Viðskipti innlent
113 114 115 116 117 118 119 120 121 … 334 ›
Samherji hf. hagnaðist um 17,8 milljarða Hagnaður Samherja hf. nam 17,8 milljörðum króna árið 2021 samanborið við 7,8 milljarða árið áður. Eigið fé félagsins var 94,3 milljarðar króna í árslok 2021 og námu heildareignir 128 milljörðum króna. Viðskipti innlent 22.7.2022 12:27
Ardian ósammála Samkeppniseftirlitinu í öllum efnisþáttum Fjárfestingarsjóðurinn Ardian lýsir sig ósammála öllum efnisþáttum í frummati Samkeppniseftirlitsins á kaupum sjóðsins á Mílu frá Símanum. Í frummatinu segir að það sé hætta á að keppinautum í innviðastarfsemi fækki og að viðskiptavinir Símans geti orðið af verðlækkunum. Viðskipti innlent 22.7.2022 12:27
Hlutabréf fara á flug eftir jákvætt uppgjör Icelandair Gengi hlutabréfa í Icelandair hafa hækkað um 5,59 prósent það sem af er degi. Flugfélagið skilaði rúmlega hálfum milljarði króna í hagnað á öðrum ársfjórðungi. Viðskipti innlent 22.7.2022 10:49
Verðbólgan nálgast tveggja stafa tölu Verðbólga mældist 9,9 prósent í júlí og hækkaði um 1,17 prósentustig milli mánaða. Verðbólga hefur ekki verið hærri frá því í september árið 2009. Viðskipti innlent 22.7.2022 09:45
Magnús Kr. Ingason tekur við sem forstjóri Festi Stjórn Festi hefur ráðið Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Festi, sem forstjóra félagsins frá næstu mánaðarmótum, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Viðskipti innlent 22.7.2022 09:12
Eik kaupir Lambhaga á 4,2 milljarða króna Fasteignafélagið Eik er í þann mund að ganga frá kaupum á garðyrkjustöðvunum Lambhaga í Úlfarsárdal og Lundi í Mosfellsdal. Kaupverðið er áætlað 4,2 milljarðar króna. Viðskipti innlent 22.7.2022 07:46
„Alveg hræðilegur“ leiðréttingarbúnaður Apple Sjálfvirkur leiðréttingarbúnaður Apple fyrir íslensku er hörmulegur og með ólíkindum að einhver hafi fengið borgað fyrir að hanna hann, að mati hugbúnaðarhönnuðar. Fyrirtækið virðist ekki nota neinar tölfræðiupplýsingar sem til eru um íslenskan texta, þrátt fyrir vitneskju um þær. Viðskipti innlent 21.7.2022 21:00
Hálfur milljarður í hagnað á öðrum ársfjórðungi Icelandair skilar um hálfum milljarði í hagnað á öðrum ársfjórðungi 2022. Lausafjárstaða félagsins hefur aldrei verið sterkari og nam 61,6 milljörðum króna í lok júní. Viðskipti innlent 21.7.2022 16:26
Miami lokað og nýs eiganda leitað Skemmtistaðurinn Miami á Hverfisgötu hefur verið lokaður frá byrjun júlí og nú er nýs eiganda leitað til þess að taka við rekstri skemmtistaðarins. Viðskipti innlent 21.7.2022 15:21
Hagnaður Landsbankans lækkar um fjóra milljarða milli ára Hagnaður Landsbankans á öðrum ársfjórðungi 2022 nam 2,3 milljörðum króna samanborið við 6,5 milljarða króna á sama ársfjórðungi árið 2021. Arðsemi eigin fjár Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2022 4,1 prósent og er því langt undir 10 prósenta markmiði bankans. Ástæðu fyrir dvínandi arðsemi segir bankinn vera lækkun á gangvirði hlutabréfaeignar bankans. Viðskipti innlent 21.7.2022 13:35
Akademias festir kaup á Tækninámi Fræðslufyrirtækið Akademias hefur fest kaup á Tækninámi, sem sérhæfir sig í fjarnámi í tækninám. Viðskipti innlent 21.7.2022 12:01
„Þá erum við í vondum málum, íslenskt samfélag“ Þingmaður segir það mun skaðlegra fyrir orðspor Íslands ef slegið yrði af kröfum um eftirlit með samkeppni, heldur en ef kaup fransks fjárfestingasjóðs á Mílu ná ekki fram að ganga. Samkeppniseftirlitið verði að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Viðskipti innlent 21.7.2022 12:00
Ytri aðstæður haft áhrif á afkomu Össurar Össur hagnaðist um fjórtán milljónir bandaríkjadala eða 1,9 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2022 eða átta prósent af veltu. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður nítján milljónir dala og lækkar því um 26 prósent milli ára. Viðskipti innlent 21.7.2022 07:36
Opin allan sólarhringinn og enginn á vaktinni Fyrsta alsjálfvirka hverfisverslun landsins var opnuð í Garðabæ í morgun. Verslunin verður opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Framkvæmdastjóri segir opnunina marka upprisu gömlu hverfisverslananna. Viðskipti innlent 20.7.2022 19:16
Segir marga svekkta sem reyna við fasteignamarkaðinn Formaður Félags fasteignasala segir marga sitja eftir með sárt ennið sem gera tilboð í fasteignir eins og staðan er á markaðnum í dag. Þrátt fyrir yfirboð nái þeir ekki að festa kaup á húsnæði, samkeppnin sé of hörð. Viðskipti innlent 20.7.2022 14:09
