Innlent

Vill sameina slökkviliðin á suðvesturhorninu

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna vill að slökkviliðin á suðvesturhorninu verði sameinuð með það að markmiði að efla björgunar- og öryggismál hér á landi. Þá vill sambandið auka samstarfið við björgunarsveitirnar og Landhelgisgæsluna.

Landssamband slökkviliðs- sjúkraflutningamanna hélt á dögunum landsfund þar sem m.a. var rætt um brotthvarf varnarliðsins og breytingar á öryggis- og björgunarmálum hér á landi af þeim sökum. Bent er á að slökkviliðin séu í raun orðin alhliða björgunarlið og með brotthvarfi hersins eigi að nýta þau tækifæri sem skapist og búa til öflugt björgunarlið úr slökkviliðum á suðvesturhorninu.

Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að verið sé að horfa austur í Árnessýslu og þess vegna upp í Borgarfjörð í þeim efnum. Þetta sé kjörið tækifæri til þess að búa til eina öflaga einingu til þess að bregðast við bráðatilfellum, hvort sem er veikindum, slysum eða almannavá. Nauðsynlegt sé fyrir landið að eiga vel þjálfaðar og búnar sveitir sem geti brugðist við og séu starfsmenn sveitarfélaga eða hins opinbera.

Vernharð segir að með sameiningu geti slökkvilið veitt betri þjónustu og bendir á góða reynslu af sameiningu Slökkvilið Reykjavíkurflugvallar, Slökkviliðsins í Hafnarfirði og í Reykjavík. Aðspurður segir hann sambandið hafa fengið góð viðbrögð hjá yfirvöldum. Hann nefnir sem dæmi að í nýsamþykktum lögum, sem taki gildi á morgun um slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli, sé gert ráð fyrir því að Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar sé heimilt að semja við sveitarfélag eða byggðasamlag um rekstur slökkviliðs á Keflavíkurflugvelli þannig að það sé gert ráð fyrir því að möguleikinn sé kannaður.

Verðharð vill hefja viðræður um sameiningu sem fyrst og sömuleiðis endurskipulagningu á björgunarmálum í landinu, hvort heldur í sjálfboðaliðastarfinu þar sem hann segir Landsbjörgu hafa staðið sig frábærlega eða hjá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum sem hafi björgun og öryggismál að aðalstarfi. Skoða verði málið á víðum grunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×