Sport

Souness aðvarar Arsenal

Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að forráðamenn Arsenal muni ekki hafa efni á að kaupa Jermaine Jenas af félaginu til að leysa af Patrick Viera, sem í gær gekk í raðir Juventus á Ítalíu. "Ef ég myndi selja Jermanie, sem er það síðasta sem mér myndi detta í hug núna, þá yrði það fyrir mun meiri pening en Arsenal fengu fyrir Vieira. Ég held að ekkert félag í dag hafi efni á Jenas," segir Souness. "Jenas á möguleika á að verða einn besti miðjumaður í heiminum. Hann er stórkostlegur leikmaður og það þarf miklu meira en 12 milljónir punda til að kaupa hann," bætti Souness við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×