Stj.mál

Fréttamynd

Gistinóttum fjölgar um fjögur prósent milli ára

Gistinóttum fjölgaði um fjögur prósent í apríl síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi, eða um fjórðung, en þeim fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um 13,5 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Yfirlýsing frá Guðna Ágústssyni

Guðni Ágústsson, vara formaður Framsóknarflokksins, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna orða Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, í tengslum við afsögn Halldórs í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ekki mynduð ný ríkisstjórn

Geir H. Haarde verðandi forsætisráðherra segir að þótt mannabreytingar blasi við í ríkisstjórninni verði ekki mynduð ný ríkisstjórn enda þýði afsögn Halldórs ekki slit á stjórnarsamstarfinu.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert liggur fyrir um afsögn Guðna

Halldór Ásgrímsson hefur ákveðið að segja af sér sem forsætisráðherra en Geir H. Haarde tekur við forsætisráðherraembættinu. Hann situr áfram sem formaður Framsóknarflokksins fram á haust. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ekkert liggja fyrir um afsögn sína.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert liggur fyrir um afsögn mína

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér fyrir stundu að ekkert liggi fyrir um afsögn hans. Guðni segir að hann hafi á fundi með forsætisráðherra og hans nánustu samstarfsmönnum fallist á ákveðnar tillögur sem miðuðu að því að ný forysta tæki við flokknum strax í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Hyggst draga sig í hlé frá stjórnmálum

Halldór Ásgrímsson tilkynnti nú fyrir stundu að hann hefði ákveðið að draga sig í hlé frá amstri stjórnmálanna. Hann hyggst segja af sér forsætisráðherraembætti en mun sitja áfram sem formaður Framsóknarflokksins fram að flokksþingi í haust. Hann mun ekki sækjast eftir endurkjöri. Jafnframt mun Guðni Ágústsson víkja úr stjórn flokksins á sama tíma.

Innlent
Fréttamynd

Framsókn fundar um forystu í flokknum

Landsstjórn og þingflokkur Framsóknarmanna hittast í kvöld til að freista þess að ná sáttum um forystu í flokknum. Að minnsta kosti fjögur framsóknarfélög hafa skorað á Guðna Ágústsson, varaformann flokksins, að taka við formannssætinu við brotthvarf Halldórs Ásgrímssonar. Talið er hins vegar líklegt að Halldór Ásgrímsson endurskoði ákvörðun sína um að hætta hverfi Guðni ekki af sviðinu á sama tíma og hann.

Innlent
Fréttamynd

Af og frá að lækka aflahlutfallið fyrir næsta fiskveiðiár

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir af og frá að aflahlutfallið verði lækkað fyrir næsta fiskveiðiár. Hann afskrifar þó ekki breytingar á aflareglunni en segir að ekki megi rasa um ráð fram, slíkar breytingar taki tíma þar sem um gríðarmikla hagsmuni sé að ræða fyrir íslensku þjóðina.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar áfram við völd

Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabilið 2006-2010. Á kjörtímabilinu verður lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara, umhverfismál, fjölskylduvænt samfélag, markaðssetningu sveitarfélagsins, atvinnumál, ábyrga fjármálastjórn, ferða- og samgöngumál.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðismenn og Samherjar mynda meirihluta

Sjálfstæðisflokkurinn og samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um sjtórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabiliið 2006 til 2010. Unnur Brá Konráðsdóttir í Sjálfstæðisflokki verður bæjarstjóri, Ólafur Eggertsson, Samherjum verður oddviti og Elvar Eyvindsson, Sjálfstæðisflokki verður formaður Byggðaráðs. Á kjörtímabilinu verður meðal annars lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara og umhverfismál.

Innlent
Fréttamynd

Segja Finn ekki vera lausn fyrir Framsókn

Það væri heimskulegt fyrir Framsóknarflokkinn að gera Finn Ingólfsson að formanni, segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna segir slíkan leik vondan fyrir Framsókn sem þegar hafi orð á sér fyrir að vera hagsmunaklíka, en ekki stjórnmálaflokkur.

Innlent
Fréttamynd

Ólga vegna kílómetragjalds hjá björgunarsveitamönnum

Ólga er meðal björgunarsveitamanna vegna laga um olíugjald og kílómetragjald sem til stendur að samþykkja frá Alþingi fyrir þinglok. Þar er lagt til að björgunarsveitum verði heimilt að nota litaða gjaldfrjálsa olíu á ökutæki sín en í staðinn greiði þær sérstakt kílómetragjald af akstri þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Frumvarpi um RÚV hf. og nýsköpunarmiðstöð frestað til hausts

Afgreiðslu á furmvörpum um hlutafélagavæðingu ríkisútvarpsins og Nýsköpunarmiðstöð Íslands verður frestað til haustsins samkvæmt samkomulagi sem formenn þingflokka og forseti alþingis gerðu í kvöld. Einnig var samið um að ljúka sumarþingi á morgun. Þingmenn vinna nú hratt á lokasprettinum og kvöld hafa að minnsta kosti 38 frumvörp orðið að lögum.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin verði að koma að hugsanlegri sátt

Forseti ASÍ vill að ríkisstjórnin komi að hugsanlegri sátt við Samtök atvinnulífsins sem hugsuð er til að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga í haust. Fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina vilja leggja sitt af mörkum til að ná böndum á verðbólgunni.

