Efnahagsmál

Orðum aukið að Ísland sé dottið úr tísku
Á fyrstu fimm mánuðum ársins voru þrjátíu þúsund fleiri ferðamenn á landinu en á sama tíma í fyrra. Það samsvarar 4 prósent fjölgun frá síðasta ári. Í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins segir að þótt greinilega sé að hægja á vexti umsvifa í ferðaþjónustu virðist orðum aukið að óveðurský séu yfir greininni og að Ísland sé dottið úr tísku meðal ferðamanna.

Launaþróun æðstu embættismanna eigi að fylgja öðrum launum
Forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, segir það forgangsmál ríkisstjórnarinnar að vinna bug á verðbólgu og skapa Seðlabankanum skilyrði til að lækka vexti. Til að það gangi eftir verði forsendur nýgerðra kjarasamninga að standast og forðast þurfi launaskrið „sem endar í höfrungahlaupi á vinnumarkaði með þekktum afleiðingum.“

Kostnaður ríkissjóðs vegna Grindavíkur um áttatíu milljarðar
Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna fjölbreyttra stuðningsaðgerða við Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga árin 2023 og 2024 nemi um áttatíu milljörðum króna. Fjármálaráðuneytið hefur tekið saman kostnað ríkisins sem fellur til vegna ýmissa stuðningsaðgerða við Grindavík. Þyngst vegu framlag ríkissjóðs vegna kaupa Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

Leitt ef ríkisstjórn er ekki treystandi í kjarasamningsviðræðum
Forseti ASÍ segir áríðandi að frumvarp innviðaráðherra um bætta stöðu leigjenda verði samþykkt fyrir þinglok. Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, segir frumvarpið fast í nefnd því ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um þinglok. ASÍ skorar á Alþingi að ljúka málinu fyrir þinglok.

„Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar
Fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar geldur varhug við umræðu um „betur borgandi ferðamenn,“ en hún segir hugtakið vera nokkurs konar klisju. Hún segir að óþægilega mikið hafi dregið úr eftirspurn hins almenna ferðamanns, sem eyðir hér að jafnaði hundruðum þúsunda hver. Ísland hafi dregið lappirnar í markaðssetningu um árabil.

Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3.292 milljónir króna á þremur fyrstu mánuðum ársins. Það er 1.357 milljónum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Meðal þess sem skýrir lakari afkomu er vetrarþjónusta borgarinnar, sem fór 782 milljónir króna umfram fjárheimildir.

Minni hömlur á afleiður og aukin markaðssetning myndi auka áhuga erlendis
Verði dregið úr takmörkunum á afleiðuviðskiptum með krónu, samhliða markvissri markaðssetningu og aukinni upplýsingagjöf til fjárfesta, má ætla að áhugi erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfamarkaði fari vaxandi, segir fjármálaráðuneytið.

Sex liða áætlun til að koma á jafnvægi í húsnæðismálunum.
1.Það verður áfram að vera góður grundvöllur fyrir þann byggingariðnað sem er í landinu og það þarf að styrkja hann, meðal annars með því að útskrifa fleiri iðnaðarmenn. Það kerfi sem fyrir er á að taka við þegar jafnvægi er náð.

Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi
Fyrirtækið Running Tide sagði síðasta föstudag öllu sínu starfsfólki á Íslandi upp. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði frá þessu á Linkedin síðu sinni í dag. Hann segir síðasta föstudag einn þann erfiðasta dag sem hann hefur upplifað. Hann segir fyrirtækið ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt.

Ríkisstjórnin hafi sett efnahag venjulegs fólks á hvolf
Formaður Samfylkingarinnar heitir því að flokkurinn muni endurheimta og tryggja efnahagslegan stöðugleika á Íslandi, nái flokkurinn í ríkisstjórn. Í eldhúsdagsræðu sinni í kvöld sagði hún ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafa sett efnahag venjulegs fólks á hvolf, en Samfylkingin hafi getuna til að rétta úr kútnum.

„Þessi kostnaður hverfur ekki“
Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara.

