Menning
175 176 177 178 179 180 181 182 183 … 334 ›
Dansandi aftur á svið Um helgina hefjast sýningar í Borgarleikhúsinu á nóvemberverkum Íslenska dansflokksins og verða sýningar á þeim næstu sunnudaga. Menning 8.11.2008 06:00
Þýskir gestir Í dag opnar ný sýning í Kling & Bang gallerí á Hverfisgötu 42 þar sem 16 listamenn frá Berlín slást í lið með 9 íslenskum listamönnum er reka Kling & Bang gallerí. Menning 8.11.2008 06:00
Uppboð í Fold Galleri Fold heldur uppboð á mánudagskvöldið kemur í húsnæði sínu við Rauðarárstíg og hefst það kl. 18. Fjöldi verka verða boðin upp að venju og þar á meðal fjölmörg verka gömlu meistaranna en einnig eftir nokkra af samtímalistamönnum okkar. Menning 8.11.2008 06:00
Mikið að gera hjá Snorra Snorri Ásmundsson myndlistarmaður hefur mikið að gera þessa dagana. Á einni viku kemur hann að þremur sýningum í Reykjavík. Í dag á hann verk á samsýningu í Kling og Bang gallerí á Hverfisgötu, á þriðjudeginum 11. nóvember opnar hann einkasýningu á Gallerí Vegg hjá Helga Þorgilssyni myndlistarmanni og á föstudeginum 14. nóvember opnar hann einkasýningu í Gallerí Turpentine í Ingólfsstræti. Þá hefur Snorri sett upp nýja heimasíðu: http://flotakona.com. Menning 8.11.2008 06:00
Verk Sigtryggs í New York Leikrit Sigtryggs Magnasonar, Herjólfur er hættur að elska, verður leiklesið á alþjóðlegri leiklistarhátíð sem verður haldin 15. til 16. nóvember í New York. Menning 8.11.2008 05:30
Leitað til fortíðar Ný tónleikasyrpa í tónleikaröðinni 15:15 hefst í Norræna húsinu á sunnudag kl. 15.15, eins og lög gera ráð fyrir. Tónleikarnir bera yfirskriftina Leitað til fortíðar, enda eiga verkin sem flutt verða það sameiginlegt að byggja á þjóðdönsum, þjóðlögum, fornum sögum eða ljóðum. Menning 7.11.2008 08:00
Hjón leika á orgel Hjónin Lára Bryndís Eggertsdóttir og Ágúst Ingi Ágústsson halda orgeltónleika í Langholtskirkju á sunnudagskvöld kl. 20. Segja má að tónleikarnir séu sannkallaður fjölskylduviðburður, enda leika þau hjónin tónlist eftir Johann Sebastian Bach og syni hans þá Carl Philipp Emanuel Bach og Johann Christian Bach. Menning 7.11.2008 07:00
Sýning Braga framlengd Vegna mikillar aðsóknar verður Augnasinfónía, sýning Braga Ásgeirssonar á Kjarvalsstöðum, framlengd til 4. janúar næstkomandi. Um fimmtán þúsund gestir hafa nú séð sýninguna og fer aðsókn síst dvínandi. Menning 7.11.2008 06:30
Söngvar Berlins í Salnum Izzy Bailine, betur þekktur sem Irving Berlin, var einn afkastamesti höfundur sönglaga í amerískri dægurmenningu. Hann fluttist sem smábarn frá Rússlandi til Bandaríkjanna og hafði ofan af fyrir sér á unglingsárunum sem syngjandi þjónn á sumum af vafasömustu knæpum neðri hluta Manhattan. Menning 7.11.2008 06:00
Stigvaxandi sala Breska forlagið Quercus er að skipuleggja stærstu markaðsherferð sem þeir nokkru sinni hafa skipulagt, fyrir aðra bók Stiegs Larsson, Stúlkan sem lék sér að eldi, en fyrsta bók hans, Karlar sem hata konur, er nýkomin út hjá Bjarti. Quercus gefur bókina út innbundna í janúar á næsta ári. Menning 7.11.2008 05:30
