Viðskipti erlent
212 213 214 215 216 217 218 219 220 … 334 ›
Auðævi erfingja Jacksons margfaldast Verðmæti eigna poppgoðsagnarinnar Michael´s Jacksons hafa aukist um 310 milljónir bandaríkjadala á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því að hann lést. Upphæðin nemur 36 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 14.9.2011 12:36
Vísitölur lækkuðu í morgun Flestar vísitölur lækkuðu við opnun markaða í Evrópu í morgun. FTSE vísitalan í London lækkaði um hálft prósent, í Frakklandi lækkaði CAC vísitalan um eitt og hálft prósent og í Frankfurt fór DAX vísitalan niður um 1,2 prósent. Viðskipti erlent 14.9.2011 08:34
Moody's lækkar lánshæfi franskra banka Matsfyrirtækið Moodys hefur lækkað lánshæfi tveggja franskra banka, Credit Acricole og Societe Generale, en sérfræðingar óttast að bankarnir séu illa staddir vegna mikillar lánafyrirgreiðslu til Grikklands. Hlutabréf í bönkunum hafa fallið um 60 og 65 prósent frá því í febrúar og þriðji bankinn, BNP Paribas hefur lækkað um 53 prósent. Moodys ákvað að lækka ekki einkun þess banka en segir þó líkur á lækkun í nánustu framtíð. Viðskipti erlent 14.9.2011 06:31
Forstjóri Toys R Us greiddi vændiskonu milljónir Paul Hopes, fyrrverandi forstjóri leikfangafyrirtækisins Toys R Us, greiddi vændiskonu 20 þúsund sterlingspund, eða 3,7 milljónir króna, á viku fyrir þjónustu sína. Hopes er fyrir rétti þessa dagana en hann er grunaður um að hafa stolið um 3,7 milljónum punda, eða 685 milljónum, frá Toys R US. Vændiskonan, sem heitir Dawn Dunbar, bar vitni fyrir réttinum í dag. Dómarinn spurði hana hvernig hún gæti réttlætt það verð sem hún hefði sett upp fyrir að þjónusta Hopes. Hún svaraði því til að hún hefði ekki verðlagt þjónustu sína. Hopes hefði greitt þetta vegna þess að honum fyndist það sanngjarnt. Viðskipti erlent 13.9.2011 16:59
Kínverskur fjárfestingasjóður vill kaupa á Ítalíu Einn stærsti fjárfestingasjóðurinn í Kína er að íhuga að kaupa eignir á Ítali, eftir því sem Financial Times og Wall Street Journal greina frá. Viðskipti erlent 13.9.2011 09:44
Allt gert til að koma í veg fyrir greiðsluþrot Grikklands Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði í morgun að Evrópusambandið gerði allt sem mögulegt væri til þess að koma í veg fyrir að Grikkland færi í greiðsluþrot. Hún segir að ef Grikkland færi úr evrusamstarfinu myndi það hafa dómínóáhrif í för með sér. Það ætti að forðast í lengstu löð. „Við erum að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir þetta. Við verðum að koma í veg fyrir alla ringulreið, evrunnar vegna,“ sagði Merkel. Viðskipti erlent 13.9.2011 09:34
Tölur á mörkuðum lækkuðu í morgun Hlutabréfavísitölur um allan heim lækkuðu þegar markaðir opnuðu eftir helgina, en fjárfestar hafa þungar áhyggjur af skuldastöðu Grikklands og annarra evruríkja. Viðskipti erlent 12.9.2011 12:04
Höfundarréttur framlengdur í 70 ár Evrópusambandið hefur tekið þá ákvörðun að framlengja höfundarrétt á tónlist úr 50 árum í 70 ár. Þetta þýðir að upptökur af tónlist eins og laginu Move It eftir Cliff Richards mun færa tónlistarmönnunum að baki laginu í fjölmörg ár til viðbótar. Samkvæmt gömlu höfundarréttarlögunum rann höfundarréttur á því lagi út fyrir tveimur árum. Viðskipti erlent 12.9.2011 11:42
Markaðir féllu í Evrópu Hlutabréfamarkaðir hafa hríðlækkað í morgun vegna ótta um að Grikkland lendi í greiðsluþroti. FTSE vísitalan í Lundúnum fór niður um 2,5% við opnun markað, franska Cac vísitalan fór niður um 5% og þýska Dax fór niður um 3,5%. Hlutabréf í bönkum lækkuðu mest. Evran féll verulega og hefur ekki verið lægri gagnvart japanska jeninu í 10 ár. Auk þess að hafa áhyggjur af skuldastöðu Grikklands hafa áhyggjur af Ítalíu versnað til muna. Phillip Roesler, efnahagsráðherra Þýskalands, sagði í blaðagrein um helgina að ekki væri hægt að útiloka þann möguleika að Grikkland myndi enda í greiðsluþroti. Viðskipti erlent 12.9.2011 10:02
