Dramatík á Villa Park

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Pierre Kalulu og John McGinn í baráttunni.
Pierre Kalulu og John McGinn í baráttunni. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

Morgan Rogers hélt hann hefði tryggt Aston Villa dramatískan sigur á Juventus með marki í uppbótartíma þegar liðin mættust í Meistaradeild Evrópu. Markið var hins vegar dæmt af og leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Leikur kvöldsins var svo sannarlega stál í stál og ekki mikið um opin marktækifæri. Áður en Rogers hélt hann hefði skorað bjargaði Emiliano Martínez í marki Villa og hélt sínum mönnum inn í leiknum.

Í blálok leiks kom Rogers boltanum í netið en aukaspyrna var dæmt þar sem brotið var á Michele Di Gregorio, markverði Juventus, í aðdraganda marksins. Lokatölur 0-0 og Aston Villa nú í 9. sæti með 10 stig að loknum fimm leikjum á meðan Juventus er í 19. sæti með 8 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira