Innlent

Strokufangi handtekinn

Nítján ára gamall fangi sem strauk úr fangelsinu á Skólavörðustíg að morgni mánudags var handtekinn á veitingastað í miðbæ Hafnarfjarðar síðar um daginn. Hann hefur nú verið vistaður í fangelsinu að nýju. Lögreglan í Hafnarfirði handtók manninn seint á mánudagskvöldið eftir að hann réðst á starfsmann veitingastaðar í bænum. Tók hann starfsmanninn meðal annars hálstaki. Samkvæmt upplýsingum lögreglu þótti maðurinn ekki hættulegur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×