Stj.mál
126 127 128 129 130 131 132 133 134 … 187 ›
Bæjarstjóri bíður með brosið "Ég bíð með brosið þangað til ráðherra tilkynnir þetta formlega á laugardaginn kemur," segir Runólfur Birgisson, bæjarstjóri á Siglufirði. Innlent 13.10.2005 18:55
Dagskrárráð í stað útvarpsráðs Vinstri hreyfingin - grænt framboð kynnti nýjar tillögur að frumvarpi fyrir Ríkisútvarpið á fundi í morgun en vinstri grænir segja það frumvarp, sem nú liggi fyrir Alþingi, meingallað. Þeir leggja m.a. til að útvarpsráð verði lagt niður í núverandi mynd og í stað þess komi sérstakt dagskrárráð sem hafi ekki afskipti af innri málefnum stofnunarinnar. Innlent 13.10.2005 18:55
Óvíst hvort Wolfowitz verði ráðinn Tilnefning Pauls Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í embætti bankastjóra Alþjóðabankans, hefur vakið hörð viðbrögð. Óvíst er hvort tilnefningin fæst staðfest. Erlent 13.10.2005 18:55
Fyrsta hluta brottflutnings lokið Sýrlendingar hafa lokið fyrsta hluta brottflutnings frá Líbanon. Sýrlenskar hersveitir og leyniþjónustufólk er nú komið til austurhluta Líbanons, skammt frá landamærunum að Sýrlandi, og stór hluti yfir landamærin. Erlent 13.10.2005 18:55
Óeðlileg samkeppni? Alþingismenn vilja að kannað verði hvort tilboð pólsku skipasmíðastöðvarinnar í endurbætur á varðskipum Landhelgisgæslunnar samræmist reglum á EES-svæðinu. Innlent 13.10.2005 18:55
Fengu helmingi minna en vildu <>Sveitarfélögin fá rúmlega 1,5 milljarða króna á ári frá ríkinu í tillögu mtekjustofnanefndar. Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, sagði á Alþingi í gær að tímabundin áhrif tillagnanna næmu um 9,5 milljörðum króna til ársins 2008. Innlent 13.10.2005 18:55
Brösug stjórnarmyndun í Írak Það gengur brösuglega að koma á starfhæfri stjórn í Írak. Trúarhópar og þjóðernisbrot deila sín á milli og á sama tíma fækkar í fjölþjóðahernum þegar bandamenn heltast úr lestinni. Erlent 13.10.2005 18:55
Ríkisborgararéttur fyrir Fischer? Ríkisborgararéttur til handa Bobby Fischer er á dagskrá á fundi allsherjarnefndar í fyrramálið. Fjórir stuðningsmenn Fischers eru boðaðir á fund nefndarinnar. Fulltrúi í nefndinni kveðst ekki geta túlkað þetta öðruvísi en svo að samstaða sé um að veita Fishcer ríkisborgararétt. Innlent 13.10.2005 18:55
Deilt um fyrirkomulag RÚV Sjálfstæðismenn vildu gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi en Framsóknarflokkurinn var ófáanlegur til þess. Sæst var á að stofnunin yrði gerð að sameignarfélagi. Lögfræðingar segja það ekki standast lög um eignarrétt og félagarétt. Menntamálaráðherra segir sérlög ofar almennum lögum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:55
Króatar sýna ekki samvinnu Evrópusambandið mun í dag að öllum líkindum ákveða að fresta upphafi aðildarviðræðna við Króatíu þar sem stjórnvöld þar hafa ekki sýnt nægilega samvinnu við alþjóðaglæpadómstólinn í Haag. Erlent 13.10.2005 18:55
Óvíst um umsókn Fischers Það er alls óvíst hvort umsókn Bobbys Fischers um ríkisborgararétt verði tekin til meðferðar í allsherjarnefnd, þó nefndin ætli að funda með stuðningsmönnum hans í fyrramálið. Innlent 13.10.2005 18:55