Bönkum skipt upp og þeim gert að eiga varasjóði Í viðamikilli óháðri skýrslu um bankamál í Bretlandi sem kom út í dag er mælt með því að bönkum verði eftirleiðis skipt upp í viðskipabanka og fjárfestingarbanka. Þá er einnig mælt með því að bankar leggi til hliðar tíu prósent af fjármagni sínu til þess að eiga upp á að hlaupa þegar harðnar á dalnum. Viðskipti erlent 12.9.2011 08:21
Tilkynntu fyrir mistök um andlát Steve Jobs Bandaríska fréttastofan CBS tilkynnti fyrir mistök um andlát Steve Jobs á Twitter síðu fréttastofunnar. Jobs var forstjóri Apple en hann hætti störfum fyrir skömmu vegna þrálátra veikinda, en hann hefur barist við krabbamein. Viðskipti erlent 10.9.2011 21:00
Júanið á flot fyrir árið 2015 Kínversk yfirvöld hafa gefið í skyn að innan tíðar muni þau hætta að handstýra gengi gjaldeyris síns júansins. Að sögn talsmanns verslunarráðs ESB í Kína hafa embættismann þar í landi sagt að gengi júans yrði komið á flot fyrir árið 2015. Viðskipti erlent 10.9.2011 06:00
Lækkar skatta og eykur gjöld Barack Obama Bandaríkjaforseti ætlar að lækka skatta um 253 milljarða dala og auka ríkisútgjöld um 194 milljarða, allt í þeim tilgangi að búa til ný störf í samfélaginu. Viðskipti erlent 10.9.2011 04:00
Enn lækkar verð á mörkuðum Hlutabréfaverð á mörkuðum í Bandaríkjunum og í Evrópu hefur lækkað nokkuð í dag en fjárfestar hafa enn miklar áhyggjur af ástandinu á efnahagskerfi heimsins. Dow Jones vísitalan lækkaði um 1,7 prósent í dag og olli það lækkunum í Evrópu einnig. Viðskipti erlent 9.9.2011 14:25
Brad Pitt leigði þyrlu af Iceland Stórleikarinn Brad Pitt hefur að undanförnu sveimað yfir Englandi í þyrlu sem er í eigu Iceland verslunarkeðjunnar. Viðskipti erlent 9.9.2011 09:45
Yfir 100 milljónir nota Twitter Yfir hundrað milljónir manna um allan heim nota nú Twitter. Dick Costolo, framkvæmdastjóri fyrirtækisins sem rekur vefsíðuna, segir að fjöldi virkra notenda, sem skrái sig inn á síðuna að minnsta kosti einu sinni í mánuði, hafi aukist um 82% á þessu ári. Um helmingur notenda síðunnar notar hana einu sinni á dag eða oftar. Viðskipti erlent 8.9.2011 22:25
Apple leitar að öryggisstjóra Bandaríski tæknirisinn Apple auglýsti í síðustu viku tvær stöður framkvæmdastjóra eftirlits með vörum sem ekki eru komnar á markað. Viðskipti erlent 7.9.2011 21:00
Milljarðamæringum í Kína stórfjölgar - nýr listi á morgun Milljarðamæringum í Kína hefur stórfjölgað síðan á síðasta ári samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins. Þar kemur fram á að síðasta ári hafi 189 milljarðamæringar verið í landinu en nú eru þeir orðnir 271. Viðskipti erlent 7.9.2011 14:49
Milljónir lögðu niður vinnu á Ítalíu Milljónir ítalskra launþega hafa lagt niður vinnu í dag til þess að mótmæla niðurskurðaráformum ítalskra stjórnvalda. Flugferðum hefur verið aflýst, lestir og strætisvagnar hafa ekki hreyfst úr stað og opinberar stofnanir hafa verið lokaðir í allan dag. Viðskipti erlent 6.9.2011 14:56
Niðursveifla á hlutabréfamörkuðum Hlutabréfamarkaðir halda áfram á niðurleið frá síðustu viku um leið og óttinn vegna skuldavanda Spánar og Ítalíu hefur fengið byr undir báða vængi. Viðskipti erlent 5.9.2011 15:17
Vill að ríkisstjórnir beiti sér til að örva hagvöxt Bandaríkin og ríki í Evrópu þurfa að beita öllum ráðum sem þau hafa til að örva hagvöxt, segir Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Reuters fréttastofan segir að þörf sé á innspýtingu frá ríkissjóðum þessara ríkja til þess að fjárfestar fái aftur trú á alheimshagkerfinu. Viðskipti erlent 4.9.2011 17:07
