Innlent

Hátt í 50 útköll á Akranesi

Upp undir fimmtíu útköll hafa verið hjá lögreglunni á Akranesi frá því klukkan þrjú í nótt og menn hafa verið á fullu að losa bíla sem sitja fastir þvers og kruss um bæinn. Eins var lögreglan að aðstoða fólk að komast af veitingastöðum og til vinnu á sjúkrahús og dvalarheimili. Engin tjón hafa orðið svo lögreglan viti til. Lögreglan beinir þeim tilmælum til opinberra stofnana á borð við sjúkrahús að hafa samband við lögreglu svo hún geti sótt fólk sem nauðsynlega þarf að komast í vinnu - fremur en að starfsfólk skilji bílana eftir út og suður um bæinn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×