Wolfowitz forseti Alþjóðabankans Bandaríkjastjórn tilnefndi hinn umdeilda Paul Wolfowitz sem forseta Alþjóðabankans nú fyrir stundu. George Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi sem haldinn var vegna tilnefningarinnar að Wolfowitz hafi alla þá reynslu sem þurfi til að stýra bankanum, auk þess sem persóna hans og framkoma sé hrein og bein. Erlent 13.10.2005 18:55
Yfirlýsing OPEC marklaus Olíuframleiðsla OPEC-ríkjanna verður aukin á næstunni en það virðist lítil áhrif ætla að hafa á olíuverð á heimsmarkaði sem þokast enn á ný nærri sögulegu hámarki. Sérfræðingar á markaði telja mestar líkur á að verðið hækki áfram í ljósi vaxandi eftirspurnar og í raun sé yfirlýsing OPEC marklaus í því samhengi. Erlent 13.10.2005 18:55
Ræða ekki kjarnorkuvopnaáætlunina Norður-Kóreustjórn þvertekur fyrir að setjast aftur að samningaborði sexveldanna svokölluðu til að ræða kjarnorkuvopnaáætlun stjórnvalda í Pjongjang. Talsmenn ráðamanna í Norður-Kóreu segja viðræður útilokaðar fyrr en Bandaríkjamenn hætta að kalla landið útvörð harðstjórnar. Erlent 13.10.2005 18:55
Aðeins bráðabirgðalausn "Þó að einhverjir sveitarstjórnarmenn séu tilbúnir að skrifa upp á þennan samning þá er mikil almenn óánægja með þessa niðurstöðu," segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Lúðvík er einn fulltrúa sveitarfélaga í tekjustofnanefnd ríkis og sveitarfélaga en félagsmálaráðherra kynnir niðurstöður hennar á Alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 18:55
Málið rætt í allsherjarnefnd? Allsherjarnefnd fundar á morgun en ekki liggur fyrir hvort að mál Bobby Fischers verður þar rætt. Eins og greint var frá í morgun myndu Japanar veita Fischer leyfi til að fara til Íslands ef hann fengi íslenskt ríkisfang, eftir því sem japanskur stjórnmálamaður hefur eftir yfirmanni japanska útlendingaeftirlitsins. Innlent 13.10.2005 18:55
Fjölmiðlanefnd: Sögulegar sættir Sögulegar sættir gætu náðst milli stjórnar og stjórnarandstöðu um áhersluatriði laga um eignarhald á fjölmiðlum. Fjölmiðlanefndin svokallaða er að ljúka störfum og útlit er fyrir samstöðu um að einstaklingar og fyrirtæki megi eiga stærri eignarhlut en gert var ráð fyrir í öllum útgáfum fjölmiðlafrumvarpsins. Innlent 13.10.2005 18:55
Ítalskir hermenn kallaðir heim Ítalir ætla að hefja brottfluttning herliðs síns frá Írak þegar í september á þessu ári. Þetta sagði Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, í gær. Ummælin koma mjög á óvart því að hingað til hafa ítölsk stjórnvöld sagst ætla að halda herliði landsins í Írak þangað til Írakar geti sjálfir séð um öryggi lands síns. Erlent 13.10.2005 18:55
Hersveitir kallaðar frá Jeríkóborg Ísraelskar hersveitir hafa verið kallaðar frá Jeríkóborg og markar það upphaf brotthvarfs hersveita frá fimm borgum á Vesturbakkanum. Palestínskar öryggissveitir munu nú halda uppi lögum á svæðinu en þetta er sagt styrkja stöðu Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, til mikilla muna. Erlent 13.10.2005 18:55
Enginn árangur af þingfundinum Fyrsta þingfundi írakska þjóðþingsins lauk nú fyrir skömmu, án þess að endanleg sátt hafi náðst um skipan nýrrar ríkisstjórnar í landinu. Kúrdar og sjítar, sem hlutu yfirgnæfandi meirihluta í nýafstöðnum kosningum, hafa náð saman um stærstu embættin. Erlent 13.10.2005 18:55
