Lífið

SIGN fær frábæran dóm í Kerrrang

Sign halda til Íslands um helgina þar sem við tekur 5 daga hljómleikaferð áður en þeir spila á Kerrang! kvöldi Iceland Airwaves hátíðarinnar.
Sign halda til Íslands um helgina þar sem við tekur 5 daga hljómleikaferð áður en þeir spila á Kerrang! kvöldi Iceland Airwaves hátíðarinnar.

Rokkhljómsveitin Sign lýkur þriggja vikna tónleikaferð sinni um Evrópu á Mean Fiddler í London fimmtudgskvöldið 5. október. Sign liðum var boðið að hita upp með Wednesday 13 sem er hljómsveit fyrrum söngvara Murderdolls, en hljómsveitirnar spila 17 tónleika á 20 dögum í Bretlandi, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og Belgíu. Tónleikaferðin hefur gengið vonum framar og hafa rokkararnir safnað 600 nýjum vinum á Myspace síðu sinni jafnframt því sem fyrirtæki í Þýskalandi sýna þeim áhuga.

Í tónleikagagnrýni tímaritisins Kerrang! er farið hástemdum orðum um frammistöðu sveitarinnar á tónleikum í Birmingham. Blaðamaður telur Sign vera á hraðferð upp metorðastigann í rokkheiminum og telur líklegt að hljómsveitin muni sjálf fylla tónleikasali eins og Birmingham Academy og miklu stærri staði. Blaðamaður líkir Sign við hljómsveitina Vain en hljómurinn sé nútímalegri og meiri metall. Jafnframt bætir hann við að Sign hafi allt til að bera og að í söngvaranum Zolberg með sírenuröddina felist stjarna sem sé reiðubúin til að hafa sömu áhrif og Valo (söngvari HIM).

Sign halda til Íslands um helgina þar sem við tekur 5 daga hljómleikaferð áður en þeir spila á Kerrang! kvöldi Iceland Airwaves hátíðarinnar.

Tónleikarnir 5 eru fyrir alla aldurshópa og hefjast kl 20.00, aðgangseyrir er 800 krónur. Hljómsveitin Jamies Star frá Grundarfirði hita upp á öllum tónleikunum. Auk þess munu Akureyringar í Nevolution spila með Sign á Akureyri og Ritz frá Reykjanesbæ spila með SIGN .

Föstudagur 13. október Akranes

Laugardagur 14. október Akureyri - Sjallinn

Sunnudagur 15. október Grundarfirði - Félagsmiðstöðin Grundafirði

Mánudagur 16. október Reykjanesbæjar

Þriðjudagur 17. október Selfoss - Fjölbrautarskólanum Selfossi

Föstudagur 20. október Reykjavík - Nasa - Kerrang! kvöld Iceland Airwaves



Ný smáskífa

Í tilefni af tónleikaferðinni senda Sign frá sér nýja smáskífu sem nefnist So Pretty. Lagið er að finna á plötunni "Thank God for Silence" en hefur verið endurunnið af hljómsveitinni og breska hljóðupptökustjóranum Chris Sheldon en Chris hefur unnið með böndum á borð við Foo Fighters, Biffy Clyro og Feeder.

Smáskífan verður fáanleg í niðurhali á tonlist.is frá 16. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.