Innlent

Öllum undanþágubeiðnum hafnað

Öllum undanþágubeiðnum um að kenna fötluðum börnum á meðan á verkfalli grunnskólakennara stendur hefur verið hafnað. Búast má við neyðarástandi á heimilum margra barnanna. Tveir fulltrúar eiga sæti í nefndinni sem fjallaði um beiðnirnar og greindi þá á um niðurstöður þeirra allra.  Fjórtán umsóknir bárust undanþágunefnd sem í eiga sæti fulltrúi kennara og fulltrúi sveitarfélaga. Fimm voru ekki til afgreiðslu vegna formsgalla. Öllum hinum var hafnað. Af fjórtán umsóknum voru tólf um kennslu fyrir fötluð börn. Fulltrúi Launanefndar sveitarfélaganna taldi rétt að veita undanþágurnar, en ekki fulltrúi Kennarasambands Íslands, og því var beiðnunum hafnað. Umsóknirnar voru meðal annars frá Öskjuhlíðaskóla þar sem 39 þroskaheft og fjölfötluð börn sækja nám. Sama gildir um Safamýraskóla þar sem allir 19 nemendur skólans eru alvarlega fjölfatlaðir. Í rökstuðningi tekur skólastjórinn fram að börnin hafi mikla þörf fyrir reglufestu. Það að mæta ekki í skólann sinn eins og venjulega valdi þeim miklum erfiðleikum og vanlíðan. Í rökstuðningi fulltrúa Kennarasambands Íslands segir að í ljósi þess að ekki sé talið að neyðarástand skapist þegar frí eru í skólanum, hafni hann umsókninni. Þó er boðið upp á heilsdagsvistun í fríum í Safamýraskóla en meðan verkfall varir eru foreldrar ráðalausir. Helga Steinunn Hauksdóttir, móðir eins nemenda Safamýrarskóla, segir fólk hafa reynt að þreyja þorrann og fengið aðstoð, eða sjálft verið heima, en það gangi ekki ef verkfallið teygist í margar vikur. Þá gefur Helga ekki mikið fyrir rökstuðning fulltrúa kennara í undanþágunefnd. Hún segir hann vera að ljúga; hann noti rök sem ekki séu haldbær og Helga skorar á nefndina að endurskoða afstöðu sína hið fyrsta. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×