Sport

Ólöglegur með Notts County

Varnarmaðurinn Brian O´Callaghan er enn samningsbundinn Keflavík í Landsbankadeildinni í fótbolta. O´Callaghan hefur þegar skrifað undir samning við Guðjón Þórðarson hjá Notts County þrátt fyrir að vera samningsbundinn hjá Suðurnesjaliðinu. O´Callaghan hefur þegar leikið einn æfingaleik með Notts County þrátt fyrir þetta. Hann lék 4 leiki með Keflvíkingum í upphafi móts en hætti óvænt. O´Callaghan skrifaði undir KSÍ samning hjá Keflavík og telst því enn leikmaður þar og því ólöglegur með Notts County. Forráðamenn Notts County hafa ekki talað við kollega sína hjá Keflavík og er því málið allt hið undarlegasta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×