Bíllinn, sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í tengslum við rannsókn hennar á skotárásinni í Breiðholti í gærkvöld, er kominn í leitirnar, en bíllinn fannst í hverfinu.
Bíllinn sem um ræðir er rauður Toyota Yaris en skotið var að bílnum. Lögregla hefur náð sambandi við þá sem voru í bílnum en veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
Fyrr í dag var greint frá því að tveir væru í haldi lögreglunnar í kjölfar aðgerða hennar og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Fellahverfi í Breiðholti í gærkvöld og nótt.
Um er að ræða karl og konu, en maðurinn er grunaður um að vera annar tveggja sem stóð að skotárásinni. Lögregla leitar enn að einum sem talinn er vera viðriðinn málið.
Vitni segja að hópur manna, allt að 30-50, hafði safnast saman fyrir utan söluturninn í Iðufelli í gær og þar hafi verið mikil um læti áður en heljarinnar slagsmál brutust út.
Hópurinn dreifðist í allar áttir eftir að skotið var tveimur skotum úr haglabyssu í átt að bifreið. Lögregla mætti á svæðið stuttu síðar og hafa sérsveitarmenn og lögreglumenn leitað á svæðinu að byssumanninum og öðrum sem komu að áf
Skotárásin í Breiðholti: Rauði bíllinn fundinn

Tengdar fréttir

Lögregla leitar manna og bifreiðar í kjölfar skotárásar í Fellahverfi
Lögreglan telur að atvikið hafi tengst deilum þröngs hóps og að það hafi ekki beinst að almenningi.

Lögregluaðgerð í Fellahverfi eftir að skotið var tvisvar úr haglabyssu
Hópslagsmál við söluturninn í Iðufelli enduðu með því að hleypt var tveimur skotum úr haglabyssu. Lögregla leitaði mannana fram eftir kvöldi.

Karl og kona í haldi lögreglu vegna skotárásarinnar í Breiðholti
Eins er enn leitað auk þess sem lögregla lýsir eftir rauðri Toyota Yaris bifreið.