriði í pólitík. Að lokum sammæltust menn um að gera tilraun til að ná sáttum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Einstaklingsfrelsi og löggæsla

stundum er tíðarandinn þannig að stjórnmálamenn telja yfirborðsmennsku, upphrópanir og útúrsnúninga vera þá eiginleika sem best þjóni því markmiði að ná athygli kjósenda. Þessi hlið stjórnmálabaráttunnar er bæði gömul og ný. Að sama skapi er andóf gegn henni ævinlega jafngilt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Endurtekur sagan sig?

Stjórnmálaflokkarnir halda allir landsfundi eða flokksþing í aðdraganda kosninganna í vor. Framsóknarflokkurinn hefur átt í vök að verjast umfram aðra flokka undanfarin misseri. Í því ljósi má segja að flokksþingið nú hafi með ákveðnum hætti verið honum mikilvægara en öðrum flokkum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vinstri grænt sækir á

Fram til þessa hefur mynd komandi kosningabaráttu um margt verið óskýr. Fleiri pólitísk spurningamerki hafa verið á lofti en oftast áður á sama tíma í aðdraganda kosninga.

Fastir pennar
Fréttamynd

Forsetalóðin

Í athyglisverðu viðtali á Stöð 2 liðinn sunnudag tók forseti Íslands af skarið um sýn hans frá tröppum Bessastaða. Þar koma þrjú atriði einkum til skoðunar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Líkur á stjórnfestu minnka

Margt bendir til að flokkakerfið sé að taka verulegum breytingum. Í áratugi hafði Framsóknarflokkurinn þá lykilstöðu að geta að öðru jöfnu valið hvort myndaðar voru ríkisstjórnir til vinstri eða hægri. Nýsköpunin og Viðreisnin voru undantekningar þar frá. Nú sýnist Samfylkingin vera að taka þetta rými á vettvangi stjórnmálaátakanna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvers vegna?

Einhverra hluta vegna hafa stjórnarflokkarnir sammælst um að rjúfa þá sæmilegu sátt sem verið hefur um Ríkisútvarpið. Ríkisstjórnin hefur misboðið þeim sem vilja standa vörð um menningarlegt útvarp á vegum ríkisins. Um leið hefur hún gefið hinum langt nef sem vilja tryggja jafnræði á almennum markaði útvarpsstarfsemi.

Fastir pennar
Fréttamynd

„Himinbornar systur“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskólans, rituðu í gær undir samkomulag um menntun og rannsóknir. Það markar nýtt upphaf í þróun vísindarannsókna og háskólakennslu. Í því felst einnig veigamesta pólitíska ákvörðun kjörtímabilsins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Eignarnámstvímæli

Nýlega veittu samtök ungra sjálfstæðismanna rithöfundinum Andra Snæ Magnasyni frelsisskjöld Kjartans Gunnarssonar fyrir þá skuld að hafa beitt hugmyndafræði frjálshyggju í þágu náttúruverndar. Rétt er að stór hluti bókar verðlaunahafans, Draumalandið, á dýpri rætur í frjálslyndi en stjórnlyndi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kreppan með krónuna

Landsmenn hafa nú heilsað nýju ári. Eitt viðfangsefni blasir við í upphafi þess sem ætla má að sé mikilvægara en flest önnur þegar til lengri tíma er litið. Það er kreppan með krónuna. Við þurfum bærilega stöðugan gjaldmiðil rétt eins og aðrar þjóðir. Krónan hefur ekki staðist þær kröfur sem rétt er að gera í þeim efnum.

Fastir pennar
Fréttamynd

„Hika ei við það mark sem vel er sett“

Það ár sem sem við dagslok hverfur í rás aldanna geymir eins og önnur sína sögu. Það hefur bæði verið tími framfara og margvíslegra breytinga. Sumt af því sem gerðist mun lifa og hafa áhrif langt fram á veg. Annað verður skammlíf minning eins og gerist og gengur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Einkakostun opinberra verkefna

Á undanförnum árum hefur einkakostun ýmiss konar opinberra verkefna rutt sér mjög til rúms. Það er eðlileg þróun og alþekkt með öðrum þjóðum. Engin ástæða er til að ætla að nokkur hlutur hafi gerst í þeim efnum sem ekki samrýmist góðum stjórnsýsluháttum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ábyrg afstaða

Mála sannast er að gildi sjávarútvegs fyrir þjóðarbúskapinn er ekki það sama og áður. Eigi að síður skiptir hann enn sköpum og er bakbein allrar verðmætasköpunar í landinu. Alþjóðleg hagsmunagæsla á því sviði hefur í því ljósi engu minni þýðingu en fyrr.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvað svo?

Í huga manna hefur Háskóli Íslands löngum tengst sjálfstæði og fullveldi landsins. Í byrjun síðustu aldar litu margir svo á að sýnileg menningarleg reisn væri forsenda þess að vænta mætti alþjóðlegrar viðurkenningar á stjórnskipulegum rétti fámennrar þjóðar sem gerði tilkall til að vera engum öðrum háð.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lipurð eða þrákelkni

Ef eitthvað er að marka málflutning stjórnarandstöðuflokkanna má ætla að þeir hafi endaskipti á þessari löggjöf fái þeir til þess styrk. Reynslan sýnir einnig að ýmis álitamál verður oft og einatt að útkljá fyrir dómstólum þegar málefnalegum sjónarmiðum er vikið til hliðar við þinglega meðferð.

Fastir pennar
Fréttamynd

Forgjöf

samstarf núverandi ríkisstjórnarflokka í þrjú kjörtímabil hefur verið farsælt. Það hefur leitt til framfara og bættra lífskjara. Með nokkrum sanni má segja að fyrir utan átökin um náttúruvernd hafi aðeins stuðningur við Íraksstríðið og svo stríð ríkisstjórnarflokkanna sjálfra gegn frjálsum fjölmiðlum reynst þeim alvarlega mótdrægt á svo löngum tíma. Það er í raun ríkur árangur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Raup eða alvara?

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins, greinir frá því í viðtali við þetta blað liðinn miðvikudag að hann hafi á þeim tíma er hann gegndi þessum embættum báðum talið meira en litlar líkur á að fulltrúar bandarísku leyniþjónustunnar CIA hefðu haft aðgang að sérstöku öryggisherbergi í utanríkisráðuneytinu til þess að stunda njósnir.

Fastir pennar