Innlent

Fundartími ekki ákveðinn

Ekki hefur verið ákveðið hvenær undanþágunefnd kennara og sveitarfélaga fundar. Undanþágunefnd átti síðast fund á föstudag. Um 30 kennarar fengu þá undanþágu til að kenna í Lækjarskóla í Hafnarfirði, Hjallaskóla í Kópavogi og Fellaskóla í Reykjavík. Tvær umsóknir liggja fyrir samkvæmt Þórörnu Jónsdóttur fulltrúa kennara. Sigurður Óli Kolbeinsson fulltrúi sveitarfélaganna telur einnig að fara verði yfir umsóknir síðasta fundar sem hafi verið hafnað því þær hafi ekki fengið viðhlítandi umfjöllun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×