Fótbolti

Adriano farinn í frí til heimalandsins

Adriano er klárlega einn allra besti framherji heims þegar hann er í stuði, en hann hefur verið í mikilli lægð undanfarna mánuði
Adriano er klárlega einn allra besti framherji heims þegar hann er í stuði, en hann hefur verið í mikilli lægð undanfarna mánuði NordicPhotos/GettyImages

Brasilíska framherjanum Adriano hjá Inter Milan hefur verið gefið vikufrí af forráðamönnum félagsins sem hann mun nota til að fara til heimalandsins í læknis- og sálfræðimeðferð. Adriano hefur alls ekki náð sér á strik á síðustu mánuðum og hefur ekki skorað mark síðan í vor.

Adriano hefur fyrir vikið verið orðaður við nokkur félög í Evrópu og raunar í heimalandi sínu líka, en forráðamenn Inter settu honum þau skilyrði áður en hann fór í leyfið að hann mætti ekki ræða við fjölmiðla þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×