Sport

PSV í framherjavandræðum

Hollensku meistararnir í PSV Eindhoven eiga í vandræðum með meiðsli framherja sinna og óvíst er með það hverjir verða í fremstu víglínu í leiknum við AC Milan í meistaradeildinni í kvöld. Ameríski framherjinn DaMarcus Beasley á við hnémeiðsli að stríða og getur ekki leikið með í kvöld og þá er Jefferson Farfan tæpur fyrir leikinn vegna ökklameiðsla. Carlo Ancelotti, þjálfari Milan hefur hinsvegar fullskipað lið í fyrsta skipti í langan tíma og liðið endurheimtir meðal annars varnarjaxlinn Allesandro Nesta úr leikbanni, en hann er liðinu afar mikilvægur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×