Golfvellir
Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu
Kylfingar geta nú nálgast upplýsingar um lausa rástíma á golfvöllum á aðgengilegri hátt en áður hefur verið hægt á nýrri vefsíðu sem fór í loftið í byrjun vikunnar. Forritari með golfáhuga bjó síðuna til fyrir sig og félaga sína í huga en ákvað að opna hana öllum.
Fiskikóngurinn fékk golfkúlu í hausinn
Kristján Berg, sem betur er þekkur sem sjálfur Fiskikóngurinn, fékk golfkúlu í hausinn. En hann er hvergi nærri af baki dottinn, ber sig vel og er hvergi nærri hættur í golfi.
Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum
Kálfatjarnarvöllur stendur við kirkjujörðina Kálfatjörn í um 6,5 km fjarlægð frá Vogum. Um er að ræða fallegan 9 holu golfvöll með alla helstu þjónustu sem boðið er upp á hjá sambærilegum völlum. Völlurinn stendur við þjóðveg 421, Vatnsleysustrandarveg, sem tengir saman Kúagerði og Voga.
Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru
Golfvöllurinn við Hellishóla, sem er staðsettur í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Hvolsvelli, er krefjandi og skemmtilegur níu holu völlur umkringdur stórkostlegri náttúru þar sem árnar Þverá og Grjótá renna í gegnum hann. Völlurinn er rekinn af Golfklúbbnum Þverá sem er félagi í Golfsambandi Íslands.
Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga
Golfklúbbur Skagastrandar var stofnaður árið 1985 en Háagerðisvöllur var tekinn í notkun vorið 1991. Völlurinn, sem er 4 km norðan við Skagaströnd, er 9 holur og par 36 (72). Hann hentar byrjendum jafnt sem reyndari kylfingum. Hönnuður vallarins er Hannes Þorsteinsson.
Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð
Haukadalsvöllur hefur þá sérstöðu að vera staðsettur nærri hverasvæðinu í Haukadal og má stundum sjá Strokk og Geysir blása úr sér á meðan spili stendur. Völlurinn, sem er 9 holu völlur, var opnaður sumarið 2006 og ber hver hola nafn einhvers af þeim hverum sem finnast á hverasvæðinu.
Þrefaldur meistari stefnir á atvinnumennsku: „Langar að fara á LPGA í Bandaríkjunum“
Hulda Clara Gestsdóttir átti sannkallað draumasumar. Bráðlega heldur hún út á síðasta árið í háskóla, eftir það er stefnan sett á atvinnumennsku.
Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís
Golfklúbbur Vestmannaeyja er þriðji elsti golfklúbbur landsins en hann var stofnaður árið 1938. Upphaflega var völlurinn 6 holur en stækkaði seinna í 9 holur og árið 1992 var honum svo breytt í glæsilegan 18 holu völl.
Stigameistarinn ræðst í keppni um bikar sem var hannaður í Japan
Um helgina fæst úr því skorið hverjir standa uppi sem stigameistarar Golfsambandsins árið 2024 þegar keppni lýkur í Hvaleyrarbikarnum í Hafnarfirði á sunnudaginn. Hvaleyrarbikarinn fer fram hjá Keili og er fimmta og síðasta stigamót sumarsins. Keppni hófst í morgun og eru leiknar 54 holur á þremur dögum.
Skemmtilegur golfvöllur í einstaklega fallegu umhverfi
Húsafellsvöllur er af mörgum talin vera ein af földum perlum Vesturlands en hann er 9 holu völlur sem liðast um fjölbreytt landslag meðfram bökkum Kaldár og Stuttár í jaðri sumarhúsasvæðisins. Fagurgrænn birkiskógurinn, Eiríksjökull, Langjökull, Okið, Hafursfell og Strútur eru glæsilegir á að horfa og mynda til samans einstaklega fallegt umhverfi sem lætur engan ósnortinn.
Ein af földu perlum Vestfjarða
Golfvöllurinn í Bolungarvík heitir Syðridalsvöllur og er staðsettur rétt fyrir utan þéttbýliskjarnann í Bolungarvík. Það er því stutt að fara á eina af földu perlum Vestfjarða.
Ósáttur með hótelið, golfvellina og matinn en fær ekkert endurgreitt
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu manns sem vildi að fyrirtæki sem skipulagði golfferð fyrir hann til útlanda myndi greiða honum aftur þrjátíu prósent af kaupverði ferðarinnar.
Einn glæsilegasti 9 holu völlur landsins
Í sumar ætlar Vísir að kynna nokkra af þeim golfvöllum sem spennandi væri að prófa í sumarfríinu en hér á landi má finna yfir sextíu golfvelli víða um land. Golfvöllur vikunnar er Víkurvöllur í Stykkishólmi.
Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn
Tiltölulega litlar skemmdir urðu á Hlíðavelli í Mosfellsbæ þegar hestastóð kom í óvelkomna heimsókn þangað seint í gærkvöldi. Vallastjóri telur líklegt að hestarnir hafi sloppið úr gerði nærri vellinum þar sem hann liggur við Leiruvog.
Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð
Lundsvöllur er níu holu golfvöllur staðsettur mitt á milli Vaglaskógar og Lundsskógar í Fnjóskadal, í um 24 km fjarlægð frá Akureyri gegnum Vaðlaheiðargöng.
Davíð fær engin svör í bráð frá Golfklúbbi Sandgerðis
Lárus Óskarsson, formaður Golfklúbbs Sandgerðis, segist hættur við að gefa út yfirlýsingu vegna máls Davíðs Jónssonar og fjölskyldu.
Rekinn umsvifalaust úr klúbbnum í miðju meistaramóti
Davíð Jónsson var rekinn umsvifalaust úr Golfklúbbi Sandgerðis ásamt sonum hans tveimur í miðju meistaramóti. Von er á yfirlýsingu frá Golfklúbbi Sandgerðis vegna málsins.
18 holu vatna- og skógavöllur með töfrandi fjallasýn
Í sumar ætlum við að kynna okkur nokkra af þeim golfvöllum sem spennandi væri að prófa í sumarfríinu en yfir sextíu golfvelli er að finna víða um land. Golfvöllur vikunnar er Hamarsvöllur.
Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet
Coolbet efndi til golfmóts á Grafarholtsvelli í blíðviðrinu á föstudaginn síðasta og var öllu til tjaldað. Stjörnur af öllum sviðum íslensks þjóðfélags voru viðstaddar og voru vellystingar í fyrirrúmi. Heimildir Vísis herma að soðið hafi upp úr milli tveggja keppenda í veislunni sem haldin var eftir að mótinu lauk.
Gremja vegna golfbíla á meistaramóti
Oddur Steinarsson læknir er sérdeilis hlessa á mótstjórn GKG sem vill skriflegt vottorð frá manni sem telur sig þurfa að vera á golfbíl í komandi meistaramóti. Úlfar Jónsson segir að svona sé íþróttin – gæta verði jafnræðis með kylfingum. Þá eru læknar hugsi yfir sífelldri vottorðaskriffinsku.
Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi
Yfir sextíu golfvelli er að finna á Íslandi. Í sumar ætlum við að kynna okkur nokkra þeirra sem spennandi væri að prófa í sumar. Golfvöllur vikunnar er Kiðjaberg.