Borgarstjórn

Fréttamynd

Reykjavík ræður yfirmenn

Meirihluti borgarráðs samþykkti í gær skipan í stöður í yfirstjórn Reykjavíkurborgar. Konur munu gegna tíu störfum af þeim fjórtán sem ráðið var í.

Innlent
Fréttamynd

Lágreist brú besti kosturinn

Skipulagsstofnun hefur úrskurðað um umhverfisáhrif Sundabrautar. Lágreist brú yfir Kleppsvíkina er besti kosturinn. Talið er að hábrú yrði lokuð í 50 klukkustundir á ári vegna veðurs. Botngöng geta haft verulega neikvæð áhrif á lífríkið.

Innlent
Fréttamynd

Útsvarið í hámark

Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag verður lagt til að útsvarsprósenta næsta árs verði 13,03 prósent, í stað 12,7 prósenta nú. Ef það verður samþykkt verða útsvarsgreiðslur í Reykjavík samkvæmt hámarks útsvarsprósentu.

Innlent
Fréttamynd

492 spilakassar í Reykjavík

Alls eru 492 spilakassar í Reykjavík að því er fram kemur í svari borgaryfirvalda við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, segist telja að þúsundir spilafíkla séu í borginni og ástandið sé mjög alvarlegt.

Innlent
Fréttamynd

Hækkun leikskólagjalda samþykkt

Leikskólagjöld hækka um allt að 42 prósent um áramótin hjá fólki í sambúð þar sem annað foreldrið er í námi. Borgaryfirvöld samþykktu í gær að breyta gjaldskrá Leikskóla Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Borgarfulltrúi verði borgarstjóri

Ágreiningur virðist vera að rísa innan R-listans í Reykjavík um hver skuli verða eftirmaður Þórólfs Árnasonar borgarstjóra sem sagði af sér í gær og lætur af störfum um næstu mánaðamót. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir spáir því að nýr borgarstjóri komi úr röðum núverandi borgarfulltrúa.

Innlent
Fréttamynd

Hækkun leikskólagjalda hörmuð

Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík harma tillögu leikskólaráðs um að hækka leikskólagjöld í Reykjavík um 42% á fólk í sambúð þar sem annað foreldrið er í námi, að því er segir í tilkynningu frá stjórn UJR.

Innlent
Fréttamynd

VG stendur fast á sínu

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Vinstri-grænir krefjist þess að Þórólfur Árnason, borgarstjóri, láti af embætti vegna aðildar hans að verðsamráði olíufélaganna. Félagsfundur Vinstr-grænna í Reykjavíkur fer fram á þriðjudagskvöld og þá er talið að flokkurinn taki formlega afstöðu í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Hækkun leikskólagjalda mótmælt

Stúdentaráð Háskóla Íslands ætlar að beita sér fyrir því að tillaga R-listans um að breyta gjaldskrá Leikskóla Reykjavíkur verði ekki samþykkt í borgarráði.

Innlent
Fréttamynd

Leikskólagjöld hækki um 42 prósent

Gjaldskrá Leikskóla Reykjavíkur mun hækka um allt að 42 prósent samkvæmt tillögu sem leikskólaráð hefur samþykkt. Borgarráð frestaði afgreiðslu tillögunnar á fundi sínum í gær.

Innlent
Fréttamynd

Þórólfur neitaði að hætta

Þórólfur Árnason borgarstjóri neitaði að láta af störfum borgarstjóra á átakafundi með borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans í fyrrakvöld. Á fundinum var lögð fram tillaga um að Þórólfur hætti og Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi yrði borgarstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Dagur verði borgarstjóri

Innan Reykjavíkurlistans liggur fyrir tillaga um að Dagur B. Eggertsson taki við starfi borgarstjóra. Vera Árna Þórs Sigurðssonar, forseta borgarstjórnar, í útlöndum er talin hafa tafið ákvarðanatöku flokkanna sem að listanum standa.

Innlent
Fréttamynd

Borgarstjóri nýtur ekki trausts

Þórólfur Árnason borgarstjóri nýtur ekki óvéfengjanlegs trausts Vinstri-grænna í Reykjavík sem standa að R- listanum, samkvæmt niðurstöðu samráðsfundar flokksins í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Uppsagnir vegna stjórnkerfisbreytinga

Starfsfólki Aflvaka og Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp störfum vegna breytinga á stjórnkerfi borgarinnar. Ellefu manns vinna hjá stofnununum en þær verða lagðar niður að hluta og færðar á skrifstofu borgarstjóra vegna stjórnkerfisbreytinganna. Uppsagnirnar taka gildi 1. febrúar á næsta ári.

Innlent
Fréttamynd

Ekki í myndinni að segja af sér

Þórólfur Árnason segir það ekki í myndinni að segja af sér sem borgarstjóri, vegna aðildar hans að olíusamráði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir olíufélögin ekki hafa farið vel með borgina og vildi umræðu um málið. Því var hafnað.