Furða sig á RÚV-frumvarpinu Þingmenn stjórnarandstöðunnar lýsa furðu sinni á frumvarpi menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið sem þeir segja slæmt fyrir lýðræðið. Verið að stofna ríkisstjórnarútvarp, segir þingmaður Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 18:55
Meirihlutinn sprunginn á Blönduósi Meirihlutasamstarfi H-lista vinstri manna og óháðra og bæjarmálafélagsins Hnjúka, Á-lista, í bæjarstjórn Blönduósbæjar hefur verið slitið. Í tilkynningu sem H-listamenn sendu frá sér í gær er ástæðan sögð trúnaðarbrestur vegna framgöngu formanns bæjarráðs, Valdimars Guðmannssonar, sem situr í bæjarráði fyrir hönd Á-lista en trúnaðarbresturinn ku tengjast byggingu þjónustuhúss við tjaldsvæðið á Blönduósi. Innlent 13.10.2005 18:54
Fá mun meira úr sjóði en greitt er Vestfirðir, Norðurland og Austurland fá um helmingi meira úr flutningsjöfnunarsjóði olíuvara en þessir landshlutar greiða í hann og hafa þeir því mest gagn af honum. Þetta kom fram í skriflegu svari Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar á Alþingi í gær. Innlent 13.10.2005 18:55
Hlutverk RÚV endurskilgreint Hlutverk Ríkisútvarpsins hefur verið skilgreint og útvarp í almannaþágu er meðal annars sagt fela í sér eftirfarandi: Innlent 13.10.2005 18:55
Uppsögn EES-samningsins skoðuð Kostnaður Íslendinga við þátttöku í Evrópska efnahagssvæðinu nemur allt að tveimur milljörðum á ári. Evrópustefnunefnd Alþingis fjallar á næstunni um hugmyndir um uppsögn EES-samningsins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:55
Auðun hafði engin mannaforráð Auðun Georg Ólafsson, nýr fréttastjóri Ríkisútvarpsins, var ráðinn vegna reynslu sinnar af rekstri og stjórnun, að því er útvarpsstjóri segir. Auðun Georg hafði þó engin mannaforráð í fyrra starfi sínu heldur samræmdi sölustarf umboðsmanna Marel í Suðaustur-Asíu. Innlent 15.3.2005 00:01
Færri veik börn til útlanda Ferðum barna frá Íslandi í læknismeðferðir erlendis hefur fækkað á síðastliðnum fimm árum. Þetta kom fram í skriflegu svari Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur sem lagt var fram á Alþingi í gær. Innlent 13.10.2005 18:55
Meirihlutinn springur í annað sinn Meirihlutinn í bæjarstjórn Blönduóss er sprunginn. Þetta er í annað sinn á kjörtímabilinu sem mynda þarf nýjan meirihluta. Innlent 13.10.2005 18:54
Utanríkisráðherra taki af skarið Utanríkisráðherra þarf að taka af skarið í máli Fischers og ræða við japönsk og bandarísk stjórnvöld og finna lausn, segir fulltrúi Samfylkingarinnar í allsherjarnefnd. Japönsk stjórnvöld hafa kveðið upp úr með að Fischer verði ekki fluttur til Íslands því hann hafi bandarískt ríkisfang. Innlent 13.10.2005 18:55
Meirihlutaviðræður í kvöld "Ég á fulla von á að mér verði veitt umboð á fundinum til að mynda meirihluta fyrir hönd fulltrúa sjálfstæðismanna," sagði Ágúst Þór Bragason, bæjarfulltrúi á Blönduósi. Í gærkvöldi fór fram fundur sjálfstæðismanna um myndun nýs meirihluta á Blönduósi en stefnt er að viðræðum í kvöld við H-lista vinstri manna og óháðra. Innlent 13.10.2005 18:55