Edduverðlaunin

Eddan 2014 - Heimildarmynd ársins
Afhending Edduverðlaunanna fer fram annað kvöld.

„Átakanlegt verkefni og það að myndin hljóti tilnefningu er mikill sigur“
Heiða okkar væri án efa mjög ánægð með þau viðbrögð sem myndin hefur fengið. Heiða ætlaði sér alltaf stóra hluti enda var hún kraftmikil og kjörkuð ung kona.

Hver er uppáhalds sjónvarpsstjarnan þín?
Fimm eru tilnefndir til Eddunnar sem sjónvarpsmenn ársins, Lóa Pind Aldísardóttir, Sölvi Tryggvason, Brynja Þorgeirsdóttir, Bragi Valdimar Skúlason og Bogi Ágústsson.

Hross í oss verði kvikmynd ársins
Ásgrímur Sverrisson birti í dag spádóm sinn fyrir úrslit Eddunnar á kvikmyndavefnum Klapptré sem hann ritstýrir. Ásgrímur er meðal stofnenda Eddunnar og talinn vera einn helsti kvikmyndasérfræðingur landsins.

Þetta eru fimm bestu frasar íslenskrar kvikmyndasögu
Lesendur Vísis völdu fleygustu setningarnar í kosningu sem lauk 10. febrúar. Munu áhorfendur Edduverðlaunahátíðarinnar kjósa á milli setninganna fimm í símakosningu meðan á beinni útsendingu hátíðarinnar stendur.

Foreldrar aftur í kvikmyndahús
Kvikmyndin Foreldrar sem hlaut sex verðlaun á Edduhátíðinni um síðustu helgi hefur verið tekin aftur til sýninga í bíóhúsum vegna fjölda áskoranna. Myndin hlaut flest verðlaunin á hátíðinni og var meðal annars valin kvikmynd ársins. Myndin er sýnd í SAM bíóunum í Reykjavík og á Akureyri. Sýningarfjöldi er takmarkaður.

Ragnar Bragason er sigurvegari Eddunnar
Ragnar Bragason leikstjóri kom sá og sigraði á Eddunni. Hann hlaut fern verðlaun. Kvikmynd hans, Foreldrar, hlaut alls sex verðlaun. Foreldrar var valin besta myndin og fékk verðlaun fyrir besta handrit. Ragnar fékk verðlaun fyrir leikstjórn. Ingvar E. Sigurðsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir voru valin leikari og leikkona ársins í aðalhlutverkum og Bergsteinn Björgólfsson fékk verðlaun fyrir kvikmyndatöku. Næturvaktin, sem Ragnar leikstýrir, hlaut tvenn verðlaun.

Kompás og Út og Suður eru frétta- og/eða viðtalsþættir ársins
Kompás og Út og Suður fengu sameiginlega Edduverðlaun í flokknum frétta- og/eða viðtalsþáttur ársins. Kiljan, þáttur Egils Helgasonar, sem sýndur er á RÚV, hlaut verðlaun í flokknum menningar/lífstílsþáttur ársins. Gettu Betur var valinn skemmtiþáttur ársins.

...og fimm vinsælustu sjónvarpsþættirnir eru:
GameTV, Kompás, Næturvaktin, Stelpurnar og Venni Páer eru fimm vinsælustu sjónvarpsþættirnir samkvæmt kosningu almennings sem lauk klukkan fimm í dag á Vísi. Úr þessum hópi verður vinningshafinn valinn með símakosningu á meðan verðlaunaafhending Eddunnar 2007 fer fram á Hilton Hotel Nordica næstkomandi sunnudagskvöld.

Þorsteinn kynnir Edduna
Þorsteinn Guðmundsson leikari verður aðalkynnir Edduverðlaunanna 2007 sem fram fara á Hilton Reykjavik Nordica 11. nóvember. Þorsteinn var kynnir verðlaunanna árið 2005.

