Fótbolti

Ætlar að spila aftur fyrir Rangers

Gennaro Gattuso lofar stuðningsmönnum Rangers að snúa aftur til Glasgow innan tíðar
Gennaro Gattuso lofar stuðningsmönnum Rangers að snúa aftur til Glasgow innan tíðar AFP

Gennaro Gattuso hjá AC Milan segist ákveðinn í að spila aftur með liði Glasgow Rangers á ný áður en hann leggur skóna á hilluna, en þessi magnaði miðjumaður var aðeins 19 ára gamall þegar Walter Smith keypti hann frá Perugia á sínum tíma og gaf honum tækifæri með Rangers.

Gattuso segist eiga óuppgerða hluti í Glasgow, en Dick Advocaat lét hann fara frá Rangers árið 1998 þegar hann ætlaði að byggja liðið upp á stórstjörnum. Gattuso er giftur skoskri konu og segist klárlega ætla að spila aftur í Skotlandi eftir að samningur hans við Milan rennur út árið 2011.

"Ég ræddi við forráðamenn Rangers í sumar og ég er ekki sáttur við það hvernig ferli mínum lauk þar á sínum tíma. Ég fór ekki út um aðaldyrnar, heldur var flæmdur út um bakdyrnar snemma morguns og það hefur skilið eftir óbragð í munninum á mér. Ég mun ekki fara til Rangers til að slappa af og ætla ekki að fara þangað þegar ég verð orðinn útbrunninn - ég vil fara þangað og hafa eitthvað að gefa liðinu bæði í deild og Evrópu. Ég vil fara aftur til Rangers til að sýna fólki að það var ekki staðið vel að því hvernig ég var flæmdur í burtu og stuðningsmenn liðsins hjálpuðu mér að komast þangað sem ég er í dag - og því eiga þeir inni hjá mér að ég komi aftur," sagði þessi magnaði miðjumaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×