Sport

Kastaði vatnsbrúsa upp í stúku

Ronaldo, leikmaður Real Madrid, þykir miður að hafa kastað vatnsbrúsa upp í áhorfendastúku í leik gegn Malaga í gær en honum var skipt út af þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Ronaldo hefur ekki átt góðu gengi að fagna upp á síðkastið en brást æfur við þegar nokkrir áhorfendur veittust að honum með orðum. "Kynþáttafordómar gagnvart mér og móður minni eru mér ekki að skapi en ég brást engu að síður rangt við þó svo að móðgunin hafi verið slæm," sagði Ronaldo.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×