Bíó og sjónvarp

Astrópía - þrjár stjörnur

Ævintýramyndir hafa ekki átt uppá pallborðið hjá íslenskum kvikmyndagerðarmönnum. Lengst af hafa þeir helgað sig hinum íslenska raunveruleika og ef til vill voru það víkingar Hrafns Gunnlaugssonar sem síðast felldu mann með sverði fyrir framan kvikmyndatökuvélina.

Bíó og sjónvarp

Leikur í One Tree Hill

Kevin Federline, sem er hvað frægastur fyrir hjónaband sitt og Britney Spears og yfirstandandi forræðisdeilu við hana, mun fara með gestahlutverk í unglingasápunni One Tree Hill, að því er People greinir frá. Hann mun leika Jason, hrokafullan og dularfullan forsprakka hljómsveitarinnar No Means Yes, sem nýtur vinsælda í þeim heimi.

Bíó og sjónvarp

Bourne kemst nær

Minnislausi njósnarinn Jason Bourne snýr aftur í þriðju myndinni en hún var frumsýnd í gær. Að þessu sinni virðist eitthvað vera farið að rofa til hjá honum því í síðustu tveimur myndum hefur Bourne fengið einhver svör um hvaðan hann er og hver hann var en þetta hefur ekki reynst honum fullnægjandi.

Bíó og sjónvarp

Leyndarmálið afhjúpað

Fyrirtækið Græna ljósið hefur tryggt sér útgáfuréttinn á kvikmyndinni The Secret með íslenskri talsetningu og texta. „Ég hef ekki séð aðra eins spennu og eftirspurn eftir nokkrum DVD-diski hér á landi,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Græna ljóssins ,um The Secret.

Bíó og sjónvarp

Leikgerðin að verða til

Gísli Örn Garðarsson segir leikgerð sína eftir Tillsammans óðum vera að skýrast. Leikhópurinn og aðrir sem að uppsetningunni koma dvöldust úti á landi í síðustu viku, við æfingar og annað samspil. Gísli segir dvölina hafa borið mikinn árangur.

Bíó og sjónvarp

Ágúst gerir draugamynd á Grettisgötu

„Þetta er bara kvikmynd sem ég ætla að gera og kemst vonandi á koppinn snemma á næsta ári,“ segir Ágúst Guðmundsson, kvikmyndaleikstjórinn góðkunni, en hann leggur nú lokahönd á handrit sem heitir Ófeigur gengur aftur.

Bíó og sjónvarp

Kynlíf fyrir opnum tjöldum

„Kynlíf hefur svo mikla möguleika sem tjáningarform sem hafa alls ekki verið nýttir að neinu viti í alvarlegum kvikmyndum,“ segir John Cameron Mitchell leikstjóri myndarinnar Shortbus sem er sýnd hér á Bíódögum Græna ljóssins.

Bíó og sjónvarp

Íslendingar í Edinborg

Gríðarlegur fjöldi fólks sækir Edinborgarhátíðina, sem nú stendur yfir, á ári hverju. Í ár eru Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson í þeim hópi, auk þess sem leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir tekur þátt í tveimur sýningum á hátíðinni.

Bíó og sjónvarp

Jamie Foxx í The Soloist

Leikarinn Jamie Foxx hefur tekið að sér hlutverk í kvikmyndinni The Soloist. Fjallar hún um heimilislausa tónlistarmanninn og geðklofann Nathaniel Antony Ayers sem dreymir um að halda tónleika í Walt Disney-tónleikahöllinni.

Bíó og sjónvarp

The Bridge - þrjár stjörnur

Heimildarmyndin The Bridge fjallar um sjálfsvíg á Golden Gate-brúnni við San Fransisco. Brúin er sá staður í heiminum þar sem flestir binda enda á líf sitt. Á um það bil tveggja vikna fresti stekkur einhver fram af brúnni út í nær öruggan dauða.

Bíó og sjónvarp

Killer Joe aftur á svið

Sýningum á Killer Joe verður haldið áfram á Litla sviði Borgarleikhússins í byrjun september og er miðasala þegar hafin á vef leikhússins. Sýningin hlaut mikla athygli og lof bæði gagnrýnenda og áhorfenda í vor, og alls 8 tilnefningar til Grímunnar í júní síðastliðnum.

