Sport

Celtic bikarmeistari

Celtic varð í dag skoskur bikarmeistari þegar liðið lagði Dundee United, 1-0, í úrslitaleik á Hampden Park í Glasgow. Alan Thompson skoraði sigurmarkið strax á 11. mínútu. Leikmenn Celtic voru mun sterkari í leiknum og hefðu auðveldlega getað bætt við fullt af mörkum, brenndi Chris Sutton meðal annars af vítaspyrnu. Þetta var síðasti leikur Celtic undir stjórn Martin ONeill, en hann tilkynnti á dögunum að hann myndi hætta sem stjóri Celtic eftir fimm ár í brúnni. Gordan Strackan, fyrrum leikmaður Manchester United og Leeds, og stjóri Coventry og Southampton, mun taka við starfi Skotans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×