Sport

Simon Samuelsson til Keflavíkur

Eftir helgi kemur færeyski landsliðsmaðurinn Simon Samuelsson til reynslu hjá Keflavík. Hann hefur leikið með Vogi í Færeyjum og þykir mjög efnilegur framliggjandi miðjumaður. Móðir hans er íslensk og er úr Keflavík en Simon hefur búið í Færeyjum í ellefu ár. Hann er samningsbundinn Færeyska liðinu en Keflvíkingar buðu honum að koma að líta á aðstæður með samning í huga í framtíðinni.  Keflvíkingar leika á morgun fyrri leik sinn gegn Etzella frá Luxembourg í forkeppni Evrópukeppni félagsliða en leikið er ytra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×