Sport

Benitez sama hverjum hann mætir

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að sér sé alveg sama hvaða liði sitt lið mæti í úrslitaleik meistaradeildarinnar, sínir menn séu staðráðnir í að vinna. "Við höfum verið fyrirfram áætlaðir slakara liðið í öllum leikjum okkar eftir riðlakeppnina, svo að okkur er alveg sama hvaða lið við fáum í úrslitaleiknum," sagði Benitez í dag. "Líkur benda til þess að við mætum AC Milan í úrslitunum, þeir eru með gríðarlega sterkt lið og hafa gott forskot á PSV fyrir fyrri leikinn. Það er alveg sama hvort liðið við fáum, þeir verða taldir sigurstranglegri og við unum því ágætlega. Okkur var ekki spáð góðu gengi fyrirfram á móti Leverkusen, Juventus eða Chelsea, en við unnum samt og því er okkur alveg sama hvaða liði við mætum í úrslitaleiknum," sagði spænski stjórinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×