Sport

Heiðar hafnaði tilboði Watford

Enskir fjölmiðlar greina frá því að landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson hjá Watford hafi hafnað tilboði um nýjan samning við félagið. Adrian Boothroyd, stjóri liðsins, býst við að Heiðar fari frá félaginu ef rétt verð fæst fyrir hann. Úrvalsdeildarliðin West Ham og Wigan eru talin líklegust að næla í sóknarmanninn og þá hefur Sheffield United einnig sýnt Heiðari mikinn áhuga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×