Sport

Essien á förum?

Michael Essien hefur gefið það út að hann vilji yfirgefa frönsku meistarana í Lyon og ganga til liðs við enska stórliðið Chelsea. Ensku meistararnir í Chelsea hafa mikinn áhuga á þessum 22 ára landsliðsmanni frá Ghana. Jean-Michael Aulas, stjórnarformaður liðsins, hefur gefið það út að hann sé ekki til í að selja hann fyrir minna en 25 milljónir punda. Auk Chelsea hafa Manchester United og Real Madrid áhuga á honum en Essien sjálfur vill helst fara til Chelsea. "Ég hef hugsað mikið um þetta í fríinu og vill fara til Chelsea." sagði Essien.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×