Íslenski boltinn

Dýrmætur sigur Þórs en toppliðið skoraði ekki
Fjölnismenn verða á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta að loknum fyrri helmingi deildakeppninnar, eftir markalaust jafntefli við Keflavík í kvöld í 11. umferðinni.

Liðsfélagar Helga skjóta hann í hausinn: „Ég þarf að ræða við þá eða drulla mér í burtu bara“
Helgi Guðjónsson hefur tvisvar á síðustu dögum fengið dúndurbolta í andlitið frá eigin liðsfélaga. Bæði skiptin slapp við hann við heilahristing en hann segist þurfa að eiga orð við þá Viktor Örlyg og Ara Sigurpálsson, nú eða bara finna leiðir til að forða sér úr aðstæðum.

„Eru örugglega að leita sér að einhverju fersku“
Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar hennar í Bestu mörkunum ræddu framtíð Sigdísar Evu Bárðardóttur, átján ára framherja Víkings, en hún gæti verið á förum úr Víkinni á næstu vikum.

Sjáðu sextán ára stelpu koma meisturunum til bjargar
Valskonur komust upp að hlið Breiðabliki í Bestu deild kvenna í fótbolta eftir sigur á Þrótti í gær en það munaði ekki miklu að Íslandsmeistararnir töpuðu stigum.

Uppgjörið, viðtöl og myndir: Víkingur - Stjarnan 1-1 (5-4) | Víkingar í úrslit enn á ný
Víkingur er komið í úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í fimmta skiptið í röð eftir sigur á Stjörnunni í vítaspyrnukeppni.

„Þurfum bara að dekka í svona leikatriðum“
„Það er ekki hægt að setja tölur á tilfinningar og það er bara svekkjandi að tapa. Þetta var 0-0 leikur og við bara klikkum á dekkningu undir lokin og Valur refsar,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Þróttar, eftir grátlegt 1-0 tap gegn Valskonum á Hlíðarenda í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Uppgjörið: Valur - Þróttur 1-0 | Dramatískur sigur Íslandsmeistaranna
Valur sigraði Þrótt með sigurmarki á 90. mínútu að Hlíðarenda í 11. umferð Bestu deild kvenna . Lokatölur 1-0 í jöfnum leik sem Þróttarar geta verið sár svekktir með að fara tómhentir heim.

Uppgjörið: Þór/KA - FH 0-1 | Ída Marín tryggði sigur gestanna
FH vann sætan sigur á Þór/KA, 0-1, er liðin mættust á Akureyri. Gestirnir mun sterkari og áttu sigurinn skilið.

Víkingar geta náð því sem enginn hefur gert í sextíu ár
Víkingar eru einum leik frá fimmta bikarúrslitaleiknum í röð og sá leikur er á móti Stjörnunni í kvöld í undanúrslitum Mjólkurbikars karla.

Sjáðu markið sem skilaði Stjörnunni fyrsta sigrinum í fimm leikjum
Aðeins tvö mörk voru skoruð í þremur leikjum Bestu deildar kvenna í gær. Andrea Rut í Breiðablik og Úlfa Dís í Stjörnunni tryggðu sigur fyrir sín lið með skotum fyrir utan teig sem má sjá hér að neðan.

„Bæði lið gátu klárlega stolið þessu í dag“
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, segir að tilfinningarnar séu blendnar eftir að lið hans gerði jafntefli við Víking í Bestu deild kvenna í kvöld. Leikurinn var mjög kaflaskiptur og gátu bæði lið tekið stigin þrjú hér í dag en niðurstaðan var markalaust jafntefli sem flestir myndu segja að væri sanngjörn úrslit.

Uppgjör og viðtöl: Fylkir-Víkingur R. 0-0 | Ekkert mark í baráttuleik
Fylkir og Víkingur gerðu markalaust jafntefli í kvöld í uppgjöri nýliðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Hallgrímur: Við hefðum getað skorað sjö mörk
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var kátur í leikslok í kvöld eftir að hafa slegið stórlið Valsmanna út úr bikarnum og komist þar með í bikarúrslitaleikinn annað árið í röð. Þetta hefur verið erfitt sumar fyrir KA-menn en Hallgrímur er búinn að koma sínum mönnum á beinu brautina.

Uppgjör og viðtöl: KA - Valur 3-2 | KA sló út Val og komst í bikarúrslitin annað árið í röð
KA-menn hafa aldrei unnið bikarinn en þeir spila sinn fimmta bikarúrslitaleik í haust eftir 3-2 sigur á stjörnuprýddu liði Valsmanna á Akureyri í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson snéri aftur í lið Vals en það dugði ekki til að koma liðinu á Laugardalsvöllinn.