Innlent
Fréttamynd

Verður samið um þinglok í dag?

Það ræðst á næstu klukkustundum hvort samið verði um að ljúka sumarþingi, jafnvel á morgun. Þreifingar eiga sér nú stað milli stjórnar og stjórnaranstöðu um þau mál sem harðast er deilt um og hvort fresta eigi þeim til næsta hausts.

Innlent
Fréttamynd

Slitnað upp úr meirihlutaviðræðum í Mosfellsbæ

Slitnað hefur upp úr meirihlutaviðræðum Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna í Mosfellsbæ. Þær hófust eftir að ljóst var að Sjálfstæðisflokkurinn hafði tapað hreinum meirihluta sínum í kosningunum á laugardag.

Innlent
Fréttamynd

Viðræður í Mosfellsbæ í óvissu

Viðræður um myndun nýs meirihluta í Mosfellsbæ milli Framsóknarflokks, Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna eru í mikilli óvissu eftir að framsóknarmenn slitu formlegum viðræðum í dag. Einhverjar þreifingar eiga sér þó stað og ræðst það að öllum líkindum í kvöld eða morgun hvort að samstarfinu verður.

Innlent
Fréttamynd

Viðræðum J- og D-lista á Dalvík slitið

Sjálfstæðismenn hafa slitið meirihlutaviðræðum við J-lista óháðra í Dalvíkurbyggð eftir skamman tíma. Þær hófust á þriðjudag eftir að viðræður sjálfstæðismanna, framsóknarmanna og vinstri - grænna um meirihlutasamstarf fóru út um þúfur.

Innlent
Fréttamynd

Forsætisráðherra vill bíða skýrslu um símhleranir

Forsætisráðherra vill ekkert aðhafast vegna símhlerana hér á landi á kalda stríðsárunum, fyrr en skýrslu hefur verið skilað um málið. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í morgun. Formenn stjórnarandstöðunnar vilja að Alþingi komi að málinu frá upphafi.

Innlent
Fréttamynd

Engar reglur um leyfi ríkisstarfsmanna í átta ár

Reglur um leyfi starfsmanna frá störfum í ríkisþjónustu, sem setja átti fyrir átta árum, hafa enn ekki verið settar. Ástæða þess er misskráning í fjármálaráðuneytinu sem taldi málið afgreitt. Formaður Samfylkingarinnar segir málið pínlegt fyrir ráðuneytið.

Innlent
Fréttamynd

Vill sameina slökkviliðin á suðvesturhorninu

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna vill að slökkviliðin á suðvesturhorninu verði sameinuð með það að markmiði að efla björgunar- og öryggismál hér á landi. Þá vill sambandið auka samstarfið við björgunarsveitirnar og Landhelgisgæsluna.

Innlent
Fréttamynd

Rétt að draga úr áherslu á ál við milljón tonna framleiðslu

Þegar framleiðsla á áli er komin í eina milljón tonna á ári er af ýmsum ástæðum rétt að draga úr áherslu á þeim vettvangi, sagði iðnaðarráðherra í fyrirspurnartíma á þingi í dag. Fyrirspyrjandi sakaði ráðherra um að vera á flótta í málefnum áliðnaðarins.

Innlent
Fréttamynd

Nýr bæjarstjóri á Hornafirði

Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar á forystu Framsóknarflokksins óhjákvæmilegar?

Menn hljóta að skoða þann möguleika að gera breytingar á forystu Framsóknarflokksins. Þetta segir þingmaður flokksins, Kristinn H. Gunnarsson. Hann útilokar ekki að það hafi verið mistök af hálfu flokksins að krefjast forsætisráðherrastólsins.

Innlent
Fréttamynd

Kosningabaráttan kostaði vart undir 200 milljónum

Kosningabarátta framboðanna fimm í Reykjavík hefur vart kostað undir tvö hundruð milljónum króna, að mati Viðskiptablaðsins. Þó brast ekki á auglýsingaflóð í taugatitringi síðustu dagana, eins og stundum hefur gerst.

Innlent
Fréttamynd

Eitt höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins fallið

Eitt höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins á landsbyggðinni féll í gærkvöldi þegar K-listi og A-listi í Bolungarvík mynduðu meirihluta án aðildar Sjálfstæðisflokksins. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem sjálfstæðismenn eru ekki ýmist með hreinan meirihluta, eða eiga aðild að meirihluta, í rúmlega sextíu ára kaupstaðarsögu Bolungarvíkur.

Innlent