Sport

Vignal til Portsmouth

Gregory Vignal, sem Gerard Houllier keypti til Liverpool á sínum tíma undir þeim formerkjum að hann hefði klófest efnilegasta bakvörð Frakka, er kominn til Portsmouth. Vignal, sem eyddi síðasta tímabili sem lánsmaður hjá Glasgow Rangers í Skotlandi, eftir að hafa komið við sögu í aðeins 14 leikjum fyrir Liverpool frá því að hann gekk til liðs við félagið sumarið 2000. Vignal gerði tveggja ára samning við Portsmouth en kaupverðið var ekki gefið upp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×