Sport

Valur og ÍA í 8 liða úrslitin

Landsbankadeildarlið ÍA hefur tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Breiðabliki í framlengdum leik uppi á Skaga. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 en Pálmi Haraldsson skoraði sigurmark heimamanna í fyrri hálfleik framlengingarinnar. Kristján Óli Sigurðsson kom Blikum yfir 0-1 á 27. mínútu en Sigurður Ragnar Eyjólfsson jafnaði metin fimm mínútum fyrir leikslok. Fyrr í kvöld vann Landsbankadeildarlið Vals 1. deildarlið Hauka, 5-1 á Hlíðarenda. Garðar Gunnlaugsson skoraði þrennu fyrir Val en þeir Baldur Aðalsteinsson og Sigurður Sæberg Þorsteinsson eitt hvor. Rodney Parry skoraði mark Hauka þegar hann minnkaði muninn í 3-1. Nú er að hefjast vítaspyrnukeppni hjá Víkingi og KR en staðan að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu er 3-3.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×