Markaðurinn róaðist minna en búist var við Íbúðaverð hækkaði um 2,2 prósent milli maí og júní. Það er minni hækkun en undanfarna mánuði en þó meiri en hagfræðideild Landsbankans hafði reiknað með. Viðskipti innlent 20.7.2022 11:05
Óskar ráðinn framkvæmdastjóri Smyril line Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi og tekur við starfinu af Lindu Gunnlaugsdóttir. Viðskipti innlent 20.7.2022 09:13
Hagnaður Kviku banka tæplega tveimur milljörðum króna undir áætlun Hagnaður Kviku banka hf. á öðrum ársfjórðungi er áætlaður 450 til 500 milljónir króna samkvæmt drögum að uppgjöri fyrir fjórðunginn. Áætluð afkoma fyrir fjórðunginn var 2,15 til 2,4 milljarðar króna og vantar því mikið upp á, eða 1,8 milljarð króna. Viðskipti innlent 20.7.2022 06:46
Arion banki varar við fölskum smáskilaboðum Smáskilaboð sem látin eru líta út eins og þau séu frá Arion banka hafa verið send á fjölmarga landsmenn upp á síðkastið. Arion banki segir þau vera fölsk og varar við því að ýta á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum. Viðskipti innlent 19.7.2022 16:09
Bjartsýnn á farsæla niðurstöðu í Mílusölunni Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu frá Símanum eru í uppnámi þar sem skilyrði Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum þykja of íþyngjandi. Forstjóri Símans segir mestu máli skipta hvaða áhrif salan á Mílu mun hafa á neytendur. Hann er bjartsýnn á að farsæl lausn finnist í málið. Viðskipti innlent 19.7.2022 06:32
Laxeldið á Austfjörðum á fullu í uppbyggingu eftir sjúkdómsáfall Laxeldið á Austfjörðum er að ná vopnum sínum á ný eftir alvarlegan veirusjúkdóm sem stöðvar alla landvinnslu á Djúpavogi. Byrjað er að setja út fisk að nýju í eldiskvíar og búið að kaupa tvo öfluga fóðurpramma. Viðskipti innlent 18.7.2022 22:44
Hlutabréfaverð Símans lækkað mikið eftir tíðindi gærdagsins Gengi hlutabréfa Símans lækkaði um 8,3 prósent í dag eftir að tilkynnt var um það í gær að Ardian France SA væri ekki tilbúið til að ganga frá kaupum á Mílu. Viðskipti innlent 18.7.2022 20:46
Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll. Viðskipti innlent 18.7.2022 18:51
Telur söluna á Mílu jákvæða fyrir samkeppni á fjarskiptamarkaði Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu eru í uppnámi, en félagið er ekki reiðubúið að ljúka viðskiptum sínum við Símann, eiganda Mílu, vegna skilyrða Samkeppniseftirlitsins. Forstjóri Símans segir helstu áhyggjur eftirlitsins snúa að viðskiptasambandi Símans og Mílu eftir söluna. Viðskipti innlent 18.7.2022 13:36
Fjallaböðin á lokastigi hönnunar Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum. Viðskipti innlent 18.7.2022 13:22
Ardian ekki reiðubúið að ljúka við kaupin á Mílu Í tilkynningu Símans til kauphallarinnar í gær kemur fram að Ardian France SA sé ekki reiðubúið til þess að ljúka við kaupin á Mílu ehf. Viðskipti innlent 18.7.2022 07:13
Hið opinbera hefði þurft að stíga inn á byggingamarkað fyrir áratug Doktor í hagfræði segir að ekki sé tilefni til að hið opinbera stígi inn á húsnæðismarkað á meðan einkaðilar byggja nóg. Hins vegar hefði það mátt stíga inn fyrir tíu árum þegar lítið var byggt. Viðskipti innlent 17.7.2022 11:49
Telur að smærri útgerðir sameinist þeim stóru á næstu árum vegna íþyngjandi veiðigjalda Hagfræðingur telur að á næstu árum muni smærri útgerðir sameinast þeim stærri vegna veiðigjalda sem þær ráði ekki við. Samkvæmt nýjum tölum frá Fiskistofu á Samherji nú aðild að fjórðungi heildarveiðiheimilda landsins eftir sameiningu Vísis í Grindavík við Síldarvinnsluna Viðskipti innlent 15.7.2022 19:31
Ekki skrítið að lögin séu óbreytt þegar „útgerðarmenn eru með stjórnmálamennina í vasanum“ Samkvæmt endanlegum útreikningum Fiskistofu á Samherji aðild að fjórðungi af heildarkvóta þjóðarinnar. Varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis segir Sjálfstæðisflokkinn ekki vilja breyta lögum um kvóta enda hafi útgerðarfélögin stutt við kosningabaráttur flokksins í gegn um árin. Viðskipti innlent 15.7.2022 12:10
Vonast til að auglýsa stöðu forstjóra Festar innan nokkurra vikna Nýkjörin stjórn Festar ráðgerir að auglýsa stöðu forstjóra félagsins á næstu vikum. Mikil ólga hefur verið innan félagsins eftir að eftir að Eggerti Þór Kristóferssyni forstjóra var sagt upp störfum í júní. Viðskipti innlent 14.7.2022 19:25