Innlent

Ekki alvarlega slasaður

Bifhjólamaðurinn, sem fluttur var á slysadeild eftir að hann kastaðist af hjóli sínu á vélhjólamóti við Vesturlandsveg, er ekki talinn alvarlega slasaður. Maðurinn féll af hjóli sínu og meiddist á baki þegar hann tók heljarstökk á hjólinu. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi og að sögn vakthafandi læknis er ástand hans betra en á horfðist. Líklegt er talið að hann fái að fara heim síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×