Bíó og sjónvarp

Samadrama fresta enn

Vandamál steðja að norska leikstjóranum Niels Gaup sem gerði hina eftirminnilegu mynd Leiðsögumanninn, með Helga Skúlasyni. Hann er nú að ljúka við stóra mynd, Kautokeino-uppreisnina, og ætlaði að frumsýna í apríl en þá varð frestun.

Bíó og sjónvarp

Myndinni frestað

Útgáfu heimildarmyndar Martin Scorsese um hljómsveitina The Rolling Stones hefur verið frestað þar til í apríl á næsta ári af markaðsástæðum. Myndin, sem heitir Shine a Light, átti upphaflega að koma út í september og hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu.

Bíó og sjónvarp

Nordisk Panorama nálgast

Norræna heimildar- og stuttmyndahátíðin, Nordisk Panorama, fer fram í Oulo í Finnlandi í síðustu viku september. Hátíðin fer sem kunnugt er milli nokkurra borga á Norðurlöndunum, var haldin í Árósum í fyrra og þar áður í Bergen.

Bíó og sjónvarp

Sjálfsvígsbrúin Golden Gate

Golden Gate brúin við San Fransisco er sá staður í Bandaríkjunum sem flestir fyrirfara sér. Í annarri hverri viku að meðaltali stekkur einhver fram af. Heimildarmyndin The Bridge, sem verður sýnd á Bíódögum Græna ljóssins sem hefjast í dag, fjallar um sjálfsvígin á brúnni.

Bíó og sjónvarp

Yfirmaður óskast

Mannaskipti verða hjá Nordisk Filmkontakt um næstu áramót þegar ráða á nýjan framkvæmdastjóra samtakanna. Karolina Lidin sem hefur gegnt starfinu um árabil hættir og rennur umsóknarfrestur fyrir starfið út 17. ágúst. Karolina er mjög virt í heimi kynningar, dreifingar og fjármögnunar á heimildar- og stuttmyndum og hefur staðið sig afar vel í starfi.

Bíó og sjónvarp

Heimildarmynd Sigur Rósar frumsýnd 27. september

Heimildamynd um tónleikaferð Sigur Rósar um Ísland í fyrra verður frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík fimmtudaginn 27. september. Tónleikaferðalagið sveitarinnar var allt kvikmyndað og fá aðdáendur nú að njóta afraksturins í mynd um ferðalagið sem hlotið hefur nafnið Sigur Rós - Heima.

Bíó og sjónvarp

Bergmansþing í kvöld

Rannsóknahópurinn Deus ex cinema stendur fyrir málþingi í kvöld sem ber yfirskriftina Guð á hvíta tjaldinu um trúarleg minni í verkum sænska leikstjórans Ingmars Bergman sem lést í júlí og fleiri stórskálda kvikmyndanna.

Bíó og sjónvarp

Ingvar í ævintýradrama fyrir fullorðna

Nýlega lauk tökum á stuttmynd sem byggir á Grímsævintýri og heitir hún Harmsaga. Myndin er ævintýradrama fyrir fullorðna með drungalegu ívafi. Valdimar Jóhannsson leikstýrir myndinni og var hún tekin upp í Arnarfirði á Vestfjörðum í síðasta mánuði.

Bíó og sjónvarp

Stórmynd í uppnámi

Eitt stærsta verkefni í norrænum kvikmyndaiðnaði er í uppnámi. Norrænar sjónvarpsstöðvar réðust í það í fyrra að láta gera handrit eftir þríleik sænska rithöfundarins Jan Guillou um þátt norrænna manna í krossferðunum.

Bíó og sjónvarp

Heima frumsýnd á RIFF

Heima, mynd um tónleikaferð hljómsveitarinnar Sigur Rósar um Ísland, verður frumsýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, 27. september næstkomandi. Þetta kemur fram á Soundgenerator.com.

Bíó og sjónvarp