Mar­moush með þrennu í sigri Man City

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Einu markanna fagnað.
Einu markanna fagnað. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

Fyrsta mark Marmoush kom á 19. mínútu eftir langa sendingu frá markverðinum Ederson. Annað markið kom fimm mínútum síðar eftir undirbúning İlkay Gündoğan og þrennan var svo fullkomnuð á 33. mínútu eftir sendingu frá Savinho.

Þrenna á tólf mínútum og sigurinn svo gott sem kominn í hús. Staðan var enn 3-0 þegar gengið var til búningsherbergja í hálfleik. Varamaðurinn James McAtee bætti fjórða marki heimamanna við þegar sex mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. 

Skömmu síðar varð Man City fyrir áfalli þegar norski framherjinn Erling Haaland meiddist á hné án þess að vera snertur. Hann gekk þó af velli en um tíma virtist sem Pep Guardiola óttaðist hið versta. 

Lokatölur á Etihad-vellinum í Manchester 4-0 og Englandsmeistararnir komnir með 44 stig í 4. sæti deildarinnar.

Lærisveinar Pep eru nú aðeins þremur stigum á eftir Nottingham Forest sem er í 3. sætinu.EPA-EFE/ADAM VAUGHAN
  • Bournemouth vann 3-1 útisigur á botnliði Southampton. Dango Ouattara, Ryan Christie og Marcus Tavernier með mörk gestanna á meðan Kamaldeen Sulemana skoraði fyrir Dýrlingana.
  • Fulham vann 2-1 sigur á Nottingham Forest. Emile Smith Rowe og Calvin Bassey með mörk heimamanna á meðan Chris Wood skoraði mark gestanna í Forest.

  • Kevin Schade skoraði eina mark Brentford þegar liðið vann 1-0 útisigur á West Ham United.

  • Nýliðar Ipswich Town náðu í stig á Villa Park þrátt fyrir að vera manni færri frá 40. mínútu þegar Axel Tuanzebe fékk sitt annað gula spjald. Liam Delap með mark Ipswich á meðan Ollie Watkins skoraði mark Aston Villa.

Stöðuna í deildinni má finna á vef ensku úrvalsdeildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira