Lífið

Stofna minningasjóð um dóttur sína

Hjónin Þóra Hallgrímsson og Björgólfur Guðmundsson hafa stofnað minningarsjóð um dóttur sína, Margréti, og lagt fram stofnfé að upphæð 500 milljónir króna. Markmið sjóðsins er að stuðla að heilbrigðu líferni og bættu mannlífi og efla menntir, menningu og íþróttir. Sjóðurinn mun styrkja einstaklinga, verkefni og félög til mennta og athafna, ekki síst á alþjóðlegum vettvangi. Áætlað er að styrkveitingar nemi um 75 til 100 milljónum króna á ári. Margrét Björgólfsdóttir var fædd árið 1955 en lést af slysförum árið 1989. Hún lauk meðal annars einsöngvaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og lagði stund á nám í austurlenskum lækningum erlendis. Hún stofnaði og rak fyrirtæki sem framleiddi og dreifði hollustuvörum og rak um tíma matstofu hjá Náttúrulækningafélagi Íslands. Eiginmaður Margrétar var Jónas Sen píanóleikari. Stjórn minningarsjóðsins skipa Björgólfur Guðmundsson, formaður, Bentína Björgólfsdóttir og Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður. Sjóðurinn auglýsir tvisvar á ári eftir umsóknum, nú fyrst í febrúar á þessu ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.