Erlent
178 179 180 181 182 183 184 185 186 … 334 ›
Haley fer fram gegn Trump Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, lýsti því yfir í morgun að hún ætli í forsetaframboð. Hún er sú fyrsta sem lýsir yfir framboði eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti, lýsti því yfir í nóvember í fyrra að hann ætlaði að gera aðra atlögu að Hvíta húsinu. Erlent 14.2.2023 14:02
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Geta ekki bæði varið Bakhmut og undirbúið gagnárásir Bandaríkjamenn hafa varað ráðamenn í Úkraínu við því að næstu mánuðir verði mikilvægir og að þeir eigi að einbeita sér að undirbúningi gagnárása í vor, frekar en að verja Bakhmut. Úkraínumenn skortir skotfæri og varahluti við varnir gegn umfangsmiklum árásum Rússa, sem hafa litlum árangri skilað hingað til. Erlent 14.2.2023 14:00
Tvö fimmtán ára grunuð um að hafa myrt sextán ára stúlku Stelpa og strákur, bæði fimmtán ára gömul, hafa verið handtekin af lögreglu grunuð um að hafa stungið sextán ára gamla stúlku til bana í almenningsgarði í Culcheth. Erlent 14.2.2023 13:11
Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum. Erlent 14.2.2023 11:08
Náði að rétta flugvélina af 800 fetum yfir Kyrrahafi Flugvél United sem var á leið frá Maui á Havaii til San Fransisco hrapaði skyndilega yfir Kyrrahafi áður en flugmaðurinn náði að rétta hana af um 800 fet fyrir ofan hafið. Þetta gerðist stuttu eftir flugtak í desembermánuði og mátti litlu muna að flugvélin færist. Erlent 14.2.2023 10:54
Fundu fólk á lífi eftir átta daga Björgunarsveitarmenn, hermenn og aðrir leitarmenn í Tyrklandi fundu í morgun fólk á lífi í rústum húsa sem hrundu fyrir átta dögum síðan. Minnst þrír fundust á lífi í rústum húsa en leitað er í þremur héruðum Tyrklands. Sérfræðingar segja litlar líkur á því að margir muni finnast á lífi. Erlent 14.2.2023 10:20
Átta ára drengur talinn hafa látist eftir að hafa fengið raflost Átta ára gamall ástralskur drengur er talinn hafa látist eftir að hafa fengið raflost á meðan hann var í fríi með fjölskyldunni sinni á Fídji. Drengurinn fannst meðvitundarlaus í blómabeði á hótelinu og var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í kjölfarið. Erlent 14.2.2023 10:07
Varar við að Rússar hyggi á valdarán Forseti Moldóvu hefur sakað Rússa um áætlanir um valdarán í Moldóvu með því að fá „erlenda skemmdarverkamenn“ til að steypa stjórninni í landinu. Erlent 14.2.2023 09:19
Hafa haft uppi á skynjurum úr meintum njósnabelgjum Talsmenn bandaríska hersins segja að tekist hafi að hafa uppi á skynjurum úr meintum kínverskum njósnabelg, þeim fyrsta skotinn var niður yfir Atlantshafi fyrir tíu dögum. Erlent 14.2.2023 08:01
Þrír skotnir til bana í háskóla í Michigan Að minnsta kosti þrír létust og fimm særðust hið minnsta þegar byssumaður hóf skothríð á svæði Ríkisháskólans í Michigan (e. Michigan State University (MSU)) í East Lansing í Bandaríkjunum í nótt. Erlent 14.2.2023 06:42
Neyðarástand á Nýja-Sjálandi Neyðarástandi hefur nú verið lýst yfir á öllu Nýja Sjálandi vegna fellibylsins Gabriellu sem hefur víða valdið gríðarlegu tjóni. Erlent 14.2.2023 06:25
