Erlent
176 177 178 179 180 181 182 183 184 … 334 ›
Fyrrverandi starfsmaður handtekinn vegna dráps á biskupi Karlmaður sem lögreglan í Los Angeles í Bandaríkjunum handtók í tengslum við morð á þekktum biskupi er eiginmaður þernu biskupsins og hafði sjálfur unnið fyrir hann. Lögregla rannsakar enn tilefni morðsins. Erlent 21.2.2023 08:49
Pútín Rússlandsforseti flytur stefnuræðu sína í dag Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun í dag flytja árlega stefnuræðu sína til rússnesku þjóðarinnar. Til stóð að ræðan yrði flutt í desember síðastliðnum en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 21.2.2023 08:47
Fundu flugvélarflak á eldfjalli Yfirvöld á Filippseyjum hafa sent björgunarhópa upp á óvirka eldfjallið Mayon í leit að fjórum mönnum sem taldir eru hafa brotlent á fjallinu. Í gær náðu björgunaraðilar að staðsetja flugvélarflak mannanna ofan á fjallinu. Erlent 21.2.2023 07:21
Þrír látnir í Tyrklandi eftir skjálfta gærdagsins Björgunarsveitir í Tyrklandi leita nú aftur að fólki í rústum húsa eftir að tveir öflugir skjálftar riðu þar yfir í gær. Erlent 21.2.2023 06:32
Annar öflugur skjálfti á landamærum Tyrklands og Sýrlands Jarðskjálfti af stærðinni 6,4 reið yfir á landamærum Tyrklands og Sýrlands fyrir skömmu. Aðeins tvær vikur eru frá því að skjálfti af stærðinni 7,8 skók svæðið með þeim afleiðingum að 47.000 hafa látist og gríðarlegur fjöldi mannvirkja jafnaðist við jörðu. Erlent 20.2.2023 18:30
Staðfesta að hin látna er Bulley Lík sem fannst í ánni Wyre í Lancashire á Englandi í gær er lík Nicola Bulley, tveggja barna móður sem hvarf sporlaust þann 27. janúar síðastliðinn. Erlent 20.2.2023 17:53
Spánn: Svínaskítafýla allan ársins hring Spánn hefur á síðustu 15 árum skipað sér í fararbrodd sem stærsti svínaræktandi Evrópu. Þetta má þakka dreifbýlisátaki sem ætlað var að styrkja minnstu þorpin í landinu. Þar ríkir nú megn óánægja með átakið. Það eina sem það hafi skilið eftir sig sé svínaskítafýla alla daga ársins. Erlent 20.2.2023 13:30
Fjármálaráðherrann vill taka við af Sturgeon Kate Forbes, fjármálaráðherra Skotlands, hefur tilkynnt að hún sækist eftir að taka við af Nicolu Sturgeon sem leiðtogi Skoska þjóðarflokksins og þar með verða næsti fyrsti ráðherra landsins. Erlent 20.2.2023 13:21
Telja að biskup hafi verið myrtur í Los Angeles Lögreglan í Los Angeles-sýslu rannsakar lát kaþólsks biskups á laugardag sem morð. Biskupinn var skotinn til bana á heimili sínu og byssumaðurinn eða mennirnir ganga enn lausir. Erlent 20.2.2023 12:00
Biden í óvæntri heimsókn til Kænugarðs Joe Biden Bandaríkjaforseti er mættur í óvænta heimsókn til úkraínsku höfuðborgarinnar Kænugarðs. Hann fundaði með Vólódýmír Selenskí Úkraínuforseta í morgun. Erlent 20.2.2023 10:26
Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun. Erlent 20.2.2023 10:12
Enn einni Teslunni ekið á neyðarbifreið vestanhafs Ökumaður Tesla-bifreiðar lést og farþegi slasaðist alvarlega þegar henni var ekið á kyrrstæða slökkvibifreið á hraðbraut í norðanverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum á laugardag. Brunabílnum hafði verið lagt til að vernda slökkviliðsmenn á vettvangi annars slyss. Fjöldi sambærilegra slysa þar sem Teslur koma við sögu hefur átt sér stað vestanhafs. Erlent 20.2.2023 08:47
Svíakonungur gengst undir hjartaaðgerð Karl Gústaf Svíakonungur mun gangast undir hjartaaðgerð í dag. Erlent 20.2.2023 08:19
Tugir látnir eftir óveður í Brasilíu Yfirvöld í São Paulo fylki í Brasilíu segja að þrjátíu og sex séu látnið hið minnsta eftir flóð og aurskriður sem fylgdu miklu óveðri sem gekk yfir um helgina. Erlent 20.2.2023 07:26
Aukinn stuðningur Kína við Rússa yrði dýru verði keyptur Bandarísk stjórnvöld telja ljóst að Kínverjar íhugi nú að veita Rússum beinan stuðning í innrásarstríði þeirra í Úkraínu í formi vopna. Sérfræðingur í alþjóðamálum telur að slíkur stuðningur yrði Kínverjum afar dýrkeyptur. Erlent 19.2.2023 22:00
Stjórnvöld verða að bjóða unglingum nautaat Hæstiréttur Spánar segir að nautaat sé hluti af menningararfi spænsku þjóðarinnar. Þess vegna verði stjórnvöld að leyfa ungu fólki að nota menningarstyrk sem það fær við 18 ára aldur, til að að fara á nautaat. Ríkisstjórn sósíalista ákvað í fyrra að útiloka nautaat frá menningarstyrknum. Erlent 19.2.2023 15:01