Innlent
Fréttamynd

Deilt um stöðu borgarstjóra

Forseti borgarstjórnar segir ýmislegt hafa breyst frá því að borgarstjóri skýrði sinn þátt í fyrra í samráði olíufélaganna og staða hans verði rædd. Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, telur ekkert hafa breyst og það sem skipti máli sé að Þórólfur Árnason hafi hjálpað til við að upplýsa málið.

Innlent
Fréttamynd

Þórólfur nýtur stuðnings R-listans

Þórólfur Árnason borgarstjóri nýtur stuðnings borgarfulltrúa R-listans sem álítur að ekki hafi komið neitt nýtt fram í skýrslu samkeppnisyfirvalda um samráð olíufélaganna. Þetta kom fram á fundi sem hann átti með borgarstjórnarflokki R-listans í dag á undan borgarstjórnarfundi.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðismanni ekki sætt

„Þetta er verra en ég hélt,“ segir Davíð Oddsson um skýrslu Samkeppnisstofnunar um samráð olíufélaganna. Ef hann eða einhver annar Sjálfsstæðismaður væri borgarstjóri hefði þeim ekki verið sætt í embætti.

Innlent
Fréttamynd

Titringur í borgarstjórn

Titringur er í borgarstjórn vegna aðildar Þórólfs Árnasonar borgarstjóra að samráði olíufélaganna. R-listinn lýsti fullu trausti á Þórólf í dag en fulltrúar í minnihlutanum hafa efasemdir um framtíð hans í borgarstjórastólnum. Þórólfur segist eiga málið við eigin samvisku.

Innlent
Fréttamynd

Tvísýnt með Þórólf

Tvísýnt er um pólitískt líf Þórólfs Árnasonar, borgarstjóra eftir að skýrsla Samkeppnisstofnunar um verðsamráð olíufélaganna kom út. Þar ber hans nafn á góma rúmlega hundrað sinnum vegna starfa hans sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Essó.

Innlent
Fréttamynd

Vetrarfríi grunnskólanna aflýst

Vetrarfríi grunnskólanna í Reykavík, sem átti að hefjast á miðvikudaginn og standa út vikuna, verður aflýst. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi fræðslunefndar borgarinnar í gær.

Innlent
Fréttamynd

Harma ásakanir á embættismenn

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og byggingarnefnd fengu ekki að leggja fram bókun í nefndinni í gær, þar sem ásakanir R-listans á einstaka embættismenn borgarinnar í fjölmiðlum voru harmaðar.

Innlent
Fréttamynd

Hefur dælt peningum í borgina

Stefán Jón Hafstein er að snúa málum á haus með því að saka ríkisstjórnina um að halda Reykjavíkurborg og sveitarfélögunum í fjársvelti að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borgarfulltrúa og þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Innlent
Fréttamynd

Misbeita ríkisvaldi vegna R-lista

Sveitarfélögin fá ekki auknar tekjur á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn og Reykjavíkurlistinn er við völd í Reykjavík. Þetta segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Fimmtán hendur á loft

Meiri- og minnihlutar í stjórnmálum koma sér sjaldnast saman um mál. Í atkvæðagreiðslum er vaninn að meirihluti felli flest sem frá minnihlutanum kemur og minnihlutinn segir oftast nei eða situr hjá þegar kosið er um tillögur meirihlutans. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Skipulagði gamla hafnarsvæðið

Þresti Þórssyni hugnuðust ekki hugmyndir hins opinbera um skipulag hafnarsvæðisins í miðborginni og tók til sinna ráða. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Embættismenn firra sig ábyrgð

Það er ekki rétt að kalla það mistök þegar Gullhamrar ehf., eigendur verslunarhúsnæðisins við Þjóðhildarstíg í Grafarholti, fengu verslunarleyfi að sögn Salvarar Jónsdóttur, sviðsstjóra skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur. Nóatún leigir nú húsnæðið og rekur verslun á staðnum.

Innlent
Fréttamynd

Áfram leynd um Línu Net

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Orkuveitu Reykjavíkur fá ekki að sjá endurskoðanaskýrslu Línu Nets eins og þeir hafa beðið um. Lína Net var dótturfélag Orkuveitunnar. Guðlaugur Þór Þórðarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórn Línu Nets hafi synjað beiðninni. Meirihluta stjórnarinnar mynda þeir Alfreð Þorsteinsson og Stefán Jón Hafstein, fulltrúar Reykjavíkurlistans.

Innlent
Fréttamynd

Kvöðum ekki aflétt

Ekki kemur til greina að aflétta kvöðum sem fylgja skipulagi vegna matvöruverslunar Bónuss og Hagkaupa í Spönginni að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns skipulagsnefndar borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið efli sveitarfélögin

Borgarstjórn Reykjavíkur skorar á ríkisstjórnina að efla tekjustofna sveitarfélaga þannig að þau geti með eðlilegum hætti sinnt þeim verkefnum sem þau hafa með höndum. Áskorunin var samþykkt samhljóða á fundi borgarstjórnar í gær. Margrét Sverrisdótti, varaborgarfulltrúi Frjálslyndra lagði fram tillögu í þessa átt en henni var breytt með tillögu Reykjavíkurlistans.

Innlent