Kyrrstöðuverðbólga
Að kæla hagkerfið, að ná niður verðbólgu og vöxtum hefur verið verkefni Seðlabankans undanfarin ár. Leiðin til þess hefur verið að hækka stýrivexti til að þrengja að ráðstöfunarfé þeirra Íslendinga sem skulda. Stærsti hluti þessa hóps er ungt fólk og millistéttin. Ungt fólk sem nýkomið er út á fasteignamarkaðinn og skuldar stóran hluta í fasteign sinni.

Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019
Seðlabankinn í Evrópu lækkaði í dag stýrivexti bankans í fyrsta sinn síðan 2019. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að ástæða lækkunar sé að verð hækki eins hratt og að þau séu á góðri leið að ná verðbólgumarkmiðum sínum sem eru tvö prósent. Bankinn lækkaði stýrivextina um 0,25 prósentustig í 3,75 prósent úr fjögur prósent en þeir höfðu verið fastir í fjögur prósent frá september 2023.

„Það sem þú greiðir niður, það kemur aldrei aftur“
Vaxtastuðningur upp að tvö hundruð þúsund krónum á mann stendur fólki nú til boða, til að bregðast við hækkandi vaxtabyrðum húsnæðislána. Fjármálaráðgjafi segir almennt best að ráðstafa fjármunum beint inn á höfðustól lána. Það sé þó ekki algilt.

Hótelrekendur vonast til að sala hrökkvi í gang eftir afbókanir
Allir hótelrekendur finna fyrir því að hægst hefur á bókunum og sala á hótelherbergjum verður eitthvað minni í sumar en í fyrra. Salan gengur betur í Reykjavík og á Suðurlandi en annars staðar úti á landi þar sem hótel hafa brugðið á það ráð að bjóða lægri verð til að ná upp sölunni. Spár um fjölda ferðamanna við upphaf árs munu ekki ganga eftir, segja viðmælendur Innherja.

Varar við þenslu á byggingamarkaði
Þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu er verðbólga ekki að láta undan að sögn Seðlabankastjóra. Og það þrátt fyrir að stýrivaxtahækkanir bankans hafi sérstaklega verið beint að henni. Hann segir byggingariðnað í miklum vexti sem geti reynst varasamt á meðan hagkerfið kólnar.

Þétt vaxtaaðhald hefur ekki enn ógnað fjármálastöðugleika
Hátt raunvaxtastig hefur „enn sem komið er“ ekki ógnað fjármálastöðugleika en það má sumpart rekja til aðgerða sem gripið var til þegar allt lék í lyndi. Jafnvel þótt vanskil hafi ekki aukist væri það barnaskapur að halda að það muni ekki gerast, að sögn seðlabankastjóra, núna þegar tekið er að hægja nokkuð á hjólum efnahagslífsins.

Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson, settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika munu sitja fyrir svörum og kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar á fréttamannafundi sem hefst núna klukkan 9:30.

Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið
Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum þar sem eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Lítið ber enn á vanskilum þrátt fyrir hátt vaxtastig en vert er þó að hafa í huga að þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum.

Margir eiga inni vaxtastuðning frá skattinum
Landsmenn eiga margir rétt á vaxtastuðningi frá skattinum, sem greiddur verður inn á íbúðalán. Vaxtastuðningurinn er hluti af aðgerðapakka stjórnvalda sem kynntur var við undirritun kjarasamninganna í mars 2024.

Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni
Ferðaþjónustan er að stefna í öfuga átt miðað við það markmið að hver ferðamaður skili meiri verðmætum í stað stöðugrar fjölgunar ferðamanna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir aukna markaðssetningu einu leiðina til að snúa þessari öfugþróun við.

Svarta sviðsmyndin blasir við ferðaþjónustunni í ár
Horfur í ferðaþjónustu hafa snarversnað. Gistinóttum frá áramótum fækkaði um sex prósent og bókanir á hótelum fyrir sumarið eru tíu til fimmtán prósentum færri en á sama tíma í fyrra.

