Lífið

Banvænn pilluskammtur

Krufning hefur leitt í ljós að tvítugur sonur Playboy fyrirsætunnar Anne Nicole Smith, dó af of stórum skammti af þunglyndislyfjum og meþadóni. Sonurinn, Daníel, var að heimsækja móður sína og nýfædda systur, á sjúkrahúsi, þegar hann lést.

Anne Nicole varð fræg sem Playboy fyrirsæta og enn frægari þegar hún giftist 96 ára gömlum milljarðamæringi, sem lést eftir rúmlega eins árs hjónaband. Síðan hefur hún átt í málaferlum við stjúpson sinn um arfinn, eftir gamla manninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.