Innlent

Sextán tölvuskjám stolið

Sextán nýjum IBM-tölvuskjám var stolið í innbroti í Menntaskólann við Sund síðastliðna nótt. Kjallaragluggi var spenntur upp og skjáirnir handlangaðir út um hann. Tölvurnar sjálfar voru hins vegar á sínum stað, sem og tölvuprentari. Allir kaplar tölvuskjánna voru hirtir með þeim og engu líkara en verið sé að fylla upp í pöntun á nýjum flatskjám. Þeir sem fá boðna ódýra IBM-flatskjái á næstu dögum geta líklega farið nærri um hvaðan þeir eru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×