Fundu lík þar sem Bulley hvarf Í kringum hádegi í dag fann lögreglan í Lancashire lík í ánni Wyre. Áin er í nágrenni við síðustu þekktu staðsetningu Nicola Bulley, tveggja barna móður á fimmtugsaldri, sem hvarf sporlaust þann 27. janúar síðastliðinn. Erlent 19.2.2023 14:58
Fá ekki að mæta á verðlaunaafhendingu vegna ógnar við almenning Rússneskum fréttamanni og fjölskyldu hans hefur verið meina að mæta á afhendingarathöfn Bafta verðlaunanna. Lögregluyfirvöld í Bretlandi telja að almenningi myndi stafa ógn af mætingu hans þar sem hann er eftirlýstur af yfirvöldum í Rússlandi. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir umfjöllun sína um Alexei Navalní. Erlent 19.2.2023 12:22
Sex ákærðir eftir að átján flóttamenn fundust látnir í sendiferðabíl Saksóknari í Búlgaríu hefur ákært sex manns fyrir mansal eftir að átján afganskir flóttamenn fundust látnir aftan í sendiferðabíl í nágrenni við Sófíu. 52 flóttamönnum hafði verið troðið í sendiferðabílinn „eins og í sardínudós,“ að sögn saksóknara. Erlent 19.2.2023 08:23
Jimmy Carter liggur banaleguna Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er í líknandi meðferð. Hann hefur nýverið varið tíma á sjúkrahúsi en ákvað í dag að verja þeim tíma sem hann á eftir á heimili sínu með fjölskyldu sinni. Erlent 18.2.2023 21:04
Slapp frá mannræningja með því að læsa sig inni á bensínstöð Kona sem hafði verið haldið nauðugri í nærri því ár, slapp með því að læsa sig inni á bensínstöð í New Jersey í Bandaríkjunum. Maður sem hún hóf samband með beitti hana ofbeldi og hélt henni nauðugri um langt skeið. Hann hefur verið ákærður fyrir mannrán. Erlent 18.2.2023 20:43
Saka Rússa um glæpi gegn mannkyninu Yfirvöld í Bandaríkjunum segja hersveitir Rússa hafa framið glæpi gegn mannkyninu í Úkraína. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, opinberaði þetta í ræðu á öryggisráðstefnunni í München í dag og sagði nauðsynlegt að hinir seku yrðu dregnir til ábyrgðar fyrir glæpina. Erlent 18.2.2023 18:51
Sektaður fyrir að auglýsa eftir miðaldra konu Eigandi skóbúðar í Barcelona hefur verið sektaður um andvirði 1.200 þúsund íslenskra króna fyrir að auglýsa eftir miðaldra konu til að starfa í búðinni. Erlent 18.2.2023 16:00
Norður-Kóreumenn skutu eldflaug inn í lofthelgi Japana Norður-Kóreumenn skutu langdrægri eldflaug í hafið við Vesturströnd Japans í morgun. Í gær vöruðu þeir nágranna sína til Suðurs og Bandaríkjamenn við því að þeir myndu bregðast harkalega við æfingum herja þjóðanna tveggja á næstu dögum. Erlent 18.2.2023 11:59
Tala látinna komin í 45 þúsund Tala látinna eftir jarðskjálftann í Tyrklandi og Sýrlandi er komin í 45 þúsund og óttast er að hún hækki. 264 þúsund íbúðarhús hrundu í Tyrklandi en síðast í gær var þremur bjargað úr rústum þar í landi. Stríðsátök eru hafin á ný í Sýrlandi, sem hamlar björgunarstarfi. Erlent 18.2.2023 08:05
Sex skotin til bana í smábæ Sex létust í röð skotárása í smábænum Arkabutla í Mississippi í Bandaríkjunum í dag. Einn hefur verið handtekinn, grunaður um ódæðið. Erlent 17.2.2023 21:27
Lögregluþjónarnir lýsa yfir sakleysi Fyrrverandi lögregluþjónarnir fimm sem ákærðir hafa verið fyrir að berja Tyre Nichols til bana, lýstu allir yfir sakleysi sínu í dómsal. Þetta var í fyrsta sinn sem þeir mættu í dómsal eftir dauða Nichols, sem vakti mikla athygli og reiði um gervöll Bandaríkin. Erlent 17.2.2023 16:19
„Davíð sigraði ekki Golíat með orðum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði í dag öryggisráðstefnuna í München þar sem hann kallaði eftir því að Vesturlönd flýttu vopnasendingum til Úkraínu og útveguðu Úkraínumönnum þau vopn sem þeir þyrftu til að sigra Rússa. Erlent 17.2.2023 15:43
Öryggisvörður sem njósnaði fyrir Rússa leiddur í gildru Breskur öryggisvörður í sendiráði Breta í Berlín hefur verið dæmdur í rúmlega þrettán ára fangelsi fyrir að njósna fyrir Rússa. David Ballantyne Smith er 58 ára gamall en sagðist ekki hafa ætlað að valda skaða. Erlent 17.2.2023 13:39
Fimmtíu þúsund vetrarbrautir á einni mynd Djúpmynd sem James Webb-geimsjónaukinn tók nýlega skartar um það bil fimmtíu þúsund vetrarbrautum sem eru í milljarða ljósára fjarlægð frá jörðinni. Myndin er ein sú dýpsta sem sjónaukinn hefur tekið til þessa. Erlent 17.2.2023 13:08