Fjölmenn mótmæli í Ísrael: „Þau heyra og þau eru hrædd“ Tugþúsundir Ísraelsmanna mótmæltu á götum Jerúsalem í gær vegna fyrirhugaðra breytinga á réttarkerfi landsins. Breytingarnar hafa verið harðlega gagnrýndar, sérstaklega þar sem þær eru kynntar í skugga réttarhalda yfir forsætisráðherra landsins sem grunaður er um spillingu. Erlent 14.2.2023 00:09
Keyrði á gangandi vegfarendur í New York Karlmaður var í dag handtekinn í New York eftir að hafa keyrt á gangandi vegfarendur á sendiferðabíl. Að minnsta kosti tveir liggja þungt haldnir á spítala eftir atvikið. Erlent 13.2.2023 18:39
Segja Rússa hafa misst heilt stórfylki við Vuhledar Úkraínumenn segja Rússa hafa misst mikinn fjölda atvinnuhermanna í árásum á bæinn Vuhledar í Dónetsk héraði. Í raun hafi Rússar misst heilt stórfylki (Brigade) landgönguliða í árásum á bæinn en árásirnar hafa litlum sem engum árangri skilað. Erlent 13.2.2023 15:17
Hvarf sporlaust en síminn og hundataumurinn urðu eftir Lögreglan í Bretlandi leitar enn lifandi ljósi að tveggja barna móður á fimmtugsaldri sem hvarf sporlaust fyrir rúmum tveimur vikum. Síðast sást til hennar þegar hún fór út að ganga með hundinn sinn við Wyre ána 27. janúar. Erlent 13.2.2023 13:31
Fannst lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir um að finna fleiri dvína Sífellt færri finnast nú lifandi í rústunum í Tyrklandi en vika er liðin frá mannskæðustu jarðskjálftum á svæðinu í áratugi. Kona fannst í dag lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir fara dvínandi og spjótin beinast að gölluðum mannvirkjum. Íslenskt sérfræðingateymi stýrir enn aðgerðum rústabjörgunarsveita en færði sig um set í gær. Erlent 13.2.2023 12:50
Segja dularfullt andlát átta ára barns hræðilegt slys Átta ára gamalt barn búsett í Sydney í Ástralíu lést á Fídjí á fimmtudag í kjölfar þess að það fannst meðvitundarlaust í gróðurbeði í hótelgarði. Lögregla segir að um sé að ræða hræðilegt slys. Erlent 13.2.2023 10:18
Sýrlendingar örvæntingarfullir og enn berst lítil aðstoð Sýrlendingar sem lifðu tvo stóra jarðskjálfta, sem riðu yfir norðurhluta Sýrlands og suðurhluta Tyrklands í síðustu viku, af eru örvæntingarfullir. Lítil aðstoð hefur borist, enda landsvæði þeirra undir stjórn uppreisnarmanna, en þeir sem lifðu hryllinginn af glíma nú við sult og kulda. Erlent 13.2.2023 08:18
Vita ekki hvernig fljúgandi furðuhlutirnir haldast á lofti Mikið hefur gengið á í lofthelgi Bandaríkjanna undanfarna daga. Bandaríkjaher hefur skotið niður fjóra fljúgandi hluti á átta dögum, síðast í gær. Að sögn talsmanna hefur svona ekki gerst innan bandarískrar lofthelgi á friðartímum. Erlent 13.2.2023 07:23
Hátt í fimmtíu þúsund heimili rafmagnslaus í Nýja-Sjálandi Tæplega fimmtíu þúsund heimili eru rafmagnslaus í Nýja-Sjálandi vegna fellibyljarins Gabríellu sem gengur yfir norðurhluta landsins. Yfirvöld í eyríkinu hafa gefið út viðvaranir vegna vinda og rigninga og hundruð flugferða hafa fallið niður vegna veðursins. Erlent 13.2.2023 06:28