Sýning bræðra Bræðurnir Þorsteinn H. Ingibergsson og Bragi J. Ingibergsson opnuðu ljósmyndasýningu í Frímúrarahúsinu að Ljósatröð 2 í Hafnarfirði um miðjan síðasta mánuð. Menning 7.11.2008 05:30
Bræður munu berjast Í kvöld verður leikritið Vestrið eina eftir írska leikskáldið Martin McDonagh frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Er það fimmta verk leikskáldsins sem sýnt er á íslensku leiksviði. Menning 7.11.2008 04:00
Malarastúlkan fagra Tvö Schubert-kvöld verða haldin í Íslensku óperunni í þessum mánuði, þar sem hinir geysifögru ljóðaflokkar Schuberts, Malarastúlkan fagra og Vetrarferðin, verða fluttir. Menning 7.11.2008 03:30
Minning um Þorgeir Í kvöld verður samkoma í Iðnó til minningar um Þorgeir Rúnar Kjartansson (1955-1998) skáld, saxófónleikara og myndlistarmann. Tilefni er útgáfa Óðs eilífðar, heildarsafns ljóða Þorgeirs auk listaverka eftir höfundinn og níu aðra myndlistarmenn. Menning 6.11.2008 07:30
Ímyndun, ímynd og sjálfsmynd Í kvöld heldur áfram umræðan um hvað við erum, hvað við viljum vera og hvað við þykjumst vera. Í ReykjavíkurAkademíunni Hringbraut 121, 4. hæð verður fundað um fallvaltar ímyndir lands og þjóðar eftir „hrunið". Menning 6.11.2008 05:00
Guðlastari ritar um guðsmann „Er það ekki hæfilegt? Svo má finna þess merki í gömlum frásögnum að kirkjunni þótti sumt í Passíusálmum jaðra við guðlast,“ segir Úlfar Þormóðsson rithöfundur sem sent hefur frá sér sögulega skáldsögu um sjálfan séra Hallgrím Pétursson. Menning 6.11.2008 04:30
Arnaldur beint á toppinn með Myrká Væntanlega kemur það engum á óvart að nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, Myrká, skuli hafa hrifsað efsta sæti metsölulista Pennans sem birtur var í gær. Myrká fór í sölu fyrir aðeins fimm dögum og náði því efsta sætinu á fjórum dögum. Menning 6.11.2008 03:00
Klassískt hádegi í Hafnarborg Níundu tónleikar ársins í hádegistónleikaröð Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, fara fram á morgun kl. 12. Þá koma þar fram þær Edda Austmann sópransöngkona og Antonía Hevesi, píanóleikari og listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar, og leika tónlist eftir tónskáldin Mozart, Donizetti og Verdi. Menning 5.11.2008 05:00
Klassík á Rósenberg Bækur eru greiðasti aðgangur almennings að vísdómi og skemmtun. Á þessum örlagatímum hefur Forlagið ákveðið að hleypa af stokkunum nýjum bókaklúbbi sem færir Íslendingum heimsbókmenntir á ótrúlega hagstæðu verði, auk þess sem boðið verður upp á sígild íslensk rit. Menning 4.11.2008 03:00
Þjóðin þarf krútt og ljóð „Ég hef þá kenningu að krúttin séu ekki dauð heldur eru þau bara farin að lúlla,“ segir Gerður Kristný rithöfundur, sem kom krútt-hugtakinu upphaflega á koppinn í Mannlífsgrein sem hún fékk Ragnar Pétursson til að skrifa. Nokkur umræða hefur farið fram um krúttkynslóðina að undanförnu, hvort hún sé lifandi eða dauð og hvort kreppan muni breyta henni. „Það hefur alltaf verið kreppa hjá krúttunum. Þau hafa verið í lopapeysu í um áratug,“ segir Gerður. Menning 3.11.2008 02:00