Uppgjör og viðtöl: Tindastóll - Breiðablik 0-1 | Andrea Rut hetja Blika á Króknum
Blikakonur náði þriggja stiga forskoti á toppi Bestu deildar kvenna eftir 1-0 sigur á Tindastól á Sauðárkróki í kvöld.

Uppgjör: Stjarnan-Keflavík 1-0 | Sigur í fyrsta leik nýja þjálfarans
Stjarnan vann mikilvægan og langþráðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Keflavík í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld, í fyrsta leik liðsins undir stjórn Jóhannesar Karls Sigursteinssonar.

„Við Olla erum enn vinkonur, er það ekki?“
„Ég er bara alltaf kölluð Olla, af öllum einhvern veginn,“ sagði Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, framherji Breiðabliks og Harvard-háskólans í Bandaríkjunum, en hún sleit nýverið krossband í hné og verður frá það sem eftir lifir leiktíðar í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Telma ekki efst þrátt fyrir að fá varla á sig mark
Breiðablik hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk í fyrstu 10 umferðum Bestu deildar kvenna. Þrátt fyrir það er aðalmarkvörður liðsins, Telma Ívarsdóttir, ekki í efst meðal jafningja þegar skoðað er hvaða markverðir hafa komið í veg fyrir flest mörk.

„Takk fyrir að berjast alltaf fyrir okkur stelpunum“
Kristján Guðmundsson hefur stýrt sínum síðasta leik hjá kvennaliði Stjörnunnar en hann ákvað að hætta með liðið eftir tap á móti Víkingi í síðustu viku. Stjörnustelpurnar eru þakklátar fráfarandi þjálfara sínum.

Fagnaði markinu með því að þykjast kasta vatnsbrúsa
Víkingur hélt út gegn Fram og vann 2-1 sigur í 13. umferð Bestu deildar karla. Mörkin úr leiknum og sérstakt fagn Danijels Dejan Djuric má sjá hér fyrir neðan.

Uppgjör: Víkingur R. - Fram 2-1 | Meistararnir héldu út
Topplið Víkings tók á móti Fram í 13. umferð Bestu deildar karla nú í kvöld. Leikið var á Víkingsvelli. Eftir afar spennandi leik sigruðu Víkingar 2-1 og styrkja stöðu sína því á toppnum.

Evrópubikarmeistarinn skoraði tvö mörk í fjórðu deildinni
Benedikt Gunnari Óskarssyni er greinilega fleira til lista lagt en að spila handbolta. Hann skoraði nefnilega tvö mörk í 4. deildinni í fótbolta í gær.

„Það væri gaman að fylla Laugardalsvöllinn og ég held að það sé alveg möguleiki“
Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður með lið sitt eftir 3-0 sigur gegn Þrótti en Valskonum tókst þar að tryggja farseðilinn í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna.

Uppgjör og viðtöl: Valur - Þróttur 3-0 | Valskonur í bikarúrslit
Valur og Þróttur mættust í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna nú í dag. Svo fór að Valur vann sannfærandi 3-0 sigur og í leiðinni tryggði liðið sig í úrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem Breiðablik bíður þeirra en Blikar tryggðu sig í úrslitin í gær með 2-1 sigri á Þór/KA eftir framlengdan leik.

Pálmi klárar tímabilið með KR
Pálmi Rafn Pálmason stýrir KR út tímabilið. Félagið greindi frá þessu í dag.

Sjáðu dramatíkina á Akranesi og hvernig FH og KA unnu sína leiki
Níu mörk voru skoruð í seinni þremur leikjunum í 12. umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

Uppgjör: Þór/KA 1-2 Breiðablik | Írena kom Blikum í bikarúrslitin með marki beint úr horni
Breiðablikskonur eru komnar í bikarúrslitaleikinn fjórða árið í röð eftr 2-1 sigur á Þór/KA fyrir norðan í undanúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í fótbolta.

„Fannst við vera betri allan leikinn“
Böðvar Böðvarsson spilaði af stakri prýði í vinstri bakvarðarstöðunni hjá FH þegar liðið fór með 1-0 sigur af hólmi gegn Breiðabliki í leik liðanna í 12. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kaplakrikavelli í kvöld.

Uppgjör og viðtöl: HK - KA 1-2 | KA sloppið úr fallsæti eftir tvo sigra í röð
KA-menn hoppuðu upp úr fallsæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á HK í Kórnum í kvöld. Þetta var í fyrsta sinn í sumar sem KA liðið vinnur tvo deildarleiki í röð og um leið enduðu þeir tveggja leikja sigurgöngu HK-liðsins.

„Við börðumst eins og ljón“
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var ánægður með að ná í þrjú stig í Kórnum í kvöld. Leikurinn var annar sigurleikur KA í röð í Bestu deildinni og er liðið komið úr fallsæti.