Óttast að dánartalan tvöfaldist Yfir þrjátíu þúsund eru nú látin eftir gríðarlegan jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi fyrir tæpri viku. Sameinuðu þjóðirnar óttast að dánartalan muni tvöfaldast. Tyrkir eru nú byrjaðir að handtaka verktaka vegna húsa sem hrundu en umdeilt er hvar ábyrgðin raunverulega liggur. Neyðarsöfnun Rauða kross Íslands hefur gengið vel og verða 30 milljónir sendar til Rauða krossins í Tyrklandi og Sýrlandi. Erlent 12.2.2023 23:50
Fjórði fljúgandi hluturinn skotinn niður af Bandaríkjaher Bandaríkjaher skaut fyrir skömmu niður enn annan fljúgandi hlutinn í mikilli hæð yfir stöðuvatninu Huron í Michican fylki í Bandaríkjunum, skammt frá landamærum Kanada. Um er að ræða fjórða hlutinn sem skotinn er niður í þessum mánuði í Norður-Ameríku. Erlent 12.2.2023 21:50
Bandaríkjamenn óskuðu eftir frekari aðstoð íslenska hópsins Stjórnstöð íslenska hópsins sem sinnir björgunarstarfi á jarðskjálftasvæðum í Tyrklandi var í dag flutt að ósk Bandaríkjamanna, frá borginni Antakya til Adiyaman. Óskað var eftir því að Íslendingar myndu fylgja með til að tryggja áfram samfellu í störfum alþjóðlegra björgunarsveita. Fjórir aðgerðarstjórnendur voru því sóttir af þyrlu bandaríska hópsins en hinn hluti hópsins hefur lagt af stað heim til Íslands. Erlent 12.2.2023 20:07
Stoltenberg lætur af embætti í október Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO hyggst láta af embætti í október líkt og stóð til. Fjölmiðlar höfðu undanfarið greint frá því að framlenging á hans samningi væri í kortunum. Erlent 12.2.2023 18:02
Frakkar vilja ekki hækka eftirlaunaaldurinn Forseti Frakklands er ákveðinn í að hækka eftirlaunaaldur Frakka úr 62 árum í 64. 70% þjóðarinnar er andsnúinn þeim áformum og komið hefur til harðra mótmæla. Hækkun eftirlaunaaldursins gæti styrkt stöðu franskra þjóðernissinna. Erlent 12.2.2023 16:31
Saka Kínverja um lygar sem vísa ásökunum á bug Bandarísk yfirvöld halda að óþekktir hlutir sem skotnir voru á flugi yfir Norður-Ameríku í gær og á föstudag hafi verið einhvers konar blöðrur. Bandaríkjamenn saka Kínverja um lygar en vika er síðan Bandaríkjamenn skutu niður meintan njósnabelg Kínverja. Erlent 12.2.2023 16:02
Arne Treholt látinn Norski njósnarinn Arne Treholt er látinn, áttatíu ára gamall. Hann lést á heimili sínu á Moskvu þar sem hann hefur verið búsettur síðustu ár. Hann lætur eftir sig son og tvö barnabörn. Erlent 12.2.2023 14:42
Íslenski hópurinn í Tyrklandi: „Þetta er mjög slæmt ástand“ Erlendur Birgisson verkfræðingur, meðlimur íslenska hópsins í Antayka í Tyrklandi, aðstoðaði svissnesku björgunarsveitina fyrir helgi við leit að einstakling í rústum í borginni. Fregnir höfðu borist af því að heyrst hefði í manni í rústunum en leit bar ekki árangur. Sjúkraflutningamaður segir ástandið mjög slæmt. Erlent 12.2.2023 10:24
Skutu niður „óþekktan hlut“ yfir Kanada Óþekktur hlutur var skotinn niður í kanadískri lofthelgi nú í kvöld. Vika er liðin frá því að Bandaríkjaher skaut niður loftbelg sem þeir töldu vera kínverskan njósnabelg. Erlent 11.2.2023 23:25
Bara tvö eftir Fimm manna fjölskylda og sextán ára piltur eru á meðal þeirra sem fundust á lífi í Tyrklandi í dag, heilum fimm dögum eftir gríðarlegan jarðskjálfta á mánudag. Þúsundir barna hafa orðið munaðarlaus í hamförunum, þar á meðal sýrlensk systkini sem upplifðu ólýsanlegan hrylling. Erlent 11.2.2023 20:01