Sport

Heitt í kolunum í Tórínó

Stuðningsmenn Juventus og Liverpool tóku forskot á sæluna fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni með því að fljúgast á í knæpu í gærkvöldi. Nokkrir stuðningsmanna enska liðsins höfðu komið sér fyrir á krá í borginni, en þá bar að nokkra eld heita stuðningsmenn ítalska liðsins og upp hófust rifrildi og slagsmál, sem enduðu með því að einn Englendinganna var laminn í höfuðið með kylfu. Lögreglan í Tórínó er með mikinn viðbúnað fyrir leik liðanna í kvöld og skakkaði hún strax leikinn. Ekki voru áverkar á enska stuðningsmanninum það alvarlegir að hann þyrfti að fara á sjúkrahús og þó talsmenn lögreglu teldu hann þurfa viku að jafna sig eftir höfuðhöggið, ætlar hann ekki að missa af leiknum í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×