Aðsókn í bíó tók kipp
Aðsókn á íslensku kvikmyndirnar sem nú eru sýndar í bíó tók kipp eftir að tilnefningar til Edduverðlauna voru kynntar í síðustu viku. Þannig jókst aðstókn á Veðramót um 64 prósent strax í kjölfar tilnefninganna. Aðsókn á Astrópíu jókst að sama skapi um 42 prósent.
Eddutilnefningar 2007: Leikið sjónvarpsefni ársins
Næturvaktin - Sigtið án Frímanns Gunnarssonar - Stelpurnar
Eddutilnefningar 2007: Kvikmynd ársins
Foreldrar - Vandræðamaðurinn - Veðramót
Eddutilnefningar 2007: Leikkona eða leikari ársins í aukahlutverki
Björn Ingi Hilmarsson / Bræðrabylta - Gunnur Martinsdóttir Schlüter / Veðramót - Jörundur Ragnarsson / Veðramót - Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir / Köld slóð - Þorsteinn Bachmann / Veðramót
Eddutilnefningar 2007: Leikari ársins í aðalhlutverki
Gunnar Hansson / Sigtið án Frímanns Gunnarssonar - Ingvar E. Sigurðsson / Foreldrar - Pétur Jóhann Sigfússon / Næturvaktin
Eddutilnefningar 2007: Leikkona ársins í aðalhlutverki
Hera Hilmarsdóttir / Veðramót - Nanna Kristín Magnúsdóttir / Foreldrar - Tinna Hrafnsdóttir / Veðramót
Eddutilnefningar 2007: Heimildarmynd ársins
Heima - Lifandi í limbó - Syndir feðranna
Eddutilnefningar 2007: Sjónvarpsmaður ársins
Edda Andrésdóttir - Egill Helgason - Jóhannes Kr. Kristjánsson - Þóra Arnórsdóttir - Þorsteinn J. Vilhjálmsson
Eddutilnefningar 2007: Frétta- og/eða viðtalsþáttur ársins
Kompás - Út og suður - Willtir Westfirðir
Eddutilnefningar 2007: Myndataka og klipping
Bergsteinn Björgúlfsson / Foreldrar - G. Magni Ágústsson / Heima - Víðir Sigurðsson / Köld slóð
Eddutilnefningar 2007: Hljóð og tónlist
Birgir Jón Birgisson og Ken Thomas / Heima - Gunnar Árnason / Köld slóð - Pétur Einarsson / Veðramót
Eddutilnefningar 2007: Skemmtiþáttur ársins
Gettu betur - Tekinn 2 - Útsvar
Eddutilnefningar 2007: Menningar- og/eða lífstílsþáttur ársins
07/08 Bíó Leikhús - Kiljan - Tíu fingur

Veðramót fékk 11 tilnefningar, Astrópía eina
Kvikmyndin Veðramót eftir Guðnýju Halldórsdóttur fær langflestar tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár, eða 11 talsins. Foreldrar í leikstjórn Ragnars Bragasonar fær næstflestar tilnefningar eða sex talsins. Þá hlýtur kvikmyndin Köld slóð fjórar tilnefningar. Það vekur athygli að Astrópía, sú mynd sem hefur fengið hvað mesta aðsókn skuli einungis fá eina tilnefningu, fyrir leikstjórn.

Stöð 2 fær átta tilnefningar til Eddunnar
Átta tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 tengjast Stöð 2. Fréttaskýringarþátturinn Kompás er tilnefndur í flokknum Frétta- og/eða viðtalsþáttur ársins. Kompás hlaut verðlaunin í fyrra. Gamanþáttaröðin Næturvaktin fær tilnefningu fyrir leikið sjónvarpsefni og handrit. Pétur Jóhann Sigfússon fær einnig tilnefningu fyrir hlutverk sitt í þáttunum.

Tilnefningar til Edduverðlauna 2007
Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 voru kynntar fyrir stundu. Verðlaunin verða afhent í níunda sinn við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica 11. nóvember næstkomandi. Það eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem kjósa úr hópi tilnefndra, en þeir telja um 700 manns.
Eddutilnefningar 2007: Stuttmynd ársins
Anna - Bræðrabylta - Skröltormar
Eddutilnefningar 2007: Leikstjóri ársins
Guðný Halldórsdóttir / Veðramót - Gunnar B. Guðmundsson / Astrópía - Ragnar Bragason / Foreldrar
Eddutilnefningar 2007: Handrit ársins
Guðný Halldórsdóttir / Veðramót - Ragnar Bragason, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Víkingur Kristjánsson og Leikhópurinn / Foreldrar - Jón Ævar Gríimsson, Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon og Ragnar Bragason / Næturvaktin

Valnefndarmenn Eddunnar hafa orðið fyrir áreitni
"Að menn tilnefni sjálfa sig? Það er auðvitað ekki um það að ræða,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, stjórnarmaður í kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni. Nokkur ólga er meðal kvikmyndagerðarmanna því stjórnin hefur ákveðið að gefa ekki út opinberlega hverjir skipa hverja valnefnd, þeirra sem völdu hverjir hlutu tilnefningu til Edduverðlauna.