Karl prins vekur reiði Breta 18. nóvember 2004 00:01
Karl prins vakti mikla óánægju í Bretlandi þegar efni minnismiða varð opinbert, þar sem hann fer hörðum orðum um leti, hæfileikaleysi og óeðlilegan metnað landa sinna. "Hvernig stendur á því að allir telja sig geta náð miklu lengra en hæfileikar þeirra gefa tilefni til?" spyr Karl prins í minnismiðanum og svarar sér sjálfur. "Þetta er vegna námsmenningar í skólum sem er afleiðing kerfis sem snýst aðeins um börn og neitar að viðurkenna að einhver hafi ekki staðið sig." "Fólk heldur að allir geti orðið poppstjörnur, dómarar, frábærir þáttastjórnendur í sjónvarpi eða miklu betri þjóðhöfðingjar án þess að leggja á sig nokkra vinnu eða búa yfir nokkrum hæfileikum. Þetta er afleiðing félagslegrar draumsýnar sem telur að hægt sé að genabæta fólk eða betrumbæta það með félagslegum aðgerðum, þvert á það sem sagan hefur kennt okkur." Lesið var upp úr minnisblaðinu í réttarhaldi vegna málshöfðunar Elaine Day, fyrrum starfsmanns hallarinnar, sem telur sig hafa orðið fórnarlamb kynjamisréttis þegar hún var rekin úr starfi. Hún hafði lagt til að háskólamenntaðir aðstoðarmenn gætu unnið sig upp í starfi og var það kveikjan að minnismiða Karls. "Mér finnst hann satt að segja gamaldags og úr tengslum, hann skilur ekki hvað er í gangi í breska menntakerfinu," sagði Charles Clarke menntamálaráðherra um prinsinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Erlent Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Erlent Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Innlent Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir Innlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Erlent Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Innlent Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Erlent Fleiri fréttir Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Allt í rugli á Rauðahafi Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Páfakjör hefst í næstu viku Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Ökumaðurinn í Vancouver ákærður fyrir manndráp Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Kjördagur framundan í Kanada Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Ellefu manns látnir og talan gæti hækkað Rúmur helmingur óhress með Trump Eðlilegt að endurskoða sjálfstjórnarlögin Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Gröf Frans páfa opin gestum Bréf ritað um borð í Titanic seldist á tugi milljóna Sprenging í Íran varð 25 að bana Níu létust í árásinni í Vancouver Úkraínskir hermenn séu farnir úr Kúrsk með hjálp Norður-Kóreu Segir Pútin ekki vilja enda stríðið Hittust í fyrsta sinn eftir að upp úr sauð Myndir: Ráðamenn heims fylgja Frans páfa til hinstu hvílu Virginia Giuffre er látin Sjá meira