RBS ætlar að verjast með kjafti og klóm The Royal Bank of Scotland ætlar að verjast ásökunum bandarískra stjórnvalda um blekkingar með öllum tiltækum ráðum. Bankinn er, ásamt 16 öðrum bönkum, sakaður um að hafa ofmetið gæði fasteignalánasafna sinna. Auk RBS er um að ræða banka á borð við Barclays og HSBC. Bandarísk húsnæðismálayfirvöld segja að vegna blekkinga bankanna við mat á lánasöfnum sínum hafi bandarískir skattgreiðendur þurft að reiða fram milljarða króna til að bjarga bönkunum frá falli þegar fjármálakreppan skall á. Viðskipti erlent 4.9.2011 10:29
Hvers virði er Iceland? Iceland verslunarkeðjan í Bretlandi verður sett formlega á sölu í mánuðinum. Það eru UBS og Bank of America Merril Lynch sem sjá um söluna. Breska blaðið Sunday Telegraph gerir málið að umfjöllunarefni í dag. Þar segir að Malcolm Walker, stofnandi verslunarkeðjunnar, hafi klárlega áhuga á að kaupa hlutinn. Stærri spurning sé hvort einhverjir aðrir muni geta boðið í hlut skilanefndar Landsbankans í verslunarkeðjunni. Viðskipti erlent 4.9.2011 09:33
Murdoch afþakkaði 700 milljónir vegna símhleranahneykslis James Murdoch, forstjóri fjölmiðlafyrirtækisins News International, afþakkaði 6 milljóna dala launabónus frá fyrirtækinu vegna símhleranahneyksliss sem skók fyrirtækið í vor. Upphæðin sem James afþakkaði nemur um 690 milljónum króna. Rupert, pabbi James, fékk 12.5 milljóna dala bónus, eða röskar 1400 milljónir króna, þegar ársuppgjör News Corp var birt á dögunum. Viðskipti erlent 3.9.2011 11:35
Bandarísk stjórnvöld stefna 17 stórbönkum Bandarísk stjórnvöld munu stefna 17 stórbönkum vegna taps á fjárfestingum tengdum fasteignum sem stjórnvöld telja að hafi kostað skattgreiðendur tugi milljarða bandaríkjadala. Bandaríski íbúðalánasjóðurinn segir að bankarnir sem um ræði séu meðal annars Godman Sachs, Barclays, Bank og America, Deutsche Bank og HSBC. Íbúðalánasjóðurinn segir að þau hafi metið gæði lánanna kolvitlaust þegar þau voru veitt í húsnæðisbólunni fyrir hrun. Viðskipti erlent 3.9.2011 09:26
United skilaði methagnaði Manchester United skilaði methagnaði á síðasta rekstrarári sem lauk 30. júní. Félagið hagnaðist um 110,9 milljónir punda eða 20 og hálfan milljarð króna. Velta Manchester United nam rúmum 62 milljörðum króna, rúmum 8 milljörðum meira en árið á undan. Viðskipti erlent 1.9.2011 14:36
Von á nýjum Land Rover Defender Land Rover verksmiðjurnar munu setja á markað gjörbreytta útgáfu af Defender árið 2015, eftir því sem BBC fréttastofan fullyrðir. Bílaframleiðandinn hefur einnig birt fyrstu myndirnar af bílnum sem verður af undirtegundinni DC100. Frumgerð af bílnum verður sýnd á bílasýningunni í Frankfurt í næsta mánuði. Defender kom fyrst á markað árið 1948 og hefur selst í meira en tveimur milljónum eintaka um allan heim. BBC segir að hönnun bílsins hafi lítið breyst á þessum sex áratugum. Viðskipti erlent 31.8.2011 09:33
Hagvöxtur víða að minnka Hagvöxtur í Bandaríkjunum var einungis 1% á ársgrundvelli á öðrum ársfjórðungi. Búist hafði verið við 1,3% hagvexti. Viðskipti erlent 30.8.2011 11:00
Obama skipaði nýjan ráðgjafa í atvinnumálum Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað Alan Krueger, hagfræðing við Princeton háskólann sem nýjan efnahagsráðgjafa sinn. Það verður verk Kruegers að stefnu stjórnvalda í atvinnumálum en hana mun Obama kynna í ræðu sem verður haldin eftir verkamannadaginn í Bandaríkjunum, sem er þann 5. september næstkomandi. Eitt mesta meinið í bandarísku efnahagslífi er mikið atvinnuleysi. Það stendur nú í um 9,1%. Krueger var hagfræðingur í fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna á árunum 2009-2010. Viðskipti erlent 29.8.2011 20:35
Bjartsýni eykst á mörkuðum Hlutabréf hafa víðast hvar í heiminum hækkað í verði í dag. Nasdaq vísitalan á Wall Street hækkaði um tvö prósent við opnun bandaríska markaðarins í dag og áður höfðu markaðir í Evrópu tekið vel við sér. Þá lokuðu markaðir í Asíu víðast hvar í plús í nótt. Ástæða aukinnar bjartsýni á mörkuðum er meðal annars rakin til frétta þess efnis að tveir af stærstu bönkum Grikklands hyggi á sameiningu. Viðskipti erlent 29.8.2011 14:29