Sakar ríkisstjórnina um vanfjármögnun lögreglunnar
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sagði á Alþingi í dag að löggæsla ríkisins væri farin að líða verulega fyrir stjórnarstefnu forsætisráðherra. Hún vísaði í umsögn félags yfirlögregluþjóna sem segir að um stöðu lögreglunnar megi segja að þar brenni allir endar. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði að ríkisstjórnin hefði lagt mikla áherslu á styrk lögreglunnar, en hafi glímt við áskoranir eins og styttingu vakta og hækkun launa.

Arðsemiskrafa á íslensk hlutabréf um einu prósenti hærri en á bandarísk
VH-hlutfallið fyrir íslensku Úrvalsvísitöluna OMXI15 hefur haldist yfir sögulegu meðaltali síðan í júlí í fyrra þrátt fyrir vaxandi raunhagnað félaga vísitölunnar, segir hagfræðingur.

Hagtölur sýna „Gullbrár“-mælingu sem er gott í mjúkri lendingu hagkerfisins
Hagtölur fyrir fyrsta ársfjórðung, þar sem landsframleiðsla dróst saman um fjögur prósent að raunvirði milli ára, voru „hálfgert Rorschach-próf“ að því leytinu til að það er hægt að lesa bæði jákvæð og neikvæð teikn úr þeim, segir aðalhagfræðingur Kviku banka. Fá merki eru í nýjum þjóðhagsreikningum að hagkerfið sé að fara fram af hengiflugi og mælingin núna kemur á góðum tíma þegar Seðlabankinn er að reyna að stýra efnahagslífinu í mjúka lendingu.

„Sláandi“ verðbólgu má líklega tengja við kjarasamninga
Verðbólgan mældist langt yfir væntingum greinenda í maí en skuldabréfamarkaðurinn tók tíðindunum af stóískri ró. Sjóðstjóri segir að verðbólgan hafi verið á nokkuð breiðum grunni sem líklega megi rekja til kostnaðarhækkana í tengslum við kjarasamninga. Ekki er ólíklegt að verðbólguspár verði í kjölfarið hækkaðar.

Verðbólgan tekur smá kipp upp á við
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósentustig í maí. Hún stendur nú í 627,3 stigum og hefur hækkað um 6,2 prósent á undanförnum tólf mánuðum.

Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára
Alls fengu um 52 þúsund einstaklingar ofgreiddar lífeyrisgreiðslur í fyrra og þurfa að greiða þær til baka. Miðgildi ofgreiðslna árið 2023 var rúmlega 122.000 krónur en var árið 2022 rúmar 66.000 krónur. Ofgreiðslan nærri tvöfaldast því á milli ára.

Svipuð umsvif hjá verktökum og í fyrra en undirbúa sig undir slaka
Það er svipað að gera í ár og í fyrra en við erum að undirbúa okkur að það komi einhver slaki í vetur, segir framkvæmdastjóri Arma, stærsta leigufyrirtæki landsins í byggingariðnaði. Hann segir að hátt vaxtastig og lóðaskortur reyni verulega á rekstur verktaka. Aftur á móti standi verktakar traustari fótum en oft áður hvað varði eigið fé eftir góð ár í rekstri.

Meiri halli á utanríkisviðskiptum en vænst var en tölurnar eru óábyggilegar
Vöru- og þjónustujöfnuður á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur ekki verið óhagstæðari í nokkur ár. Það má einkum reka til loðnubrests, minni útflutnings á áli og umtalsverðum innflutningi á fjárfestingarvörum. „Vaxandi vöruskiptahalli er því vonandi ekki alslæmur,“ segir hagfræðingur um síðast nefnda atriðið en nefnir að umræddar hagtölur séu um þessar mundir ekki nógu ábyggylegar vegna. Borið hafi á að ferðaþjónustufyrirtæki hafi fært sig til erlendra færsluhirða að undanförnu. Sala þeirra birtist því ekki í útflutningstölum Hagstofunnar.