Sport

Bjarni Þór spilaði með Everton

Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður Everton, lék sinn fyrsta leik með aðalliði Everton í dag þegar liðið mætti skoska liðinu Dundee United í æfingaleik. Everton vann leikinn 1-0. Bjarni Þór sem einungis er 18 ára var fastamaður í varaliði Everton á síðast liðnu tímabili. Bjarni Þór er bróðir Arnars Þórs landsliðsmanns í knatsspyrnu og leikmanns Lokeren í Belgíu og Davíðs Þórs, leikmanns Íslandsmeistara FH.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×