Danshöfundur á fleygiferð um Evrópu „Mér finnst svolítið fyndið að fara með verk sem heitir þessu nafni í ljósi þess að maður hefur heyrt að fólki hafi meðal annars verið hent út úr búðum í Danmörku,“ segir Margrét Bjarnadóttir, dansari og danshöfundur. Menning 2.11.2008 05:00
Yfirlitssýning um Gylfa Í dag kl. 15 verður opnuð í Listasafni Alþýðusambands Íslands í Ásmundarsal yfirlitssýning á verkum Gylfa Gíslasonar, listamanns og lífskúnstners. Menning 1.11.2008 05:00
Ástardrykknum frestað Íslenska óperan hefur frestað sviðsetningu á Ástardrykknum eftir Donisetti sem til stóð að frumsýna í febrúar. Menning 1.11.2008 04:00
Arnaldur Indriðason rýfur fimm milljóna múrinn „Já, þetta er nokkuð gott. Og hlýtur að vera mikið gleðiefni hvernig gengið hefur með þessar bækur mínar um allan heim: Þýskalandi, Frakklandi, Svíþjóð, Noregi, Hollandi og svo í 36 útgáfulöndum öðrum,“ segir Arnaldur Indriðason metsöluhöfundur. Menning 31.10.2008 06:00
Bókatíðindi væntanleg Bókatíðindi ársins 2008 eru nú í prentun, á áætlun og líður því að því að þau verði borin út á öll heimili. Fyrirfram hafði verið búist við fækkun titla. Niðurstaðan er að um 40 færri titlar eru í Bókatíðindum í ár en árið 2007, eða 759 alls. Þetta eru því önnur stærstu Bókatíðindi til þessa. Árið 2006 var fjöldi titla 677. Árið 1998 voru þeir 418. Fækkunin er mest í flokknum Þýddar barnabækur, en þar virðist sem erlent samprent verði fyrir barðinu á erfiðleikum við eðlileg viðskipti við útlönd. Menning 31.10.2008 04:15
Hollendingar kaupa Hníf Abrahams „Fyrsta spennusaga Óttars M. Norðfjörð, Hnífur Abrahams, hefur verið seld til Hollands. Er það hollenska spennusagnaforlagið Verbum Crime sem hefur tryggt sér útgáfuréttinn og er þýðingarvinna langt komin,“ segir Tómas Hermannsson útgefandi hjá Sögur forlagi. Menning 30.10.2008 05:30
Hansa í lögfræðidrama „Já, já, ég mun styðjast við atriði úr mínu nánasta umhverfi. Ætli ég leiti ekki helst í smiðju systur minnar. Hún er meira svona í nútímanum,“ segir Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona – sem betur er þekkt sem Hansa – og hlær. Menning 28.10.2008 06:30
Kristján syngur með Sinfó Þó svo að Japansferð Sinfóníuhljómsveit Íslands hafi verið aflýst eins og fram hefur komið er engan bilbug að finna á hljómsveitinni. Nú hefur verið sett saman metnaðarfull verkefnaskrá fyrir næstu vikur þar sem hljómsveitin verður á faraldsfæti um höfuðborgarsvæðið og víðar. Tveir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar syngja og leika með hljómsveitinni á þessum tónleikum og stjórnandi verður Petri Sakari. Menning 27.10.2008 15:48
Tónlistardagar Dómkirkjunnar Allt frá árinu 1982 hafa Tónlistardagar Dómkirkjunnar verið fastur liður í menningarlífi Reykjavíkur á haustdögum. Það er Dómkórinn og stjórnandi hans, Marteinn H. Friðriksson dómorganisti, sem standa fyrir Tónlistardögunum. Menning 25.10.2008 04:00
Konur, kór og kontrabassi Kristján Sigurleifsson bassaleikari stendur fyrir allsérstæðum tónleikum í hádeginu á morgun. Þá kemur hann fram ásamt kammerkórnum Hljómeyki og flytur þrjú ný verk eftir íslensk kventónskáld. Menning 24.10.2008 09:00