Sport

Jafnt í leikhléi á Stamford Bridge

Þegar gengið er til búningsherbergja í leik Chelsea og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu er staðan jöfn, 0-0. Bæði lið hafa fengið færi til að skora, Frank Lampard fékk dauðafæri en skaut yfir og John Arne Riise skaut beint á Cech úr úrvaldsfæri hinum megin. Þá varði Cech frábærlega skalla frá Milan Baros. Eiður Smári er í liði Chelsea og hefur átt ágætan dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×